Morgunblaðið - 25.10.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.10.2007, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar The Nordic Investment Bank (NIB) is a multilateral financial institution owned by the Nordic and Baltic countries. The Bank provides long-term loans on market terms to private and public projects that strengthen competitiveness and enhance the environment. NIB is an AAA-rated institution and acquires the funds for its lending by borrowing on the international capital markets. The Bank has some 160 employees and total assets amounting to 18 billion euros. NIB’s headquarters are located in Helsinki, Finland and the main working language of the Bank is English. NIB offers job opportunities in an international banking environment and a competitive remuneration package. NIB has one vacant position within the Credit & Analysis department: SENIOR CORPORATE ANALYST / SENIOR PROJECT ANALYST The Credit & Analysis department is seeking one new Senior Corporate Analyst / Senior Project Analyst to strengthen the knowledge and expertise within the area of credit analysis and risk assessment. The main focus will be on complex lending transactions and corporations within and outside the Member countries. For more information about the Nordic Investment Bank and the position, please visit NIB’s home page, www.nib.int (About NIB/ Human Resources/ Job opportunities). The closing date for receipt of applications is 9 November 2007. The application, together with a CV, should be sent by e-mail to recruitment@nib.int or: NORDIC INVESTMENT BANK Human Resources, P.O. Box 249, FI-00171 HELSINKI Símsvörun Starfskraftur óskast til starfa við símsvörun á Sendibílastöð í Reykjavík. Ráðningartími er 1. nóvember 2007 - 1. október 2008. Upplögð vinna fyrir þá sem eru í fjarnámi eða öðru slíku. Vinnutími er um 6 tímar á dag og unnið er ein- hverja laugardaga. Nánari upplýsingar í síma 553 5129 kl. 10-13 virka daga. Raðauglýsingar 569 1100 Sofðu unga ástin mín, – úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. Það er margt, sem myrkrið veit, – minn er hugur þungur. Oft ég svarta sandinn leit svíða grænan engireit. Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, Meðan hallar degi skjótt, Að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sigurjónsson.) Elsku Bjarki, með þessu ljóði langar okkur að kveðja þig. Við sungum þetta saman á kvöldin áður en þið fóruð að sofa. Megi Guð og englarnir vaka yfir þér. Ástarkveðja, mamma, pabbi, Jón Þór, Atli og Sindri. Bjarki Ström ✝ Bjarki Strömfæddist í Reykjavík 13. maí 1979. Hann lést á heimili sínu mið- vikudaginn 17. október síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Kolbrún Jóns- dóttir, f. 8. júlí 1951 og Gunnar Arnbjörn Ström, f. 15. september 1945. Systkini Bjarka eru Sólveig Lilja, f. 8. júlí 1969, lést á fyrsta aldursári, Jón Þór Ström, f. 30. ágúst 1971, Atli Ström, f. 1. febrúar 1978 og Sindri Ström, f. 24. nóvember 1993. Útför Bjarka verður gerð frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Góður drengur hef- ur kvatt þennan heim. Hann Bjarki frændi minn var mikið hjá okkur hjónum á Eyr- arbakka er hann vann hjá mér við smíðar. Hann var mjög ljúfur og góður drengur, duglegur til vinnu og skipti aldrei skapi. Hans viðmót var bros- milt og hann gekk rösklega til allra verka. Mig langar til að þakka þér, kæri frændi, fyrir allar ferðirnar austur og samveruna síðustu árin. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar, því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit við erum ei ein en almættið vakir oss yfir því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár hún brýtur þá viðkvæmu strengi er blunda í hjarta og brjósti hvers manns. Nú birtir og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu að sorgina við getum virkjað til góðs í vanmætti sem er oss yfir ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga) Guð styrki og varðveiti fjölskyldu þína á þessum erfiða tíma. Þinn frændi, Axel. Bjarki frændi minn er látinn langt fyrir aldur fram, þetta hafði verið erfiður tími hjá honum undanfarið og vorum við öll að vona að bjartari tími væri framundan. Það er ekki margt sem hægt er að segja á svona stundu en við kveðjum hann með söknuði. