Morgunblaðið - 06.01.2008, Blaðsíða 55
Lítið um kynlíf og eiturlyf
Meðal mótleikara Craigs í mynd-
inni eru Nicole Kidman, Sam Elliott
og Eva Green, en einnig hin barn-
unga Dakota Blue Richards, sem
valin var úr hópi tíu þúsund breskra
stúlkna til að þreyta frumraun sína
á hvíta tjaldinu. Craig segir það
hafa verið stórskemmtilegt að leika
á móti henni.
„Hún er sannur fagmaður,“ full-
yrðir hann. „Ég reyni reyndar alltaf
að tala eins við börn og fullorðna, ég
reyni kannski að blóta aðeins minna
innan um börnin. Við Dakota vorum
reyndar með veðmál á tökustað þar
sem ég átti að borga henni pund
fyrir hvert blótsyrði sem ég léti út
úr mér. Ég var orðinn stórskuldug-
ur undir lokin …“
Og Craig var ekki bara hrifinn af
bókum Pullmans, sem hann segir
stórgóðar … „og ekki bara af því að
ég leik í myndinni“. Hann segir
myndina einnig líta vel út.
„Hún er fyrir alla fjölskylduna,
engin spurning. Það er mjög lítið
um kynlíf, eiturlyf og rokk og ról í
þessari,“ segir hann og hlær.
„En sagan er frábær og það sem
heillaði mig við myndina er að verið
er að fjalla um alvöru viðfangsefni
sem koma öllum við en auk þess
verður áhorfendum skemmt og þeir
hræddir líka.“
Óþolandi á tökustað
Craig hefur að undanförnu sífellt
tekið meiri þátt í þeim myndum
sem hann leikur í, til dæmis með því
að framleiða einhverjar þeirra.
Hann segist hafa áhuga á að hafa
meiri áhrif á þær myndir sem hann
leikur í en leikstjórn heilli sig þó
ekki.
„Leikstjórar eru fólkið sem fram-
leiðendurnir hella sér yfir hvenær
sem er sólarhringsins ef þeir halda
að verkefnið gangi ekki sem skyldi.
Það heillar mig ekki,“ segir hann og
hlær.
„En ég reyni bara að vera meira
með í öllu framleiðsluferli mynda
sem ég leik í. Ég mæti ekki bara á
tökustað og fer að tökum loknum.
Ég vil fylgjast með öllu og er
örugglega óþolandi í vinnuferlinu.
En ég tek bara þátt í verkefnum
sem ég hef trú á og þá vil ég vera
með frá öllum hliðum. Annars vil ég
frekar sleppa því.“
Starf leikara í Hollywood-
myndum fellur oft í skuggann fyrir
umfjöllun um persónuleika og útlit
leikaranna sjálfra. Craig hefur ekki
farið varhluta af því.
„Ég tek ekkert mark á slíku,“
segir hann þegar hann er inntur
eftir viðbrögðum við því að hafa
verið nýlega valinn best klæddi
maður heims af einhverju tímarit-
inu. „Þó ég sé sæmilega klæddur
núna hefðirðu átt að sjá mig í morg-
un. Sú múndering hefði ekki tryggt
mér titilinn „Best klæddi maður í
heimi“. En ég hef fengið fullt af fal-
legum fötum gefins vegna starfs
míns og sérstaklega eftir að ég varð
Bond, ég klæðist þeim bara ekki
alltaf.“
Craig segist einnig ekki spenntur
fyrir að bera sín einkamál á torg.
„Ég á fjölskyldu, konu og barn,
en það er hlutur sem ég hef engan
áhuga á að ræða við fjölmiðla.“
Á tökustað „Við Dakota
vorum reyndar með veðmál á
tökustað þar sem ég átti að
borga henni pund fyrir hvert
blótsyrði sem ég lét útúr mér.
Ég var orðinn stórskuldugur
undir lokin …“ Dakota Blue
Richards, Craig og leikstjór-
inn Chris Weitz.URHUGI
birta@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 55
Þjóðleikhúsið
um helgina
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri.
Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Ógleymanleg, ljúfsár og launfyndin
„Það er líka sjaldgæft að verða vitni að jafn
kraftmikilli sýningu og þessari, jafn miklum
galsa, jafn fumlausum tökum á forminu, jafn
afdráttarlausri túlkun, jafn tilgerðarlausri en
jafnframt útpældri sviðsmynd…“
Þröstur Helgason Lesbók MBL, 29. des.
Ívanov
e. Anton Tsjekhov. Aðlögun og leikstjórn: Baltasar Kormákur
fös. 4/1 & lau. 5/1 örfá sæti laus
Tækjasjóður
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2008
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki
til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna.
Við úthlutun úr Tækjasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu
Rannsóknasjóðs og eru eftirfarandi atriði lögð til grundvallar:
• Að tækin séu mikilvæg fyrir framfarir í rannsóknum
á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
• Að fjárfesting í tækjabúnaði sé til uppbyggingar nýrrar
aðstöðu sem skapi nýja möguleika til rannsókna eða að
tæki tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.
• Að tækin séu staðsett á rannsókna- og háskólastofnunum.
• Að samstarf verði um nýtingu tækja milli stofnana eða milli
stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
• Að áætlanir um kostnað og fjármögnun á kaupunum
séu raunhæfar.
Framlag Tækjasjóðs greiðir aðeins hluta kostnaðar við
fjárfestinguna.
Ítarlegar upplýsingar um Tækjasjóð, styrkina og
umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rannís
(www.rannis.is).
Fáðu úrslitin
send í símann þinn