Morgunblaðið - 25.10.2007, Blaðsíða 27
hagfelldast og hinsvegar hagsmunir
nágranna af því að hafa frið og næði
til að geta notið eignar sinnar með
eðlilegum hætti.
Ónæði verður að vera viðvarandi
upp að vissu marki. Athafnir og
háttsemi sem hefur ekki annan til-
gang en að valda nágranna miska
eða ama eru alltaf óleyfilegar þótt
ónæðið sé ekki verulegt. Meta þarf
þá hvort hægt sé að stemma stigu
við óþægindunum eða draga úr
þeim. Meginreglan er að eigandi
þarf ekki að taka tillit til viðkvæmni
nágranna eða eignar hans gagnvart
tilteknum óþægindum. Með öðrum
orðum getur nágranni krafist þess
að starfsemi sú sem ónæði veldur
verði hætt ef hún hefur í för með sér
óþægindi umfram það sem honum er
skylt að þola eða að úr óþægindun-
um verði dregið niður að því marki
sem hann verður að una við. Al-
mennt er talin ástæða til að skerpa
kröfur ef sá, sem ónæði veldur, hafði
átt val milli fleiri kosta og tók þann
ódýrasta fram yfir aðra ónæðis-
minni. Þegar starfsemi, sem ónæði
veldur, hefur almennt gildi eða þeg-
ar úrbætur eru svo dýrar að ekki er
sanngjarnt að í þær verði ráðist get-
ur hagsmunamat leitt til þess að
starfsemi fái að halda áfram gegn
bótum.
Ljóst er að menn verða að sætta
sig við óþægindi upp að vissu marki í
þéttbýli. Það er hinsvegar alltaf
álitamál hvenær komið er út fyrir
þau mörk og almennt er talið að for-
gangssjónarmið ráði ekki. Ónæðis-
valdurinn fær því ekki rýmra at-
hafnafrelsi þó hann hafi komið
fyrstur,“ segir Sigurður Helgi að
lokum.
join@mbl.is
pottum
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 27
1919 heiðrað sem
leiðandi ráðstefnuhótel
Radisson SAS hótelið 1919 í
Reykjavík var fyrir skemmstu heiðr-
að af World Travel Awards sem leið-
andi hótel á Íslandi og sem leiðandi
ráðstefnuhótel á Íslandi, að því er
segir í fréttatilkynningu. En Wall
Street Journal hefur líkt World Tra-
vel Awards við eins konar óskars-
verðlaunahátíð ferðaþjónustuiðn-
aðarins.
Í fréttatilkynningu frá 1919 segir
hótelstjórinn Claude Bulté að hann
sé ánægður og stoltur með að taka á
móti þessum verðlaunum fyrir hönd
Radisson SAS 1919 hótels. „Starfs-
fólk okkar hefur lagt hart að sér á
hverjum degi með að veita fram-
úrskarandi þjónustu fyrir gesti okk-
ar og verðlaunin eru mikilvæg við-
urkenning frá samstarfsfólki okkar í
þjónustuiðnaðinum, sem sýnir að
þau kunna að meta þjónustuna sem
starfsfólk Radisson SAS 1919 hótel
hefur lagt sig fram um að veita,“ er
haft eftir Bulté.
Önnur hótel í Radisson SAS keðj-
unni sem hlutu viðurkenningu voru
Radisson SAS Beitostolen, sem var
valið besta skíðahótelið í Noregi og
Radisson SAS Scandinavia Hotel í
Gautaborg sem valið var leiðandi
meðal sænskra viðskiptahótela.
Kynningarfundur um
gönguferðir 2008
ÍT ferðir bjóða upp á kynningar-
fund sunnudaginn 28. október kl. 17
vegna þeirra gönguferða sem í boði
verða hjá ferðaskrifstofunni 2008 .
