Morgunblaðið - 25.10.2007, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.10.2007, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING MATTHEW Barney sýnir um þess- ar mundir verk úr Drawing Restra- int-röðinni í Serpentine-galleríinu í London og hefur sýningin hlotið misjafna dóma. Gagnrýnandi Times Literary Supplement segir hana draga fram það sem heillar marga við verk Barneys, hversu flókin og margbreytileg þau séu og oft bæði fyndin og ægifögur. Hún sýni hins- vegar líka þá hlið listamannsins sem mörgum falli ekki í geð utan Banda- ríkjanna, nakinn metnað hans og þann sjálfbirgingshátt sem felst í því að skapa sér lokaðan einkaheim og bjóða fólki að koma og skoða hann. Gagnrýnandi Guardian var enn síður ánægður, sagði verk Barneys ómarkviss og þar væru gamlar hug- myndir blóðmjólkaðar. Barney fær misjafna dóma Samstarf Barney og Björk. DAGSKRÁ til heiðurs Jónasi Svafár (1925-2004), skáldi og myndlistarmanni, verður hald- in í sal ReykjavíkurAkademí- unnar í kvöld kl. 20. Dagskrá þessi er haldin í tengslum við sýningu á teikn- ingum eftir Jónas sem nú stendur yfir í Hoffmannsgall- eríi sem er til húsa á sama stað. Á samkomunni flytur Bene- dikt Hjartarson erindi um Jón- as og lesin verða ljóð eftir hann. Einnig mun hóp- ur myndlistarmanna og rithöfunda flytja eftir sig verk. ReykjavíkurAkademían er til húsa á Hring- braut 121, 4. hæð. Aðgangur er ókeypis. Upplestur Dagskrá til heiðurs Jónasi Svafár Jónas Svafár SÍGRÆNAR perlur verða í forgrunni á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Íslands í kvöld. Verk á borð við „Finlandia“ eftir Sibelius, „Rondo alla Turca“ Mozarts, forleikur Rossinis að Rakaranum í Se- villa og „Vókalísa“ Rakhman- inoffs eru verk sem verða flutt á tónleikunum, svo nokkur séu nefnd. Stjórnandi er hinn finnski Esa Häkkilä. Einleikari tónleikanna er hinn margverðlaunaði trompet- leikari Alison Balsom, sem mun flytja þátt úr trompetkonsert eftir Josef Haydn. Tónleikarnir fara fram í Háskólabíói og hefjast kl. 19.30. Tónlist Sígrænar perlur á Sinfóníutónleikum Alison Balson LIND Völundardóttir opnar sýninguna Litir án forms í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag. Lind útskrifaðist úr nýlista- deild Myndlista- og handíða- skólans 1993. Myndirnar á sýn- ingunni eru allar teknar á 50 mm Pentax-linsu þar sem Lind ákvarðar ramma myndarinnar í töku án þess að nokkuð sé skorið af mynd í eftirvinnslu. Það sem fyrir augu ljósmyndarans ber eru lita- blöndur í ferköntuðum álvaski, alltaf sami vask- urinn og alltaf sama niðurfallið í vinnustofu lista- mannsins. Sýningin stendur til 18. desember. Myndlist Litablöndur í fer- köntuðum álvaski Verk eftir Lind Völundardóttur. þemað. Þarna verða margir skúlp- túrar, en líka myndir. Efniviðurinn og útfærslurnar er mjög ólíkar,“ segir Petrína Ásgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla. Stefnt er á að hátíðin verði héðan í frá haldin annað hvert ár og festi sig FRÚ Vigdís Finnbogadóttir hleypti af stokkunum listaverkauppboði til styrktar Barnaheillum í verslun Sævars Karls í gær. Þar gefst list- unnendum kostur á að styðja gott málefni og eignast íslensk samtíma- listaverk