Morgunblaðið - 25.10.2007, Side 46

Morgunblaðið - 25.10.2007, Side 46
Það er ekki eitt lag sem maður getur hummað, ekki einn krókur sem rífur í mann… 52 » reykjavíkreykjavík Eftir Soffíu Guðrúnu Jóhannsdóttur soffiajo@gmail.com Í GALLERÍ 101 stendur yfir einkasýning Söru Riel. Sýningin er hluti af Sequences-hátíðinni. Ber hún heitið Vélarkostur eða Machinery. Sara er hálfdönsk og hálfíslensk. Hún er nýlega komin aft- ur til Íslands eftir fimm ára nám í Berlín, þar sem hún er virkur umhverfislistamaður, en sú listgrein er lítt þekkt á Íslandi. Í Berlín vann Sara í þrjú ár í virku teymi ásamt fyrrverandi kærasta að umhverfislist. „Verkefnið kölluðum við Gatan og við unnum eftir fyrirfram- gefnum ramma og bjuggum til „manifesto“. Ég hef alltaf unnið til jafns í galleríum og á götunni.“ Aðspurð um sýninguna í 101 og tenginguna við umhverfislist segir Sara lyftuna á sýningunni tengjast bakgrunni hennar og er tenging við félaga hennar. „Lyftur eru oft notaðar af umhverf- islistamönnum, klósett og lyftur er oftast „tögguð og bombuð“,“ segir Sara. Að tagga og að bomba eitthvað, eru hugtök og tungumál umhverfislista- manna. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er um að ræða einhvers konar límmiða-lógó sem umhverf- islistamenn skiptast á. Oft eru þetta teiknuð ab- strakt form, fígúrur eða karakterar. „Ég bauð virkum umhverfislistamönnum að skreyta lyftuna með mér, ég á gott límmiðasafn og þeir komu með límmiðasettin sín og í sameiningu skreyttum við lyftuna. Hún er alvöru, mér líður vel í útúrtögg- uðum lyftum, meðan aðrir segja að svoleiðis lyftur séu sóðalegar og Breiðholtslegar. Lyftan er líka annað og meira, hún er upplifunartæki, margir eru hræddir í henni og sumir þjást af innilok- unarkennd, hvernig er að vera inní tæki og treysta tækinu og eftirlitsmönnunum sem sjá um tækið. Á lyftunni er líka gluggi með útsýni, eitthvað sem yf- irleitt er ekki lyftum.“ Til Kína á næsta ári Sumir tala um umhverfislistamenn eða veggja- krotara af þekkingarleysi. Í dag er orðið algengt að sjá hús eða port í miðbænum fagurlega skreytt af umhverfislistamönnum. Þeir eru ekki með neina sýningarstjóra; það sem þeir gera er oft hrárra og ekki eins stýrt. „Ég get ekki sætt mig við það að Reykjavíkurborg eyði 500 milljónum í að „hreinsa“ krot,“ segir Sara. Í janúar á næsta ári fer Sara til Kína í fjóra mán- uði. „Ég fékk inngöngu í vinnustofudvöl og sýning- arhöld í Xiamen í Kína, á vegum stofnunar sem er rekin af Ineke Guðmundsson, eiginkonu Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns. Ég kýs að fara til Kína án fyrirfram ákveðinna hugmynda um hvernig ég vinn. Ég hef auðvitað með tímanum átt- að mig á eigin sköpun í grófum dráttum og hvert ég leiðist og konseptinu á bak við verkin. Ég tek með mér þessi grunnverkfæri; tölvuna, skissubók, penna, myndavél og vídeóvél. Svo kemur það í ljós hver áhrif umhverfisins hafa á verkin. Það er svo gaman að ferðast því þú ert með það í huga að þú sért í „missjón“ og þú skoðar umhverfið á öðrum forsendum, ég veit ekki hvaða hráefni Kína hefur að bjóða, það kemur í ljós og verður líklega hægt að búa til ýmislegt – er ekki allt „made in China“?