Morgunblaðið - 25.10.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.10.2007, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MISMUNUN KYNJANNA Jafnrétti kynjanna er óumdeiltmarkmið á Íslandi og hefur ver-ið það í áratugi. Ef marka mætti ræður ætti jafnrétti að hafa komist á fyrir löngu í íslensku samfélagi. En það er öðru nær. Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra átti koll- gátuna þegar hún tók til máls á ráð- stefnu um jafnréttismál í gær og sagði að það væri ótrúlegt að nærri fimm áratugum eftir setningu fyrstu jafn- launalaganna á Alþingi þyrfti enn að halda sérstakar ráðstefnur til að ræða jafnlaunamál. Ójafnrétti milli kynjanna er þjóð- félaginu dýrkeypt. Á Íslandi er gert upp á milli kynjanna í launum og stöðuveitingum, bæði í einkageiran- um og hjá hinu opinbera. Það þarf ekki að taka fram að misréttið er körl- um í hag. Konurnar sitja uppi með svartapéturinn. Þetta þýðir að það er gert upp á milli einstaklinga í þjóð- félaginu og þeir fá ekki að njóta sín að verðleikum. Hæfileikum þeirra er só- að og á því tapa bæði einstaklingarnir og þjóðfélagið. Frá upphafi er vitlaust gefið. Auðvelt er að andmæla þessu með því að rekja dæmi um konur, sem náð hafa langt, en þau eru oftast undan- tekningin, sem sannar regluna. Fyrsta skrefið til að snúa við blaðinu er að afneitun vandans linni. Flestir eru tilbúnir að viðurkenna að vandinn sé fyrir hendi, bara ekki í þeirra ranni. Vandinn gegnsýrir hins vegar sam- félagið allt og það mun kosta rækilegt átak að breyta ríkjandi hugarfari á þann veg að ójafnréttið verði gert út- lægt. Það þarf ekki bara að vinna á ójafnréttinu á vinnustöðum, heldur einnig á heimilinu. Það gerir hvorki löggjafinn, framkvæmdavaldið, né dómstólar. Það er verkefni hvers og eins. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að ábyrgðin á því að árangur náist hvílir jafnt á báðum kynjum. Átta feð- ur, eiginmenn og synir sig ekki á því að ójafnréttið þýðir í raun að það er verið að mismuna mæðrum þeirra, eiginkonum og dætrum? Að þær hafa verið sviptar rétti sínum til að njóta jafnra tækifæra á við karlana í sam- félaginu? Það hefur tekið langan tíma og kost- að konur mikið erfiði að ná fram þeim réttindum, sem þær hafa í dag, og víða í heiminum er enn mun lengra í land en hér á landi. Það virðist hins vegar ætla að taka óratíma að komast síð- asta spölinn og takist ekki að vinna bug á tregðunni í samfélaginu vaknar spurningin um það hvort atvinnulífið sé beinlínis farið að kalla á það að sett verði löggjöf um að þegar tveir ein- staklingar séu jafnhæfir skuli konan ráðin. Misrétti kynjanna gengur þvert á alla skynsemi. Hvað býr þá að baki? Ótti? Tortryggni? Vanmetakennd? Máttur vanans? Um það má sjálfsagt skrifa lærðar greinar og halda margar ráðstefnur. Vandinn sjálfur liggur hins vegar fyrir og um hann hefur nóg verið talað. Tími afsakana er liðinn og tími aðgerða runninn upp. MANNABREYTINGAR Fyrir skömmu var skýrt frá því aðÓlafur Örn Haraldsson, sem verið hefur forstjóri Ratsjárstofnun- ar, hefði látið af störfum. Í yfirlýs- ingu frá Ólafi Erni, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, segir m.a.: „Mér var kynnt þessi ákvörðun ut- anríkisráðherra í upphafi þessa mán- aðar og á fundi okkar föstudaginn 12. október óskaði ráðherra eftir því að ég léti af störfum um þá komandi helgi.