Morgunblaðið - 06.01.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.01.2008, Blaðsíða 19
orkuvopna, þar á meðal til landa í pólitísku ójafnvægi, útbreiðsla smit- sjúkdóma, hlýnun loftslagsins og svo framvegis. Það væri menningarlegt sjálfsmorð fyrir Vesturlönd að vinna ekki saman til að finna leiðir til að taka á þessu einstaklega erfiða vandamáli. Í fjórða lagi fylgir NATO ekki að- eins mikilvæg hernaðargeta, sem dregur úr álaginu á bandarískan her- afla í viðsjárverðum heimi; bandalag- ið er einnig mun trúverðugri vett- vangur til marghliða samstarfs um utanríkismál en bæði Evrópusam- bandið og Sameinuðu þjóðirnar. Mikilvægi samskipta Í fimmta lagi – og það skiptir sennilega mestu – sýnir einföld mannleg sálfræði að einstaklingar, sem sniðganga samskipti við aðra, hafa veikan skilning á raunveruleik- anum. Einstaklingar, sem aldrei eru gagnrýndir af þeim sem þeir treysta og deila grundvallargildum með, eiga erfitt með að halda andlegu jafnvægi. Það sama á við um þjóðir. Það sem gerir bandamenn ómissandi við að móta skilvirka utanríkisstefnu er hæfni þjóða með svipað hugarfar til að halda hver annarri niðri á jörðinni, en eins og við höfum því miður séð eru fallvölt heimsveldi ófær um að halda jafnvægi og bregðast hratt við í varasömu, alþjóðlegu umhverfi án hennar. Í ljósi þess að 60% af at- kvæðum Huckabees í Iowa komu frá mótmælendum er enn líklegt að frambjóðandi repúblikana verði Mitt Romney, John McCain eða Rudy Giuliani. Allir eru þeir harðir stuðn- ingsmenn stríðsglaðrar utanríkis- stefnu Bush og allir myndu þeir reka kosningabaráttu sína á þeirri for- sendu að „óttinn“ eigi meiri ítök í bandarískum kjósendum en „vonin“. Það getur vel verið rétt. Obama er greinilega hæfileikarík- ur stjórnmálamaður, sem mun, verði hann kjörinn forseti, sennilega reyna að fara nýjar leiðir í málum þar sem Bandaríkjamenn hafa verið ergilega stefnufastir, sérstaklega hvað varðar Ísrael. En aðrir frambjóðendur, sér- staklega Hillary Clinton, eru líklegri til að leggja ríka áherslu á tengslin yfir Atlantshafið í utanríkismálum og þá sérstaklega á að endurnýja tengslin við þær þjóðir, sem best hafa dafnað og eru í bestri stöðu til að hjálpa Bandaríkjunum að takast á við þau vandamál, sem fyrir liggja og gætu stefnt stöðugleika í heiminum í voða. Höfundur er prófessor við lagadeild New York University. Nýjasta bók hans kom út í fyrra og nefnist The Matador’s Cape: America’s Reckless Response to Terror. ©Project Syndicate, 2008. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 19 » Eflaust vildum við öll geraallt sem í okkar valdi stendur til að bjarga jörðinni – nema þá að breyta lífsháttum okkar. Það er nú meinið.“ Karl Sigurbjörnsson biskup í predikun sinni í Dómkirkjunni á nýársdag. » Það er allt og ekki neitt ogkannski stundum erfitt að setja fingurinn á hvað mann- fræðingar gera ekki.“ Dr. Gunnar Þór Jóhannesson mannfræð- ingur, sem eftir helgina flytur fyrirlest- urinn „Er mannfræði vefnaðarvara? Vett- vangsrannsóknir í ljósi tengslahyggju“ á vegum Mannfræðifélags Íslands. » Við megum ekki við stjórn-málum óttans, sem leiða stjórnmálamenn að þeirri nið- urstöðu að eina leiðin til að sýn- ast ákveðnir í öryggismálum sé að kjósa, hegða sér og tala eins og George W. Bush.