“ Eftir dvölina ætlar Sara að halda áfram að vinna í myndlist í Noregi, en kemur svo til baka og hyggst sýna verkin hér heima. Sýningin í Gallerí 101 stendur til 24. nóvember. www.sarariel.com. Skiptst á límmiðum Morgunblaðið/Eggert Listakonan Sara Riel sýnir nú í Gallerí 101, ber sýningin heitið Vélarkostur eða Machinery. Hér er Sara með páfagauknum sínum honum Ísí. útgefandi verið á staðnum, og sá hafi orðið mjög hrifinn af sveitinni. „Hann lofaði okkur engu, vildi bara fá hjá okkur disk. Það væri gaman að heyra frá honum aftur.“ Dýrðin var stofnuð árið 1994, en plata samnefnd sveitinni kom út á síðasta ári. Sveitin hefur spilað töluvert í Bandaríkjunum, og þá sérstaklega á svokölluðum „twee- pop“-hátíðum. „Svo lét hann lét sig bara hverfa, hann talaði ekkert við okkur,“ seg- ir Magnús, en velunnari sveit- arinnar benti þeim á hina lofsam- legu umfjöllun. „Maður varð bara hvumsa þegar maður sá þetta.“ Að sögn Magnúsar voru aðeins á bilinu 30 til 40 manns á tónleik- unum sem fóru fram á Grand Rokk, en Dýrðin átti í samkeppni við ansi stór númer sem spiluðu á sama tíma, svo sem !!!, Mínus, Chromeo og Bloc Party. „Skilj- anlega fór fólk annað í staðinn fyr- ir að kíkja á frekar óþekkta hljóm- sveit,“ segir Magnús í léttum dúr, en bætir við að þó hafi bandarískur Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er nú ekki leiðinleg um- fjöllun, ég verð að segja það. Ég átti ekki von á þessu því ég hélt að það væri enginn blaðamaður í hús- inu þegar við spiluðum,“ segir Magnús Axelsson, bassaleikari Dýrðarinnar, en tónleikar sveit- arinnar á Airwaves fá lofsamlega umsögn á pitchforkmedia.com, einni virtustu tónlistarnetsíðu heims. Blaðamaðurinn, Douglas Wolk, segir meðal annars að sveit- in sé mesta uppgötvun hátíð- arinnar. Lofsamleg umfjöllun Dýrðin Aðeins voru á bilinu 30 til 40 manns á tónleikum sveitarinnar á Grand Rokk, enda stórar hljómsveitir að spila á sama tíma. Dýrðin sögð mesta uppgötvun Airwaves á Pitchforkmedia www.pitchforkmedia.com www.myspace.com/dyrdin www.mmedia.is/dyrdin  Plötubúðin og útgáfufyrirtækið 12 tónar er að sögn hæstánægt með Iceland Airwaves-helgina í ár – eins og svo margir aðrir. Mun dag- skráin í búðinni hafa verið ein sú besta hingað til og til marks um það seldust öll 85 eintökin sem hand- prentuð voru af fyrstu plötu Rökk- urrór, Það kólnar í kvöld, daginn sem sveitin lék í búðinni. Margfeldisáhrif Air- waves víða að finna  Leikstjórinn og handritshöfund- urinn Jóhann Sigmarsson kvað nú vera staddur í Berlín þar sem hann leggur lokahönd á nýtt kvikmynda- handrit sem ku fara í framleiðslu á næsta ári. Jóhann á m.a. að baki kvikmyndina Óskabörn þjóðar- innar en þá hefur hann líka látið mikið að sér kveða í íslenskri stutt- myndagerð og stóð lengi í brúnni á Stuttmyndadögum. Því hefur einn- ig heyrst fleygt að sveitungi Jó- hanns í Berlín, Helgi Björnsson, taki á einhvern hátt þátt í fram- leiðslunni og muni að öllum lík- indum taka að sér burðarhlutverk í myndinni. Jonni Sigmars með nýtt handrit í smíðum  Nýjum dagskrárlið í þunga- rokksþættinum Metal verður hleypt af stokkunum í kvöld á rás 2 kl. 22. Kallast hann Metalhaus mán- aðarins þar sem þungavigtarmenn úr bárujárnsheimum koma og skeggræða sína aðkomu að þessari eðlu list. Fyrsti Metalhausinn er blaðamaður Morgunblaðsins Orri Páll Ormarsson en hann hefur marga fjöruna sopið í þeim fræð- unum. Orri Páll Metalhaus mánaðarins á Metal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.