Morgunblaðið - 25.10.2007, Page 24

Morgunblaðið - 25.10.2007, Page 24
neytendur 24 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Mestur reyndist munurinn álitlum jeppum eða rúm 90%og fyrir stærri fólksbíla var verðmunurinn um og yfir 80%. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 19 þjón- ustuaðilum á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 23. október sl. Skipting, umfelgun og jafnvægis- stilling á öllum stærðum bíla sem könnunin náði til var dýrust hjá Betra gripi í Lágmúla 9, en oftast ódýrust hjá Borgardekkjum í Borg- artúni 36. Lægsta verð á þjónustu fyrir minni fólksbíla bauð Hjólbarða- verkstæði Vöku, 4.800 kr. Verð fyrir stærri fólksbíla og allt upp í stóra jeppa var hins vegar alltaf lægst hjá Borgardekkjum, nema í tilfelli með- alstórra jeppa en þá var Hjólbarða- verkstæði Sigurjóns með lægsta verðið, 7.000 kr. Nesdekk var síðan með sama verð og Borgardekk fyrir minni jeppa á stálfelgum eða 5.990 kr. Minni verðmunur á Akureyri ASÍ athugaði einnig verð á sömu þjónustu hjá þremur þjónustuaðilum á Akureyri þennan sama dag. Þar reyndist verðmunurinn langtum minni en á höfuðborgarsvæðinu. Þannig mældist verðmunurinn mestur 1.600 kr. fyrir stærri fólks- bíla, eða um 23%. Hjólbarðaverk- stæðið í Réttarhvammi 1 var oftast með lægsta verðið fyrir allar stærðir bifreiða, nema í tilfelli minni fólksbíla með álfelgum, en verðið fyrir þá var lægst hjá Dekkjahöllinni á Drápn- isgötu. Höldur á Dalsbraut 1 voru síðan með lægsta verðið fyrir minni jeppa með álfelgum. 7-9% hækkun frá síðustu könnun Verð á þjónustu hjólbarðaverk- stæða á höfuðborgarsvæðinu hefur að meðaltali hækkað um 7% frá könn- un verðlagseftirlits ASÍ í október á síðasta ári, sem er svipuð meðaltals- hækkun og á milli áranna þar á und- an, 2005 og 2006. Verð á þjónustu fyrir fólksbíla hækkaði um 6-7% frá því í fyrra, en mest var verðhækkunin á umfelgun minni jeppa á álfelgum, eða 9%. Til samanburðar má geta þess að á tíma- bilinu á undan, 2005-2006, hækkaði þjónustan við minni fólksbíla mest í verði eða um rúm 11%. Aðeins er um beinan verðsaman- burð á þjónustu að ræða, en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu sölu- aðila. Allt að 90% verð- munur !"#$ %#  #  %&## !,- !./012.  33 4  5515 $,!06$#/.### 1,!56$#/0"0"   33 4  ."52 2,!.6!5/7.2# 8 33 4  ..5#  33 4  555# ",9 *    7"## 7,8 33 4  !#12$  33 4  !!#"2  '  (!   & )*+ ,- ). 71#1   9 +    :3 ;  +  +   ( $1!,     +17 :+  9<   9 3  1" =  6 %(33  + =   :   :  ( =   9  = +$ ", =   ( ' ( 7$, 8 >! ( !1, ?  -  1#2, 9 6    9* + 89#! =  9  $7  @  9  1#   9  12 %   A !7 9 9  0# :; ; ?! B   "7 A   < 3 =   < #  %,,) := #  >= #            < #  %,,0           1 7/ =   B   !7, A  ( A 3 ( =(  A   < #  %,,) := #  >= #            / %,-  ? ?; @                      0+. +012 2+1  0+*03     +00 +)2 0+31   / %,-  ? ?; @ ! %,-  ? ?; @ 4  "" ? ?; @ / , ""                           !  " #$ % &' ! %,-  ? ?; @ 4  "" ? ?; @ !, ""                    +3 +.10 2+1  0+1.    +2*) .+2 +0*                     +*33 1+3)2 2+33  +3    +*02 .+ 0+31                      +. 3+)** 2+33    +*20     .+0 1+. .+2                   .+)0 +2. 0+33    +.2   .+.2 1+ .+220                .+) +0* 0+33  +31)      1+).2 1+. .+01              3+0 +. .+   1+2.*      3+11 +*2 3+)1                  3+112 +. .+33 3+00     +). +1 3+.3  Ríflega 5.000 króna verðmunur getur verið á þjónustu hjólbarða- verkstæða á höfuð- borgarsvæðinu við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu dekkja. út í loftið BREYTUM heiminum með mat úr nágrenninu (Local eating For Global Change) er slagorð fjöldahreyfing- ar sem gengur undir nafninu 100 mílna kúrinn. Hreyfingin er við- bragð við þeirri staðreynd að dæmigerð máltíð Norður-Amer- íkana hefur ferðast rúma 2.400 km áður en hún endar fyrir framan þá á matarborðinu. Eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. sunnudag er talið að um 30% gróðurhúsaáhrifa megi rekja til framleiðslu og flutn- ings á mat. Þessu vildu kanadísku hjónin Alisa Smith and James MacK- innon berjast gegn þegar þau ákváðu vorið 2005 að neyta ein- göngu matar sem framleiddur væri innan 100 mílna, eða um 161 km, frá heimili þeirra í Vancouver, í heilt ár. Ótrúlega mikið af kartöflum Uppátækið reyndist þeim erfiðara en þau gerðu sér grein fyrir að því er frá greinir á heimasíðu samtak- anna. „T.d. tók það okkur sjö mán- uði að finna bónda innan þessa svæð- is sem ræktar hveiti,“ segja þau. „Á meðan borðuðum við ótrúlega mikið af kartöflum. En með því að fylgja kúrnum út í ystu æsar urðum við margs vísari um hvernig framleiðslu matvæla er háttað. Auðvitað hentar þetta ekki öllum. En kannski gæti það verið hugmynd fyrir einhverja að skipuleggja matarboð með vinum eða vandamönnum þar sem máltíðin væri öll fengin innan 100 mílna.“ Stefán Gíslason, umhverfisstjórn- unarfræðingur og verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi segir 100 mílna kúrinn bjóða upp á ýmsan hliðarávinning. „T.d. héldu hjónin þessari reglu á ferðalögum líka, að neyta eingöngu matvæla sem fram- leidd væru innan 100 mílna frá dval- arstaðnum. Hvar sem þau komu urðu þau því að fara í gegn um heil- miklar rannsóknir og læra um svæð- ið og hvað væri framleitt þar. Það hafði ekki bara loftslagsvæna þýð- ingu heldur öðluðust ferðalögin al- veg nýjan tilgang.“ Þrátt fyrir vandkvæðin sem fylgja kúrnum hefur fjöldi fólks heillast af hugmyndinni og útfært hana með einum eða öðrum hætti. Kúrinn var fljótur að spyrjast út því þau Alisa og James blogguðu um uppátækið. Þeir sem fylgdust með voru duglegir að vísa í bloggið á sínum heimasíð- um og fyrr en varði höfðu margir fjölmiðlar fjallað um kúrinn. Í dag hafa hjónin gefið út bækur og skrif- að greinar um tilraunina. Haldið er úti heimasíðu um hugmyndafræðina sem æ fleiri taka upp á sína arma.     ! "!#$! ,, @  #   * A?@1B  %  $   %  $   %    %  $   $  Allur matur innan 160 kílómetra www.100milediet.org

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.