Morgunblaðið - 25.10.2007, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SÍ
ÐU
ST
U
SÝ
N.
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
DÓMSDAGUR
DJÖFULSINS!
FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS!
eee
Dóri DNA - DV
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR
ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
3 MEISTARAVERK FRUMSÝND
eeee
- Anna Sveinbjarnardóttir,
Morgunblaðiðð
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson,
Morgunblaðið
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
KVIKMYND EFTIR ALEXANDR SOKUROV
KVIKMYND EFTIR FATIH AKIN
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU...
VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND
FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S
SOMETHING
ABOUT MARY"
Las Vegas er horfin...
Jörðin er næst!
Þriðji hlutinn í framtíðartryllinum
með Millu Jovovich í toppformi!
Fór beint á toppinn í USA!
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Resident Evil kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 3:45
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr.
Heartbreak Kid kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 6 - 8 B.i. 14 ára
The Kingdom Síðustu sýn. kl. 6 - 10 B.i. 16 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Resident Evil kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
4 Months Enskur texti kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
The Edge of Heaven Enskur texti kl. 5:40 - 8 B.i. 12 ára
Alexandra Enskur texti kl. 6 B.i. 14 ára
Halloween kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Shoot´em Up kl. 10:20 B.i. 14 ára
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
HVERNIG STÖÐVAR
ÞÚ ÓVIN SEM ER
ÓHRÆDDUR VIÐ
AÐ DEYJA?
eee
- T.S.K., Blaðið
Hasar og adrenalín
flæði frá upphafi
til enda
Ver
ð aðeins
600 kr.
TOPPMYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
Ver
ð aðeins
300 kr.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG ætla að velja helstu og vinsæl-
ustu lögin mín, en líka þau ólíkleg-
ustu, lög sem engum dettur í hug að
sé hægt að setja í stórsveitarbún-
ing,“ segir Bubbi Morthens sem ætl-
ar að halda stórtónleika í Laug-
ardalshöll að kvöldi nýársdags, 1.
janúar næstkomandi. Honum til full-
tingis verður Stórsveit Reykjavíkur
undir stjórn Þóris Baldurssonar,
sem einnig sér um útsetningar.
„Ég hef hugsað lengi um þetta,
hvort það sé gerlegt að setja upp
svona stórsveitartónleika. Svo söng
ég í afmælinu hjá Ólafi Ólafssyni í
janúar og þá var stórsveitin með
mér. Ég hafði aldrei gert mér grein
fyrir því hversu mikill kraftur býr í
svona stórsveit,“ segir Bubbi. „Í kjöl-
farið fór ég að hugsa hvað það væri
gaman að halda svona grand tón-
leika. Þá kom þessi hugmynd upp,
því bæði í Danmörku og Svíþjóð
hafa svona nýárstónleikar oft verið
haldnir, og þetta er líka þekkt í
Bandaríkjunum. Mér datt í hug að
setja upp svona tónleika hér, og
gera þetta að hefð sem ég myndi
starta. Næstu nýársdaga myndu svo
einhverjir aðrir halda nýárstónleika,
hver með sínu nefi.“
Þrjú lög Bubba voru útsett fyrir
stórsveit fyrir afmæli Ólafs í janúar,
en stefnt er að því að spila alls 22 lög
Bubba á nýárstónleikunum. Það er
því ljóst að mikið verk er fyrir hönd-
um. „Þórir sér um að útsetja, ég
mæti bara á æfingar,“ segir Bubbi
og hlær. Þá segir hann líklegt að ein-
hverjir góðir gestir muni koma fram
með honum á tónleikunum, það
muni þó koma í ljós síðar.