um leið. Flest verkin eru útbúin sérstak- lega fyrir uppboðið. Þau verða til sýnis næstu daga í versluninni þar sem áhugasömum gefst tækifæri á að skila inn tilboðum. Endanleg nið- urstaða ræðst síðan á hátíðarkvöld- verði á Hótel Nordica 9. nóvember, sem ber yfirskriftina Hátíð trjánna – list í þágu barna. Viðfangsefni allra verkanna eru tré í öllum sínum fjölmörgu mynd- um. „Þau hafa frjálsar hendur með í sessi sem listviðburður. „Þetta er þriðja árið í röð sem Hátíð trjánna er haldin. Flestir listamennirnir hafa verið með okkur frá byrjun, þannig að þeir hafa lagt heilmikið í þetta,“ segir Petrína. Ágóðinn af uppboðinu hefur verið um tíu milljónir og er varið bæði í verkefni hér á landi og erlendis. „Áherslan hjá okkur hérlendis er á því að sporna við ofbeldi gegn börn- um, þá sérstaklega kynferðisofbeldi. Við höfum verið að skoða þátt nýrr- ar tækni og netsins í ofbeldi gegn börnum. Síðan höfum við líka beitt okkur í heilbrigðismálum, til dæmis til að bæta hag barna með geðrask- anir. Ágóðinn af fyrstu Hátíð trjánna rann einmitt til BUGL.“ Samtímalist í þágu barna Ljósmynd/Anton Brink Opnun Frú Vigdís Finnbogadóttir opnaði í gær uppboð á samtímalist í verslun Sævars Karls til styrktar Barnaheillum. EINN áhrifamesti gagnrýnandi heims segir Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur frábæra glæpasögu og gefur bókinni fimm stjörnur af fimm mögulegum en bókin kom út á dögunum í Bandaríkjunum. Gagnrýnand- inn áhrifamikli, Harriet Klaus- ner, segir að bókin sé spenn- andi og skemmtileg aflestrar, ráð- gátan hugvitsamlega smíðuð og les- andinn geti fundið marga hugsanlega sökudólga, jafnvel þeg- ar lögreglan telji sig vera búna að leysa málið öðru sinni. Stórblaðið The New York Times sagði nýverið að Þriðja táknið væri frumleg glæpasaga og það gerði söguna bara áhugaverðari að vera blandin hryllingi. Harriet Klausner, sem er fyrrum bókavörður, er enginn venjulegur gagnrýnandi en fyrir nokkru fjallaði vikuritið Time um hana og sagði hana einn áhrifamesta rit- dómara heims nú um stundir. Hún fái sendar fimmtíu bækur á viku frá bandarískum forlögum sem keppist um að ná athygli hennar. Klausner birti umsögn sína um Þriðja táknið meðal annars á www.amazon.com og www.barnes- andnoble.com. Frumleg saga Þriðja táknið fær góða dóma í USA Yrsa Sigurðardóttir TILNEFNINGAR til íslensku kvik- mynda- og sjónvarpsverðlaunanna, Eddunnar, voru kynntar í gær. Verð- launin verða afhent við hátíðlega at- höfn á Hótel Hilton Nordica hinn 11. nóvember. Kvikmyndin Veðramót hlaut flestar tilnefningar, alls ellefu talsins í sjö flokkum. Sú íslenska kvikmynd sem mestum vinsældum hefur átt að fagna í ár, Astrópía, hlaut hins vegar aðeins tilnefningu fyrir bestu leikstjórn. Tilnefningar í helstu flokkum voru annars á þennan veg: Kvikmynd ársins Foreldrar Leikstjóri Ragnar Bragason Vandræðamaðurinn Leikstjóri Jens Lien Veðramót Leikstjóri Guðný Halldórsdóttir Leikstjóri ársins Guðný Halldórsdóttir fyrir kvikmyndina Veðramót Gunnar B. Guðmundsson fyrir kvikmyndina Astrópía Ragnar Bragason fyrir kvikmyndina Foreldrar Leikið sjónvarpsefni ársins Næturvaktin Leikstjóri Ragnar Bragason. Sýnt á Stöð 