Morgunblaðið - 06.01.2008, Page 10

Morgunblaðið - 06.01.2008, Page 10
10 SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Freystein Jóhannsson og Orra Pál Ormarsson freysteinn@mbl.is, orri@mbl.is F relsið er kjarninn í þeim mannréttindum sem Bandaríkjamenn sækja í stjórnarskrá sína, sem segir alla menn jafna. Þeir eru enda oft í hávegum hafðir fyrir þetta frelsi, en fram- kvæmdin hefur löngum kastað skugga yfir ýmsa minnihlutahópa, sem fá hvorki að njóta frelsisins til fulls né jafnréttis. Nú síðustu árin hefur gagnrýni á mannréttindaást Bandaríkjamanna farið vaxandi og þar á stríðsrekstur þeirra í öðrum löndum sinn þátt og stríðið gegn hryðjuverkamönnum en framganga Bandaríkjamanna erlend- is og heima fyrir, sérstaklega eftir „11. september“ hefur líka haft áhrif á almenn mannréttindi Bandaríkja- manna og eiginlega má tala um hug- arfarsbreytingu í því sambandi; breytingu sem hefur grafið undan því þjóðfélagi, sem alla jafna sækir kraft sinn í frelsið. Hvítir jafnari en aðrir Stjórnarskráin segir alla Banda- ríkjamenn jafna, en hvíti maðurinn hefur verið jafnari en hinir og ræður lögum og lofum í Bandaríkjunum. Alltaf saxast nú á limina eftir því sem minnihlutahópunum vaxa réttindi um hrygg, en í sögulegu tilliti er ekki svo langt síðan hvíti maðurinn kúgaði blökkumenn og indíána í fullum rétti – sínum rétti. Leið blökkumanna frá þrælahaldi til þegnréttar hefur verið þyrnum stráð; borgarastyrjöld og önnur átök og uppþot varða hana og þótt margt hafi áunnizt, er enn tals- vert í land, sem m.a. má sjá í minni hlutfallslegri menntun og kosninga- þátttöku blökkumanna. Mannréttindasamtök hafa bent á, að fjöldi blökkumanna á dauðagang- inum bendi til þess að þar sem svo víða annars staðar halli verulega á blökkumenn í samanburði við þá hvítu. Þeir eru 12% þjóðarinnar, en telja 34% fanga. Amnesty Internatio- nal kunngerði rannsókn 2003 þar sem fram kom að þeir sem myrtu hvíta voru líklegri til þess að verða teknir af lífi en þeir sem myrtu blökkumenn. Af 845, sem teknir voru af lífi, höfðu FRELSIÐ FYRIR ÖRYGGISGLER Reuters Á vaktinni Bandarískur strandgæzlumaður á hryðjuverkaæfingu við Frelsisstyttuna í New York. Að mati margra brjóta öryggisráðstafanir Bandaríkja- stjórnar í bága við hugsjónina um frelsi og mannréttindi. Íslendingar hafa fengið að kynnast á eigin skinni hranalegri lagafram- kvæmd í Bandaríkjunum, þar sem mannréttindum er vikið til hliðar. Það er einmitt rauði þráðurinn í þeirri gagnrýni sem Bandaríkjastjórn sætir og er sögð ganga svo langt að hún grafi undan grundvallargildum bandarísks samfélags. MANNRÉTTINDI Í BANDARÍKJUNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.