„Ég hlakka mikið til því mér
finnst þetta mjög spennandi. Ég ætla
líka að láta taka þetta upp fyrir bæði
DVD og geisladisk. Ég ætla að tjalda
öllu sem til er.“
Eins og margir eflaust muna hélt
Bubbi sérlega veglega afmælistón-
leika í Höllinni þann 06.06.06. Hann
segir þessa tónleika hins vegar af
allt öðrum toga. „Þetta verður meiri
svona gala-stemning.“
Ísbjarnablús góður
Að sögn Þóris Baldurssonar,
stjórnanda Stórsveitarinnar, leggj-
ast tónleikarnir ljómandi vel í hann.
„Við prófuðum þetta fyrir nokkrum
mánuðum síðan og það svínvirkaði.
Það er engin ástæða til að ætla ann-
að en að þetta virki aftur,“ segir
Þórir sem vinnur nú baki brotnu að
því að útsetja lög Bubba.
„Já, ég er byrjaður og það gengur
bara vel. En þetta er mikil handa-
vinna, það þarf að finna þessu réttan
búning og halda forminu sem Bubbi
er með, og bæta svo hljómsveitinni
inn í til þess að styrkja „sándið“ og
fá nýja nálgun. Ég kem að þessum
lögum og reyni að gera eitthvað
spennandi, þannig að þetta sé ekki
leiðinlegt,“ segir Þórir, og bætir við
að fjölmörg lög Bubba henti vel fyrir
stórsveit. „Ísbjarnablús er til dæmis
rosalega skemmtilegur í þessu um-
hverfi, hann hentar vel.“
Aðeins 2.500 miðar
Ísleifur Þórhallsson tónleikahald-
ari segir að ekkert verði til sparað
til að gera tónleikana sem glæsileg-
asta. „Þetta verður ekkert stærra.
Þetta er líka á nýársdag þannig að
það verður ákveðinn viðhafn-
arbragur á þessu,“ segir hann.
„Það er náttúrlega stórmerkilegt
að Bubbi ætli að setja öll helstu lögin
sín í þennan búning. Þarna verður
kóngurinn eins og menn hafa aldrei
séð hann áður. Þannig að þetta verð-
ur mjög glæsilegt. Svo er líka gaman
að sjá hve Bubbi sjálfur er spenntur
fyrir þessu, þetta er náttúrlega hug-
mynd sem fæddist hjá honum. Hann
er líka búinn að taka árið í að und-
irbúa sig.“
Miðasala á tónleikana hefst lík-
lega seinni partinn í nóvember, en
aðeins verða um 2.500 miðar í boði.
„Þannig að við búumst við að það
verði slegist um þá,“ segir Ísleifur.
Kóngurinn aftur í Höllina
Bubbi Morthens og Stórsveit Reykjavíkur með nýárstónleika í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Eggert
Kóngurinn Bubbi Morthens ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.
Þórir
Baldursson
Ísleifur
Þórhallsson
PLATAN Purple
Rain inniheldur
bestu kvik-
myndatónlist
allra tíma, sam-
kvæmt kosningu
sem fór fram
meðal ritstjóra á
tímaritinu Vanity
Fair.
Á Purple Rain
er að finna lög
sem hljómuðu í samnefndri kvik-
mynd árið 1984 en sjálfur Prince lék
m.a. í henni.
Í öðru sæti er Bítlaplatan A Hard
Day’s Night og lögin úr The Harder
They Come í þriðja sæti.
Allar kvikmyndatónlistarplöturn-
ar, sem komust inn á topp fimmtíu
listana, verða afhjúpaðar í næsta
mánuði í sérstöku aukablaði sem
mun heita Movies Rock. Einnig er
von á tveggja stunda heimildarmynd
um kvikmyndatónlist sem verður
sýnd á CBS í desember.
Topp tíu listinn hljóðar annars
svona:
1. Purple Rain
2. A Hard Day’s Night
3. The Harder They Come
4. Pulp Fiction
5. The Graduate
6. Superfly
7. Trainspotting
8. Saturday Night Fever
9. American Graffiti
10. The Big Chill
Besta tónlist
í kvikmynd
Fjólublátt regn
Purple Rain.
Prince Töff tónlistarmaður.