Morgunblaðið - 06.01.2008, Side 8
8 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar
2008 og 2009
FERÐAÞJÓNUSTA
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til
eflingar ferðaþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti
vegna skerðingar á veiðiheimildum.
Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni til
atvinnusköpunar í ferðaþjónustu á ofangreindum svæðum.
Umsækjendur geta verið sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki
og er hámarksstyrkur til hvers verkefnis 8 milljónir kr.
Verkefnin verði unnin á árunum 2008-2009 og verður styrkurinn
greiddur í tvennu lagi, helmingur hvort ár. Seinni greiðslan er háð
árangursmælingu í samræmi við ákvæði í umsókn, en hver umsækjandi
gerir tillögu að árangursmælikvarða fyrir viðkomandi verkefni.
Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa
verkefna á sköpun nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin
geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki til menntunar eða rannsókna.
Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt
er að nálgast á vefsíðum Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is)
og Ferðamálastofu (www.ferdamalastofa.is)
Umsóknum skal skila til Byggðastofnunar, Ártorgi 1,
550 Sauðárkróki eða Ferðamálastofu, Lækjargötu 3,
101 Reykjavík fyrir 5. febrúar 2008.
A da da og hvar er svo þessi gæi sem kom mér í stuð?
VEÐUR
Þeir hljóta að vera glaðir þessadagana, eigendur húsa við neð-
anverðan Laugaveg, sem nokkuð
hafa verið til umræðu að undan-
förnu. Þeir ætluðu að fara að rífa
húsin með ærnum tilkostnaði og
byggja nýtt hús.
Þá kom borgarstjórinn í Reykja-vík, Dagur B. Eggertsson, til
sögunnar og bauðst til þess að láta
skattgreiðendur í Reykjavík greiða
kostnað við að fjarlægja húsin.
Niðurstaðan afmálinu eins
og það stendur nú
er þessi:
Húsin verðafjarlægð en á
kostnað skatt-
greiðenda í
Reykjavík en ekki eigendanna!
Hvílík stjórnvizka!
Hafa húsafriðunarmál ekki veriðuppáhaldsmál Samfylkingarinn-
ar? Borgarstjórinn virðist hins vegar
hafa misskilið þetta tiltekna mál.
Baráttan hefur snúizt um að varð-veita óbreytta götulínu.
Hún verður ekki varðveitt meðþeirri ákvörðun borgarstjóra að
flytja húsin annað.
Borgarstjórinn hefur greinilegagengið í lið með eigendunum.
Báðir ætla að fjarlægja húsin. Dagur
ætlar bara að taka það að sér eig-
endunum að kostnaðarlausu.
Ætli það sé alveg föst regla hjáSamfylkingunni að standa aldr-
ei við neitt af því, sem flokkur lofar,
þegar hann er kominn í aðstöðu til
að ráða?
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Greiðasamur borgarstjóri
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
!"#
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
$%%
$%%!
&# "
&# "
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
*$BCD
! " *!
$$
B *!
'( )" ("
# !"*+ !
<2
<! <2
<! <2
'#")&, -&%./ ,!&0
2 E
#$
%&$
'
!
$ %
6
2
(
'
# ! #
B
#
"
) *
$ % &
1$,, !22&,!"* 3
! *!-&%4 & 5
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Guðrún Emilía Guðnadóttir | 5.
janúar 2008
Rifin niður í kassa
Hvað ætli það séu
mörg hús í geymslum
út um allt land, sem
átti svo að reisa síðar.
Síðan er aldrei fjár-
magn til að fram-
kvæma það.
Ég er algjörlega andvíg niðurrifi
gamalla húsa,
en geri mér grein fyrir því að sum
hús eru ónothæf. Þá á bara að
henda þeim, annars á að láta þau
standa.