2. Sigtið án Frímanns Gunnarssonar Leikstjóri Gunnar Hansson. Sýnt á Skjáeinum. Stelpurnar Leikstjóri Sævar Guðmundsson. Sýnt á Stöð 2. Leikkona ársins í aðalhlutverki Hera Hilmarsdóttir fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Veðramót Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Foreldrar Tinna Hrafnsdóttir fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Veðramót Leikari ársins í aðalhlutverki Gunnar Hansson fyrir hlutverk sitt í sjónvarps- þáttaröðinni Sigtið án Frímanns Gunnarssonar Ingvar E. Sigurðsson fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Foreldrar Pétur Jóhann Sigfússon fyrir hlutverk sitt í sjónvarps- þáttaröðinni Næturvaktin Heimildarmynd ársins Heima Leikstjóri Dean DeBlois Lifandi í Limbó Leikstjórar Hrafnhildur Gunnars- dóttir, Tina Naccache og Erica Marcus. Syndir feðranna Leikstjórar Ari Alexander Ergis Magnússon og Bergsteinn Björgúlfsson Skemmtiþáttur ársins Gettu betur Umsjónarmaður Andrés Indriða- son. Sýnt á RÚV Tekinn 2 Umsjónarmaður Auðunn Blöndal. Sýnt á Stöð 2 Útsvar Umsjónarmenn Þóra Arnórs- dóttir og Sigmar Guðmundsson. Sýnt á RÚV Veðramót með 11 tilnefningar  Tilnefningar til Edduverðlaunanna kynntar í gær  Veðramót Guðnýjar Halldórsdóttur fékk langflestar tilnefningar  Astrópía tilnefnd í einum flokki Morgunblaðið/Ómar Kátar Guðný Halldórsdóttir með leikkonunum Heru Hilmarsdóttur og Tinnu Hrafnsdóttur, en þær voru allar tilnefndar til Edduverðlauna. Tæmandi lista yfir tilnefningarnar er að finna á www.mbl.is Þau gefa verk: Alistair Macintyre, Brian Pilkington, Finnbogi Péturs- son, Helgi Gíslason, Hulda Hákon, Jónas Bragi Jónasson, Sigurður Guðmundsson, Steinunn Þórarins- dóttir, Svava Björnsdóttir, Vignir Jóhannsson og Þórdís Alda Sigurð- ardóttir. 11 listamenn VEÐRAMÓT Guðnýjar Halldórs- dóttur fékk ellefu tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár, meðal annars sem besta kvikmynd og fyrir bestu leikstjórn. „Mér getur ekki annað en litist vel á þetta,“ segir Guðný. Hún er þó ekki alls- kostar sátt við niðurstöður val- nefndarinnar og þykir henni hafa yfirsést nokkuð af því hæfi- leikafólki sem kom að gerð mynd- arinnar. Hvorugur aðalleikara Veðra- móta, þeir Hilmir Snær Guðnason og Atli Rafn Sigurðarson, voru til- nefndir í flokki bestu leikara í að- alhlutverki. „Mér kom þetta á óvart og ekki síður að tónlistin í myndinni væri ekki tilnefnd. Ég var kannski mest hissa á því, þetta er tónlist sem er sérstaklega sam- in fyrir myndina og hefur fengið rosalegt umtal. En maður veit aldrei,“ segir Guðný, en það var Ragnhildur Gísladóttir sem samdi tónlistina fyrir Veðramót. Aðsóknin að myndinni hefur ekki verið eins mikil og vonir að- standenda hennar stóðu til og tekjur af myndinni hafa ekki enn svarað kostnaði við gerð hennar. Guðný telur að átakanlegt umfjöll- unarefni hennar hræði kannski einhverja frá, en segir að það sé óþarfi. „Þetta er skáldskapur með húmor í, þó það sé líka verið að tala um alvarleg mál. Ég hef hitt nokkrar konur sem voru voða hræddar, en þetta er bara mynd um þrjá hippa sem færast of mikið í fang.“ Saknar nokkurra tilnefninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.