“ Fyrir nokkrum vikum var skýrt frá því að Alfreð Þorsteinsson hefði látið af störfum, sem formaður nefndar, sem unnið hefur að undirbúningi á byggingu nýs hátæknisjúkrahúss. Fram kom að Guðlaugur Þór Þórð- arson heilbrigðisráðherra hefði ósk- að eftir þessari breytingu vegna skipulagsbreytinga. Nú skal ekki dregið í efa að bæði utanríkisráðherra og heilbrigðisráð- herra hafi haft málefnalegar ástæður fyrir þessum ákvörðunum. Þó vekur athygli að í öðru tilvikinu er um að ræða fyrrverandi þingmann Fram- sóknarflokks og í hinu fyrrverandi borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Í eina tíð var það siður í íslenzkri pólitík, að þeir sem völdin höfðu hverju sinni beittu þeim til þess að flæma pólitíska andstæðinga úr stöð- um eða koma í veg fyrir að þeir fengju vinnu. Um þetta eru ljót dæmi þótt ekki sé leitað lengra aftur en til lýð- veldistímans. Svo lagðist þessi siður af. Ástæðan fyrir því var augljós. Þeir sem við völdin voru hverju sinni gerðu sér grein fyrir því að ef þeir sjálfir beittu þeim á þennan veg gætu þeir búizt við hinu sama gagnvart sjálfum sér eða flokkssystkinum sínum, þegar aðrir næðu völdum í lýðræðislegri kosn- ingu. Það væri stórt skref aftur á bak ef horfið yrði til gamalla ósiða í þessum efnum og ómögulegt að segja hvenær og hvar þeim vígaferlum yrði lokið og hverjir hefðu orðið fórnarlömb þeirra. Allir flokkar hafa stundað það að koma sínum fulltrúum fyrir hér og þar í kerfinu. Í þeim efnum eru meira og minna allir jafn sekir ef menn vilja orða það á þann veg. Þess vegna er mikilvægt fyrir nýja valdamenn að ganga hægt um gleð- innar dyr þegar þeir beita nýfengn- um völdum. Auðvitað verða þeir að hafa svigrúm til að koma fram marg- víslegum breytingum. En þótt það geti verið einber tilviljun að tveir trúnaðarmenn Framsóknarflokksins hafi horfið úr þýðingarmiklum störf- um á undanförnum vikum, hættir það að vera tilviljun ef fleiri framsókn- armenn bætast í þann hóp! Það verður fróðlegt að fylgjast með því, hvort ný kynslóð stjórnmála- manna freistast til þess að taka upp gamla ósiði og koma fram hefndum á pólitískum andstæðingum. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Erum við hrædd við jafnrétti?“ var spurtá jafnréttisráðstefnu Keilis, miðstöðv-ar vísinda, fræða og atvinnulífs í Kefla-vík í gær. Framsögumenn höfðu ólík sjónarmið fram að færa en í pallborðsumræðum, að ræðum loknum, virtist þó nokkur samhljómur meðal þeirra og fundargesta um að „draumasam- félagið væri þar sem bæði peningar og börn væru í jafnri umsjá bæði karla og kvenna“, eins og Margrét Pála Ólafsdóttir, forkólfur Hjallastefn- unnar og einn framsögumanna, komst að orði. Vilji forstöðumanna fyrirtækja lykilatriði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra var fyrst í pontu og sagði það ótrúlegt að nærri fimm áratugum eftir setningu fyrstu jafnlauna- laganna á Alþingi þurfi enn að halda sérstakar ráðstefnur til að ræða jafnlaunamál. „Ég er ein- dreginn talsmaður þess að mikilvægt sé að af- nema svokallaða launaleynd á íslenskum vinnu- markaði, ég tel að sú samningsbundna launaleynd sem verið hefur við lýði hér á landi og færst í vöxt á undanförnum árum hafi átt stóran þátt í því að viðhalda kynbundnum launamun,“ sagði Jóhanna, en í nýju stjórnarfrumvarpi til jafnréttislaga, sem lagt verður fram í haust, verð- ur launafólki tryggður sá réttur að skýra frá launum sínum ef það svo kýs. Þá verða úrskurðir úrskurðarnefndar jafnréttismála mögulega gerð- ir bindandi fyrir báða aðilja, jafnréttisstofu veitt- ar víðtækari heimildir til að hafa eftirlit og leggja á dagsektir og fyrirtækjum með 25 eða fleiri starfsmenn gert að gera jafnréttisáætlanir og framkvæmdaáætlanir á grundvelli þeirra. Jóhanna var ómyrk í máli og kvað ólíðandi að forstöðumenn opinberra stofnana tækju þátt í að viðhalda kynbundnum launamun, sem er ekki síður til staðar hjá hinu opinbera en á almennum vinnumarkaði. Lagasetningu eina og sér sagði hún ekki duga. „Vilji forsvarsmanna fyrirtækja og stofnana til að jafna stöðu karla og kvenna á vinnustöðum er lykilatriði og grundvöllur þess að koma megi á jafnrétti á vinnumarkaði.