Meira: milla.blog.is
Lilja G. Bolladóttir | 5. janúar 2008
Pabbahelgar …
Ekki er nú öll vitleysan
eins. Ég sit hér kl. 2.30
um nótt, þegar ég ætl-
aði að vera búin að
snúa sólarhringnum
við … og svo ætlar Ást-
þór að bjóða sig aftur
fram til forseta. Hefur maðurinn ekki
ennþá skilið að þjóðin vill hann ekki
og hvernig er þetta með lýðræðið? Er
þetta ekki hluti af lýðræðinu, þ.e. að
við höfum hafnað honum tvisvar, og
er honum þá stætt á því að bjóða sig
fram í þriðja skiptið??
Meira: liljabolla.blog.is
Sveinn Ólafsson | 5. janúar 2008
Sandárbókin
… Sandárbókin –
pastoralsónata eftir
Gyrði Elíasson fékk mig
til að hugsa um margt.
Einhverra hluta vegna
fór ég að hugsa um alla
aðra hluti en það sem
þar var skrifað þegar ég las hana.
Ekki fyrir það að hún hlaupi um víðan
völl. Þvert á móti er hún stutt, skörp,
auðlæs og segir allt í fáum orðum.
Hugurinn kallar upp Walden eftir
Henry David Thoreau, sem Gyrðir vitn-
ar reyndar beint til …
Meira: sveinnolafsson.blog.is
Sigurður Mar Halldórsson | 5. janúar
Brjóst í bleikum
römmum
Þegar ég kynntist
krabbameinsbrans-
anum fyrir rúmu ári,
kom það mér verulega á
óvart að í bæklingum,
kynningarefni og fjöl-
miðlaumfjöllun um
brjóstakrabbamein voru nær ein-
göngu myndir eða teikningar af kon-
um með hinn „fullkomna“ líkama.
Þetta pirraði mig því ég hélt að þessi
tiltekni bransi væri laus við að halda
á lofti röngum staðalímyndum sem
hafa reyndar farið í taugarnar á mér
mjög lengi. Og æskudýrkun á vart
heima í umfjöllun um sjúkdóm sem
oftast hittir fyrir konur sem komnar
eru af léttasta skeiði …
Konur eru eilíflega minntar á þá
staðreynd að þær séu ekki nægilega
fallegar, tískuheimurinn og fjölmiðlar
sjá til þess. Það þarf ekki að fjölyrða
um hve slæm áhrif þetta hefur á
sjálfsmynd margra kvenna og er jafn-
vel uppspretta óhamingju sem er ann-
ars með öllu ástæðulaus.
Ég var búinn að pirra mig á þessu
öllu saman í tæpt ár þegar ég frétti af
því að Ljósið, endurhæfingarmiðstöð
fyrir krabbameinsgreinda og aðstand-
endur þeirra, biðlaði til listamanna að
gefa verk sem hægt væri að selja í
fjáröflunarskyni. Þá fékk ég hugmynd
sem ég ámálgaði strax við góða vin-
konu mína. Hugmyndin var sumsé að
taka myndir af öllum stærðum og
gerðum af brjóstum og setja í bleika
ramma. Vinkonu minni leist mjög vel
á enda eigum við það sameiginlegt að
fá stundum klikkaðar hugmyndir og
hún bauðst strax til að finna handa
mér konur til að mynda. Ég var satt að
segja ekki bjartsýnn á að mikið kæmi
út úr því, kannski tvær. En raunin varð
sú að konur tóku að streyma til mín í
stúdíóið og vildu gjarnan fá að taka
þátt í þessu verkefni. Þetta eru allt
glæsilegar og stoltar konur og ég er
þeim óendanlega þakklátur …
Ég hef fengið góðar viðtökur við
þessu tiltæki enda eru myndirnar afar
fallegar þó ég segi sjálfur frá enda
ekki von á öðru með jafn fallegt mynd-
efni. Ég hef hug á að halda áfram í
krossferð gegn staðalímyndum og
sýna fram á þá staðreynd að allar
konur eru glæsilegar, bara ef þær
ákveða það sjálfar, þær þurfa ekki að
líta út eins og súpermódel til að vera
fallegar á ljósmynd.
Meira: marason.blog.is
BLOG.IS