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Hvíl í friði, elsku frændi. Sigríður frænka og fjölskylda. Það var skrítið símtalið frá Óla vini okkar miðvikudaginn 17. októ- ber þar sem hann sagði „hann Bjarki er dáinn“. Það varð löng þögn í símann og báðir gerðum við okkur grein fyrir hvað hafði gerst. Bjarki hefur verið vinur minn frá því við kynntumst í 8. bekk í Hlíðaskóla. Hann var eðlisgreindur í meira lagi sem sýndi sig best þegar við fengum einkunnirnar okkar að vori og hausti. Þegar við gengum niður Suð- urhlíðarnar til að sýna foreldrum okkar afraksturinn var hann alltaf talsvert upplitsdjarfari en ég, enda var hann ævinlega með þær ein- kunnir sem eftirsóknarvert var að sýna foreldrum. Stundum hvarflaði það að mér að það væri gaman ef mitt nafn stæði á hans einkunna- spjaldi. Unglingsárin okkar strákanna í Hlíðunum voru skemmtileg og við- burðarrík. Ferðirnar okkar til Mal- lorka og Benidorm eru nokkuð sem við eigum allir eftir að nærast á um ókomna tíð. Skemmtilegasta sumrið okkar Bjarka var án nokkurs vafa sumarið 1999 þegar við fórum sam- an til Skagen í Danmörku að vinna og skemmta okkur. Þar eignuðumst við vini sem við höfum haldið sam- bandi við síðan þá, þetta var ógleym- anlegt sumar. Bjarki var umburð- arlyndur, gjafmildur og góður drengur og einn af mínum bestu vin- um. Eins og gengur og gerist, þá virðir maður ákvarðanir vina sinna, þrátt fyrir að vera ekki alltaf sam- mála þeim. Ég mun nýta mér loka- sprettinn í lífi Bjarka vinar míns sem dýrmæta reynslu. Í gegnum vináttu upplifir maður svo margt, bæði sorgir og sigra og nú þegar ég kveð hann með söknuði og trega þakka ég honum fyrir vináttuna sem var traust. Fjölskyldu hans og ættingjum sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Gunnar Örlygur. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. Minningargreinar MINNINGAR MENNINGARRÁÐ Vesturlands og meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst halda sam- eiginlega ráðstefnu um menningar- mál á landsbyggðinni og menning- arsamninga í Háskólanum á Bifröst laugardaginn 27. október kl. 13-16. Dagskráin hefst á því að Helga Halldórsdóttir, formaður menning- arnefndar Vesturlands, setur ráð- stefnuna. Elísabet Haraldsdóttir, menning- arfulltrúi á Vesturlandi, kynnir nokkur verkefni sem menningar- ráð styrkir. Ágúst Einarsson, rekt- or Háskólans á Bifröst, Signý Orm- arsdóttir, menningarfulltrúi á Austurlandi og Njörður Sigurjóns- son, lektor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst, flytja erindi. Ráðstefnunni lýkur með um- ræðum sem Njörður Sigurjónsson stjórnar en þátttakendur eru ráð- stefnugestir, nemendur í menning- arstjórnun og einnig nýráðnir menningarfulltrúar víða um land. Ráðstefnan er öllum opin. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefsíðunni www.bifrost.is Ráðstefna um menningarmál FRÉTTIR HAUKUR Ingi Jónasson, sálgreinir og lektor í Háskóla Íslands, heldur fyrirlestur sem nefnist Tengsl undir- og yfirmanna – Hvað veldur, hver heldur? í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd föstudaginn 26. október kl. 12.15–13.15. Fyrirlesturinn verð- ur í Háskóla Íslands, í stofu 201 í Lögbergi. Haukur Ingi fjallar um svokölluð sálræn forrit sem eru að verki í sam- skiptum undir- og yfirmanna. Hann ræðir um hvernig eldri reynsla mót- ar nýja reynslu og hvernig þetta get- ur bæði skapað vandamál og leitt til heilbrigðari samskipta á vinnustað. Fyrirlesturinn er ókeypis og op- inn öllu áhugafólki um vinnuvernd. Tengsl undir- og yfirmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.