Morgunblaðið - 06.01.2008, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Helsti
stjórnar-andstöðu-flokkur
Kenýa krafðist þess á
föstu-daginn að
forseta-kosningarnar verði
endur-teknar í landinu, innan
3 mánaða. Fram-bjóðandi
flokksins, Raila Odinga,
tapaði í kosn-ingum sem
fram fóru þann 27.
desember. Þá var Mwai
Kibaki endur-kjörinn for-seti.
Stjórnar-andstaðan heldur að
svikum hafi verið beitt við
talningu at-kvæða.
Stjórn-völd í Kenýa neita að
verða við beiðni um nýjar
forseta-kosningar.
Tals-maður ríkis-stjórnar
Kenýa líkti beiðni
stjórnar-andstöðunnar við
fjár-kúgun og að stjórnvöld í
Kenýa myndu aldrei fara að
þannig kröfum.
Er-lendir
stjórnar-erindrekar eru
komnir til Kenýa til þess að
reyna að miðla málum en
blóðug átök hafa ríkt eftir
niður-stöður kosn-inganna.
Að minnsta kosti 350 manns
hafa látið lífið og mikill fjöldi
hefur flúið heimili sín.
Krefjast nýrra kosn-inga
REUTERS
Stuðnings-menn stjórnar-andstöðu-flokksins.
Margrét Lára
Viðarsdóttir,
knatt-
spyrnu-kona
hjá Val, var á
gamlárs-dag
valin
íþrótta-maður
ársins 2007 með nokkrum
yfir-burðum af Sam-tökum
íþrótta-fréttamanna.
„Þetta er tvímæla-laust
mesta viður-kenning sem ég
hef hlotið á mínum ferli til
þessa. Engin verð-laun hafa
komið mér jafn-mikið á óvart
og þessi,“ sagði hin 21 árs
gamla Margrét Lára
Viðarsdóttir. Hún er fyrsta
knattspyrnu-konan sem
hlýtur þessa viður-kenningu,
sem var af-hent í 52. sinn í
gær, og fjórða konan sem
kosin er íþrótta-maður
ársins.
Íþrótta-
maður
ársins 2007
Margrét Lára
Ofsa-hræðsla í flug-vél
Aðfara-nótt föstu-dags
þurfti flug-vél Icelandair að
lenda á Egilsstaða-flugvelli
eftir að 2 lendingar-tilraunir
mis-heppnuðust í Keflavík.
Far-þegar segja að
ofsa-hræðsla hafi gripið um
sig, fólk fór með bænir og
aðrir grétu.
Um 50 far-þegar vildu ekki
fara með vélinni til
Keflavíkur í nótt heldur
dvelja áfram á Egilsstöðum
og jafna sig.
Eldri maður sem var um
borð í vélinni sem var að
koma frá Las Palmas, fékk
lost og eftir að vélin lenti á
Egilsstöðum var hann fluttur
á sjúkra-hús.
Sonur Bhuttos tekur við
Bilawal Bhutto, 19 ára
sonur Benazir Bhutto,
fyrr-verandi
forsætis-ráðherra Pakistans,
tekur við for-mennsku í
Þjóðar-flokknum. Benazir var
myrt 27. desember.
Bilawal, sem er
ný-græðingur í stjórn-málum
heldur áfram námi sínu við
Oxford-háskóla, en faðir
hans Asif Ali Zardari verður
stoð og stytta sonar síns við
for-mennsku í flokknum.
Kjör-stjórn í Pakistan
hefur frestað fyrir-huguðum
þing-kosningum, sem áttu
að vera 8. janúar, til 18.
febrúar.
Flokkur Bhuttos mót-mælir
og segir að verið sé að
reyna að hindra
kosninga-ósigur
stjórnar-sinna í Pakistan.
Stutt
Að gömlum og góðum sið
gerði Reykjavík Reykjavík
lista yfir allt það besta sem
stóð upp úr á árinu.
Besta íslenska platan var
valin Við og við, frum-raun
Ólafar Arnalds, en Back to
Black með Amy Winehouse
þótti besta er-lenda platan.
Rúmensk kvik-mynd kom
sá og sigraði, 4 luni, 3
saptamani si 2 zile, eða 4
mánuðir, 3 vikur og 2 dagar
eftir Cristian Mungiu.
Leik-sýning ársins var hins
vegar Endstation Amerika
sem Alþýðu-leikhúsið í
Berlín sýndi í
Borgar-leikhúsinu.
ÞÞ: Í fátæktar-landi eftir
Pétur Gunnarsson þótt
besta íslenska bókin.
Topplistar
2007
Alþjóð-leg mann-réttinda-samtök hvetja
Sam-einuðu þjóðirnar til þess að senda
gæslu-lið til Sri Lanka til þess að verja
al-menning í borgara-styrjöldinni sem þar ríkir.
Stjórn-völd á Sri Lanka hafa sagt upp
vopnahlés-samningi við Tamíl Tígra frá og
með 16. janúar.
Tamíl Tígrar hófu vopnaða bar-áttu fyrir
sjálf-stæði sínu árið 1983. Árið 2002 var
vopnahlés-samkomulag undir-ritað, en samt
eru mis-þyrmingar dag-legt brauð og er talið
að yfir 5000 manns hafi týnt lífi á síðustu 2
árum. Líklegt þykir að of-beldi á Sri Lanka eigi
eftir að aukast í kjöl-far upp-sagnar
samningsins.
Íslendingar og Norð-menn hafa starf-rækt
sam-norrænu eftir-lits-sveitirnar SLMM frá
árinu 2002, og hefur þeim tekist að
lág-marka mis-þyrmingar al-mennra borgara.
Því eftir-lits-starfi verður nú sjálf-hætt, að
sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkis-ráðherra.
Borgara-styrjöld
á Sri Lanka
REUTERS
Olíu-verð á heims-markaði
hefur hækkað mikið. Á
síðustu 12 mánuðum hefur
olíu-tunnan hækkað úr 60
Bandaríkja-dölum í 100
dali.
Þetta mun hafa mikil og
víð-tæk áhrif á
þjóðar-búskapinn.
Vegna hækkun-arinnar
hækkaði N1 bensín-verð á
bensín-stöðvum sínum á
fimmtu-dag. Líterinn
hækkaði um 1,5 krónur og
díselolíu-líterinn um 0,50
krónur. Almennt bensín-verð
í sjálfs-afgreiðslu hjá N1
kostar því 134.40 krónur
og díselolíu-líterinn 136.90
krónur.
Mikil hækkun á olíu
Morgunblaðið/Kristinn
Mike Huckabee og Barack
Obama sigruðu óvænt í
for-kosningunum í Iowa í
Banda-ríkjunum sem fram
fóru aðfara-nótt föstu-dags.
Demókratinn Obama
sigraði með 37,58%
atkvæða, John Edwards fékk
29,75%, og Hillary Clinton
fékk 29,47% atkvæða, en
hún hefur yfir-leitt mælst með
svipað eða meira fylgi og
Obama í könnunum.
Niðurstöðurnar í Iowa hafa
takmarkað gildi þar sem
kjósendur í ríkinu eru
tiltölulega fáir. Þær eru þó
sagðar hafa táknrænt gildi og
geta orðið sigurvegurunum
lyftistöng í mikilvægari
forkosningum sem
framundan eru.
Næstu forkosningar fara
fram í New Hampshire þann
8. janúar.
Obama sigraði
for-kosningar
REUTERS
Barack Obama fagnar sigri
ásamt konu sinni Michelle.
Netfang: auefni@mbl.is