Hjördís Hilmarsdóttir, göngu-
sérfræðingur ÍT ferða, kynnir ferða-
framboðið, en einnig verður á staðn-
um Zoran, gönguferðaskipu-
leggjandi í Mið- og Austur-Evrópu,
sem ÍT ferðir hafa verið í samstarfi
við. Fundurinn er haldinn í Íþrótta-
miðstöðinni í Laugardal, húsi 1, 3.
hæð.
www.itferdir.is
vítt og breitt
Víkverji fór að staulast
um skemmtistaði mið-
borgarinnar edrú hefur
hann séð ýmislegt.
x x x
Til dæmis um sein-ustu helgi á smá
spotta á milli staða á
Laugaveginum gekk
Víkverji fram á vænan
ælupoll, brotið bjór-
glas, umbúðir utan af
skyndibita og banana
sem hafði verið stapp-
aður niður í götuna og
þetta var bara á nokkr-
um metrum. Þegar inn
á staðina kom tók við troðningur og
hiti. Undir áhrifum áfengis er auð-
velt að láta sig bara vaða í stöppuna
en með fullri meðvitund er það erf-
iðara. Víkverji stóð sig að því að
víkja fyrir öllum sem urðu á vegi
hans og biðja þá fyrirgefningar sem
rákust utan í hann, að endingu kom
Víkverji sér vel fyrir út í horni þar
sem hann var ekki fyrir neinum sem
býr yfir því villidýri sem áfengis-
neyslan virðist leysa úr læðingi í Ís-
lendingum.
x x x
Víkverji hefur líka stundaðáhugaverðar mannlífsrann-
sóknir á þessum áfengislausa tíma,
meðan vinir hans hanga á barnum
sér Víkverji landa sína í nýju ljósi.
Úti á lífinu breytist stór hluti Íslend-
inga í hamslaus óargadýr. Það er all-
staðar troðist framfyrir, hellt niður,
rifinn kjaftur, ruðst áfram í þvögum
án tillits til neins og lítil virðing bor-
in fyrir umhverfinu eða öðru mann-
fólki inni á skemmtistöðunum.
Víkverji hefur gaman af því að
stúdera þessa hegðun og horfa á
samlanda sína undir stjórn Bakk-
usar. Þó þessi stúdía krefjist þess að
Víkverji þurfi að klofa yfir nokkra
ælupolla og annan ófögnuð í mið-
bænum þá ætlar hann að halda
áfram að heimsækja þessa Sódómu
Reykjavíkur um helgar, edrú.
Víkverji ákvað aðhætta að smakka
áfengi fyrir nokkrum
mánuðum síðan. Ekki
að drykkja væri vanda-
mál hjá honum heldur
ákvað hann að prófa að
fara út að skemmta sér
án þess að vera undir
áhrifum áfengis. Þó
áfengisneysla Víkverja
hafi aldrei verið mikil
þá hefur hún líklega
haft einhver áhrif á
dómgreind hans og
meðvitund þegar niður
í miðbæ Reykjavíkur
er komið. Því eftir að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Stjórnenda- og leiðtogaskóli í hartnær 100 ár
Menningarráð Vesturlands og meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst, halda
sameiginlega ráðstefnu um menningarmál á landsbyggðinni og menningarsamninga.
Ráðstefna um menningarmál í Háskólanum á Bifröst
laugardaginn 27. október kl.13.00-16.00
Menning sem atvinnugrein
Ráðstefna um tækifæri menningarstarfs fyrir samfélög utan höfuðborgarinnar
13.00
Helga Halldórsdóttir,
formaður Menningarnefndar Vesturlands setur
ráðstefnuna.
Elísabet Haraldsdóttir, menningarfulltrúi á Vestur-
landi kynnir nokkur verkefni sem menningarráð
styrkir.
Sigfúsarlög flutt af Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur
söngkonu frá Akranesi og Viðari Guðmundssyni
píanóleikara frá Kaðalstöðum.
Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst,
Menning sem atvinnugrein.
Stutt brot úr kvikmynd um vesturfara, Steinþór
Birgisson kynnir myndina.
Eyja stuttmynd Daggar Mósesdóttur sem er
innlegg hennar í alþjóðlega stuttmyndahátíð sem
hún stýrir í Grundarfirði í febrúar 2008.
Kaffi
Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi á Austurlandi,
Norrænt samstarf, sköpun eða skipbrot.
Njörður Sigurjónsson, lektor við félagsvísindadeild
Háskólans á Bifröst,
Menning til höfuðs kapítalismanum.
Ráðstefnunni lýkur með umræðum sem Njörður
Sigurjónsson stjórnar en þátttakendur eru ráðstefnu-
gestir, nemendur í menningarstjórnun og einnig
nýráðnir menningarfulltrúar vítt og breitt um
landið.
Ráðstefnan er öllum opin og hvetjum við alla sem
vinna að menningarstarfi eða hafa áhuga á að efla
menningu á landsbyggðinni að taka þátt í þessari
ráðstefnu.
Dagskrá: