Morgunblaðið - 09.10.2008, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Bankakreppan
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ENGAR viðræður voru hafnar í gær milli skilanefnd-
ar Landsbankans og aðstandenda tónlistar- og ráð-
stefnuhússins við Reykjavíkurhöfn. Stefán Her-
mannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar-TR,
segir að fullkomin óvissa ríki um framhald verksins.
Um einkaframkvæmd er að ræða, samkvæmt samn-
ingi milli Austurhafnar-TR og eignarhaldsfélagsins
Portus, sem til helminga er í eigu Landsbankans og
Nýsis. Austurhöfn er í eigu ríkisins, sem á 54%, og
Reykjavíkurborg á 46% hlut.
„Á meðan ekkert hefur verið ákveðið halda fram-
kvæmdir áfram en það á alveg eftir að fara yfir mál-
in og taka ákvarðanir. Við erum að fara yfir stöð-
una,“ segir Stefán, sem rætt hefur við Portus og
Íslenska aðalverktaka um stöðuna.
Bygging hússins er um það bil hálfnuð og að sögn
Stefáns var búið að gera samninga um flesta þá
verkþætti sem eftir eru. Aðalverktakar hafi verið
búnir að semja við undirverktaka, sem í flestum til-
vikum eru erlend fyrirtæki.
Framkvæmdir við bílastæðahús tónlistarhússins
eru einnig hafnar. Upphaflega voru áætluð 1.600
bílastæði og þar af tilheyrðu tónlistarhúsinu tæplega
500 stæði. Óvissa er um stokk á þessu svæði og því
var ákveðið að skipta bílastæðahúsinu í áfanga. Er
nú byrjað á þeim áfanga sem tengist tónlistarhúsinu,
alls 700 stæði, og á því verki að vera lokið um leið og
sjálft húsið verður tekið í notkun. Bílastæðasjóður
Reykjavíkur var skuldbundinn til að kaupa 250
stæði. Þá er fullkomin óvissa um að fyrirhugaðar
höfuðstöðvar Landsbankans rísi á þessu svæði, sem
og hótel í tengslum við tónlistarhúsið.
Gengið var frá samningum um byggingu hússins á
sínum tíma, árið 2003, og síðan samið um rekstrar-
styrki að framkvæmdum loknum. Eigandi hússins er
Portus en ríki og borg skuldbundu sig síðan til að
greiða árlega ákveðið framlag samkvæmt samningi í
35 ár. Er það því mikið hagsmunamál fyrir Portus að
ljúka framkvæmdinni til að ná inn rekstrarstyrkjum.
Reykjavíkurborg á sem fyrr segir 46% hlut í Aust-
urhöfn. Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, segir
borgaryfirvöld ekki hafa rætt um frekari aðkomu
þeirra að verkefninu. Borgin hafi lagt fram sína að-
gerðaráætlun um rekstur og eignir sínar. Hann
muni ekki tjá sig um einstök verkefni. bjb@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Framkvæmdir Samkvæmt áætlun átti tónlistar- og ráðstefnuhúsið að vera tilbúið árið 2010. Verkið er nú
hálfnað og framkvæmdir eru einnig hafnar við bílastæðahús. Lengi hefur verið beðið eftir að húsið rísi.
Tónlistarhús í óvissu
Framkvæmdir hálfnaðar og verktakar búnir að gera
samninga um flesta þá verkþætti sem eftir eru
„ÞAÐ er augljóst mál að við þurfum
að hugsa alla okkar vetraráætlun
upp á nýtt nú þegar öll ytri skilyrði
hafa versnað til muna,“ segir Andri
Már Ingólfsson, forstjóri og aðaleig-
andi Primera Travel Group.
„Það eru líkur á því að við munum
fella niður allt okkar prógram í Kar-
íbahafinu,“ segir Andri Már og bend-
ir á að þær ferðir séu bæði langar og
dýrar, en við núverandi aðstæður
séu forsendur slíkra ferða brostnar.
Aðspurður segir Andri Már nokk-
ur hundruð Íslendinga þegar hafa
pantað ferðir til Karíbahafsins og
fari svo að ferðirnar verði felldar nið-
ur muni fyrirtækið endurgreiða við-
skiptavinum sínum ferðirnar. „Við
munum hins vegar halda öllum okk-
ar grunnferðum sem skipta máli, s.s.
ferðum til Kanaríeyja, borgarferð-
um til Prag og skíðaferðum svo fátt
eitt sé nefnt.“
Að sögn Andra hefur fyrirtækinu
þegar borist nokkuð af fyrirspurnum
frá Íslendingum sem spyrjist fyrir
um það hvort þeir geti hætt við fyr-
irhugaðar utanlandsferðir.
Að sögn Andra er aðeins lítill hluti
starfsemi Primera Travel Group
hérlendis, því Ísland er aðeins um
7% af heildarumsvifum fyrirtækis-
ins. „Þannig að það er ekkert vanda-
mál fyrir okkur að styðja við starf-
semina hér heima meðan hún á undir
högg að sækja, en það er alveg ljóst
að við munum skera hana niður yfir
vetrarmánuðina meðan við bíðum
átekta og sjáum hvernig mál
þróast,“ segir Andri Már og tekur
fram að það myndi ekki koma sér á
óvart ef breyting yrði á umhverfi ís-
lensku ferðaþjónustunnar á næstu
mánuðum.
Morgunblaðið/Ómar
Breyta
vetrar-
áætlun
Fólk er að hætta við
utanlandsferðir
Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Fyr-
irhugað er að reisa gagnaver í
nágrenni Árness í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi. Eigendur fyrir-
tækisins Greenstone og fulltrúar
sveitarfélagsins skrifa á morgun
undir viljayfirlýsingu um lóð fyr-
ir hús undir starfsemi fyrir-
tækisins.
Eigendur Greenstone hafa
fengið vilyrði hjá Landsvirkjun
um að minnsta kosti 50 MW orku
til reksturs fyrirtækisins. Lóðin
er í nágrenni virkjana í Þjórsá.
Sigurður Jónsson sveitarstjóri
segir að netþjónabúið geti skapað
20 ný störf og jafnmörg afleidd
störf. Slíkt fyrirtæki yrði mikil
lyftistöng fyrir sveitarfélagið og
örugglega gott innlegg í þjóðar-
búið, til framtíðar litið.
Útvega lóð
fyrir gagnaver
„OKKAR stefna er sú að þau verð
sem við gáfum út í lok ágúst gilda
til lok ágúst á næsta ári. Það er al-
gerlega stefna okkar og hefur eng-
in umræða farið fram um neitt ann-
að þó það fari um mann þegar
krónan fellur,“ segir Þórarinn
Ævarsson, framkvæmdastjóri
IKEA. Hann segir IKEA ætla að
reyna að halda verðinu niðri eins
lengi og hægt sé. Veiking krón-
unnar setji óhjákvæmilega strik í
reikninginn en reynt verði að ríg-
halda í gamla verðið og treysta því
að bjartari tímar séu framundan.
„Við erum með stóran lager og
erum að taka til í eigin ranni og
reyna að trimma okkur af,“ segir
Þórarinn og segir að þótt róðurinn
hafi þyngst verði reynt að stefna
fram líkt og ákveðið hafi verið. Þó
hafi fundist fyrir því að fólk haldi
að sér höndum meira nú en áður.
Óbreytt verð
hjá IKEA
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR mun taka
við öllum íbúðalánasöfnum þeirra
viðskiptabanka sem þess óska,
einnig þeim sem eru yfir hámarks-
lánum sjóðsins og veðhlutfalli. For-
stjóri Íbúðalánasjóðs telur líklegt
að sjóðurinn taki einnig við lánum
sem kunna að vera í vanskilum í
bönkunum.
Starfsfólk Íbúðalánasjóðs og fé-
lagsmálaráðuneytis vinnur að því
þessa dagana að undirbúa yfirtöku
íbúðalána banka. Guðmundur
Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs,
segir að málin skýrist smám saman
en tekur fram að enn sé mörgum
spurningum ósvarað. Hann segir
mikilvægast að ákvörðun hafi verið
tekin en úrvinnsla gæti tekið tvær
til þrjár vikur. Í gær hafði ekki
borist ósk frá skilanefndum Lands-
bankans eða Glitnis um sölu á
íbúðalánasöfnun en ein lánastofnun
spurst fyrir um möguleikana.
Óháð fjárhæð og veðhlutfalli
Reiknað er með að tekið verði
við eignasöfnunum í heilu lagi, jafnt
innlendum lánum sem erlendum, og
án tillits til fjárhæðar láns eða veð-
setningar húsnæðis. Hámarkslán
Íbúðalánasjóðs eru nú 20 milljónir
en í söfnum bankanna kunna að
vera lán upp á tugi milljóna út á
verðmætar eignir. Sjóðurinn lánar
að hámarki 80% af verðmæti íbúða
en bankarnir höfðu um tíma rýmri
skilmála, lánuðu allt upp undir
100%. Það þýðir að búast má við
því að í lánasöfnum þeirra séu yfir-
veðsettar eignir enda hefur íbúða-
verð ekki fylgt verðlagsþróun að
undanförnu. Guðmundur segir að
Íbúðalánasjóður þekki þannig að-
stöðu vel enda hafi hún oft komið
upp á landsbyggðinni.
Ekki er gert ráð fyrir því að ein-
stakir lántakendur í banka sem
starfar áfram geti óskað eftir láni
hjá Íbúðalánasjóði til að endur-
fjármagna íbúðarlán þar.
Að sögn Guðmundar er líklegt að
tekið verði við íbúðalánum í söfnum
bankanna, þótt þau kunni að vera
komin í vanskil. Segir Guðmundur
að unnið sé að athugun á þeim
þætti í samvinnu við félagsmála-
ráðuneytið.
Guðmundur telur að yfirfærsla
lánanna geti ekki haft það í för
með sér að greiða þurfi þinglýs-
ingargjald og stimpilgjöld af
skuldabréfunum að nýju. Það gæti
hins vegar þurft að gera við skuld-
breytingar.
Auka þarf eigið fé
Íbúðalánasjóður tvöfaldast ef
hann tekur við íbúðalánum allra
bankanna og breytist. Þarf hann að
auka eigið fé sitt. Guðmundur segir
að það geti gerst með eiginfjár-
framlagi ríkissjóðs eða með því að
taka við íbúðalánum bankanna með
afföllum.
Frá þessu hefur ekki verið geng-
ið.
Taka við heilum lánasöfnum
Íbúðalánasjóður hefur ekki fengið umsókn frá skilanefndum viðskiptabanka um yfirfærslu lána
Ef til kemur verða öll íbúðalán viðkomandi banka tekin yfir, óháð upphæð og veðhlutfalli
Reiknað er með því að úrræði sem
Íbúðalánasjóður hefur til að að-
stoða húsnæðiskaupendur í
greiðsluerfiðleikum gildi um lánin
sem sjóðurinn tekur væntanlega
við af bönkunum. Unnt er að leita
eftir samningum um greiðsludreif-
ingu vanskila, skuldbreytingu,
tímabundna frestun á greiðslum
og lengingu lánstíma. Unnið er að
undirbúningi fleiri úrræða.
Úrræði Íbúðalánasjóðs miðast
við að óvænt atvik hafi komið upp
hjá lántakanda sem breyta upphaf-
legum forsendum. Fólk er hvatt til
að leita strax aðstoðar, áður en
vanskil verða veruleg.
Ef greiðsluvandi er óverulegur
er unnt að leysa hann með samn-
ingi um greiðsludreifingu vanskila
í allt að átján mánuði. Lögfræði-
svið Íbúðalánasjóðs annast samn-
inga.
Ef greiðsluvandi er verulegur er
skuldurum ráðlagt að leita til við-
skiptabanka síns. Þá kemur til
álita að skuldbreyta vanskilum á
lánum við Íbúðalánasjóð, fresta
greiðslum eða lengja lán. Íbúða-
lánasjóður setur meðal annars þau
skilyrði fyrir þessum úrræðum að
greiðsluerfiðleikar stafi af óvænt-
um tímabundnum erfiðleikum
vegna veikinda, slysa, minni at-
vinnu, atvinnuleysis eða af öðrum
ófyrirséðum atvikum.
Skuldbreyting felst í því að
breyta vanskilum í nýtt lán, til 5 til
15 ára.
Íbúðalánasjóði er heimilt að
veita einstaklingum frestun á lána-
greiðslum í allt að þrjú ár. Sjóðnum
er heimilt að lengja upphaflegan
lánstíma um allt að 15 ár þegar
lántaki á í greiðsluerfiðleikum að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Tvö síðastnefndu úrræðin eru háð
því að lánin séu í skilum.
Unnt að leita samninga um vanskil