“ Litið á konur sem aðstoðarstúlkur Yrsa Sigurðardóttir, tæknistjóri hjá verk- fræðistofunni Fjarhitun, fjallaði meðal annars um atvinnuþátttöku kvenna út frá persónulegri reynslu sinni. Yrsa hefur starfað við eftirlit með framkvæmdum við Kárahnjúka frá árinu 2003. Hún lýsti þeim áskorunum sem eftirlitsfyrirtæk- ið stóð frammi fyrir í starfsmannamálum. Komst hún að raun um að fjölskyldulíf margra sem störfuðu á svæðinu var ekki upp á marga fiska og mjög fáir sóttu um auglýst störf, jafnvel þótt launin væru tvöföld á við sambærileg störf í Reykjavík. Uppi á hálendi í vályndum veðrum, fjarri fjölskyldu og mannlífi sá hún fram á að erf- itt yrði að halda í lykilstarfsmenn til lengri tíma á svæðinu, sem gæti reynst afar þungbært, enda Kárahnjúkar, samninga- og regluskógi vaxnir. Með markvissum aðgerðum, að hennar frum- kvæði, var því reynt að stuðla að því að fólk vildi vera lengur hjá fyrirtækinu og að því liði vel. Um leið var stefnt að fjölgun kvenkyns starfsmanna, og kvenfólks á svæðinu almennt, til þess að skapa starfsfólki eðlilegri aðstæður. Í hinu karllæga umhverfi virtust sumir nefnilega líta á kvenkyns yfirmenn á borð við Yrsu sem hálfgerðar þjón- ustu- eða aðstoðarstúlkur. Hlutfall kvenna hjá verkfræðistofum í Reykja- á þ f v E e s l u a l r u e v s h v v i m a v r vík var 20-25% árið 2005 samkvæmt óformlegri skoðun Yrsu. Hún var hins vegar eina konan hjá sínu fyrirtæki, VIJV, eða 2% starfsmanna. Til þess að gera vinnubúðirnar meira aðlaðandi var því farið í ýmsar aðgerðir, svo sem að gera starfs- fólki kleift að búa með mökum sínum og fjöl- skyldum þar, ef þeir kysu. Gæludýr voru leyfð, ferðir skipulagðar, líkamsræktaraðstöðu komið upp, hjól og tjöld voru keypt fyrir starfsmenn og þeir hvattir til að stunda útivist. Einnig var tryggt að starfsfólk gæti fengið til sín gesti. Í september 2005 voru 7% starfsmanna Impregilo konur, en 15% hjá íslenskum verktök- um. Stór hluti kvennanna vann í mötuneyti, við þrif og á skrifstofum. VIJV náði að lokum 25% hlutfalli kvenna og skipaði sér þannig við hlið verkfræðistofa í Reykjavík hvað þátttöku þeirra varðar. Elskum jafnrétti – óttumst leiðirnar að því „Við elskum öll jafnréttið og erum á leiðinni þangað, en við erum bara svo svakalega óttasleg- in og hrædd við allar leiðirnar sem þarf að fara til að komast að jafnrétti. Heilt samfélag er skelf- ingu lostið,“ sagði Margrét Pála Ólafsdóttir í Ómyrk í máli Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði jafnréttisáætlanir fyrirtækja ekki eiga a Börn og fjármu umsjá beggja k ÞORLÁKUR Karlsson, forseti viðskiptadeildar HR, flutti erindi um kynbundinn launamun undir yfirskriftinni „Hvað má gera og hvað má ekki gera?“ Lýsti hann þar niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem unnin var við deildina með styrk frá Jafnréttissjóði í umsjón forsætisráðu- neytis. 429 þátttakendur í rannsókninni, há- skólanemar og starfsmenn fyrirtækja, voru beðnir um að setja sig í spor starfsmannastjóra. Í mismunandi aðstæðum voru þátttakendur beðnir um að svara fimm lykilspurningum: Hve há mánaðarlaun þeir myndu bjóða umsækjanda um starf, hve há mánaðarlaun þeir teldu að um- sækjandinn myndi þiggja (sætta sig við), hve há mánaðarlaun þeir ráðlegðu frænku sinni eða frænda að biðja um, hve há mánaðarlaun þeir teldu að frænku sinni eða frænda yrði boðið og hversu há mánaðarlaun þeir ráðlegðu frænku sinni eða frænda að sætta sig við. Tilviljun réð þ u K Í ö o s á þ i h h s a a s Körlum hyglað u Ræddu jafnrétti Þær Yrsa Sigurðardóttir (fyrir mi máls á þinginu. Mæting var góð og sköpuðust fjörleg Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.