“ Barack Obama , forsetaframbjóðandi demókrata, beindi þessum orðum að keppinaut sínum, Hillary Clinton. » Að tryggja nýrri kynslóðfarsæla framtíð í heimalandi er í reynd sjálfstæðisbarátta þessarar aldar.“ Ólafur Ragnar Grímsson , forseti Íslands, í nýársávarpi sínu. » Lykilorð okkar tíma er sjálf-bærni, sjálfbær þróun og nýting, og á jafnt við um auð- lindir sjávar sem aðrar.“ Geir H. Haarde forsætisráðherra í ára- mótaávarpi sínu. » Kennarar voru barðir tilhlýðni í síðustu kjarasamn- ingum og þeir læra af reynsl- unni.“ Kristín Helgadóttir kennari í aðsendri grein í Morgunblaðinu um niðurstöður PISA-könnunarinnar, sem birtist fyrir jól, og stöðu og kjör nemenda og kennara í íslensku þjóðfélagi. » Þessi ráðning kemur mér áóvart.“ Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir aðstoð- arorkumálastjóri um ráðningu Guðna A. Jóhannssonar prófessors í embætti orku- málastjóra. » Því hver maður hefur nefni-lega sögu að segja.“ Jón Ársæll Þórðarson , umsjónarmaður viðtalsþáttarins Sjálfstæðs fólks á Stöð 2, aðspurður hvort hann væri ekki að verða uppiskroppa með viðmælendur. Ummæli vikunnar Reuters Glaðbeittur Barack Obama og fjöl- skylda veifa til stuðningsmanna eft- ir að hann sigraði í forkosning- unum um forsetaframbjóðanda demókrata í Iowa. að. Það getur augljóslega verið erf- itt að láta þetta tvennt fara saman. Slæmur aðbúnaður í kínverskum verksmiðjum kemur ekki í veg fyrir að ungt fólk fari tugmilljónum sam- an úr sveitahéruðum, þar sem enga vinnu er að hafa, í borgir í von um auknar tekjur og betri lífskjör. Iðu- lega standast kjörin ekki vænt- ingar, en það eru margir um hituna og auðvelt að ráða einhvern annan í stað þeirra, sem eru með múður. Í Kína eru opinber stéttarfélög, en þau eru fremur verkfæri til að hafa stjórn á verkalýðnum en að gæta réttinda hans. Sjálfstæð stéttar- félög voru bönnuð 1982 þegar Sam- staða var upp á sitt besta í Póllandi. Kínversk yfirvöld óttuðust að stétt- arfélög yrðu vettvangur ólgu í land- inu. Samkvæmt nýju lögunum verður nú erfiðara að reka starfsmenn, en óttast er að það verði einnig erf- iðara að hafa eftirlit með aðstæðum á vinnustöðum, fyrst um sinn í það minnsta. Óttast er að fyrirtæki, sem vilji koma í veg fyrir aukinn kostn- að og minnkandi gróða vegna nýju laganna, muni herða öryggisgæslu þannig að eftirlitsmenn og blaða- menn eigi erfiðara með að fletta of- an af vafasömum og ólöglegum vinnubrögðum. Sími: 414 4000 hreyfing@hreyfing.is www.hreyfing.is/nyhreyfing 8 vikna námskeið fyrir karlmenn í glæsilegu nýju húsnæði Hreyfingar í Glæsibæ. Innifalið í námskeiði er aðgangur að spa-aðstöðu, útipottum og gufum. Fyrir karla sem vilja komast í gott form í góðum hópi. Hjól og tækjaþjálfun 2x í viku og þjálfað með púlsmæli sem gerir þjálfunina markvissari og hvetjandi. Frábær þjálfun, mikill sviti og góð stemning. Vigtun og mælingar. Hafðu samband í síma 414-4000 eða með tölvupósti afgreidsla@hreyfing.is Allar nánari upplýsingar á www.hreyfing.is Hefst 14. janúar NÝ HREYFING & nýtt Karlaþrek Ný heilsulind opnar 7. janúar í Glæsibæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.