Morgunblaðið - 09.10.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 43
www.laugarasbio.is
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
Troddu þessu í pípuna
og reyktu það!
-L.I.B.,TOPP5.IS/FBL - DÓRI DNA, DV
-T.S.K., 24 STUNDIR- H.J., MBL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
M Y N D O G H L J Ó Ð
FRAMTÍÐAR
SPENNUTRYLLIR Í
ANDA BLADE RUNNER
LUKKU LÁKI ER MÆTTUR
AFTUR Í SKEMMTILEGRI MYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi!
S.V. MBL
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 6
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8Sýnd kl. 6
Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi!
HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND SMÁRABÍÓI,
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
“AFRAKSTURINN ER MÖGNUÐ
MYND Í ALLT ÖÐRUM GÆÐAFLOKKI
EN NOKKUR ÍSLENSK SPENNUMYND
(EÐA ÞÁTTARÖÐ) HINGAÐTIL.”
-B.S., FRÉTTABLAÐIÐ
“MÖGNUÐ MYND SEM HELDUR
ÁHORFENDUM ALLANTÍMANN”
-S.M.E., MANNLÍF
“REYKJAVÍK ROTTERDAM ER ÁVÍSUN
UPP Á ÚRVALSSKEMMTUN”
-DÓRI DNA, DV
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Burn After Reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Pineapple Express kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Mamma Mia kl. 5:30 - 10:15 LEYFÐ
Grísirnir þrír kl. 3:45 LEYFÐ
Lukku Láki kl. 4 LEYFD
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
“ENN EIN SNILLDIN FRÁ COEN-BRÆÐRUM”
-T.S.K., 24 STUNDIR
- L.I.B.,TOPP5.IS/FBL
GÁFUR ERU OFMETNAR
- S.V., MBL - Þ.Þ., DV
„ SPRENGHLÆGILEGUR
GAMANFARSI ÞAR SEM HEILT
HLAÐBORÐ AFLEIKURUM FER
Á KOSTUM“
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
KOLSVÖRT KÓMEDÍA FRÁ JOEL OG ETHAN COEN.
ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRUM
“NO COUNTRY FOR OLD MEN”
OG “BIG LEBOWSKI”
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
“REYKJAVÍK - ROTTERDAM ER EIN
BESTA ÍSLENSKA MYNDIN EVER.
SKOTHELDUR ÍSLENSKUR KRIMMI”
-T.S.K., 24 STUNDIR
-IcelandReview
LISTASAFN Reykjavíkur hefur sett
af stað nýja sýningaröð. Þar er „varp-
að ljósi á tengsl safnsins og almenn-
ingsrýmisins utan þess“, eins og segir
í sýningarskrá þeirra Libiu Castro og
Ólafs Ólafssonar sem ríða á vaðið.
Hér velta Libia og Ólafur fyrir sér
hlutverki einstaklingsins í samfélag-
inu, birtingarmyndum einstaklinga í
fjölmiðlum, málefnum líðandi stundar
og möguleikum listasafnsins á að
vera hluti af þessu öllu. Unnið er með
myndbönd sem sýnd eru á veggjum
og skjám og fylgja þeim heyrnartól.
Sýningin er verk í vinnslu og breyt-
ist yfir sýningartímann, hún var opn-
uð 18. september og stendur til 2.
nóvember. Hluti hennar var unninn
fyrirfram svo salurinn væri ekki tóm-
ur á opnun, en síðan halda listamenn-
irnir áfram að taka viðtöl og setja inn
á sýningartímanum. Það var því ekki
sama fólkið sem mætti mér á veggj-
unum í fyrstu heimsókn og annarri. Í
fyrra skiptið voru andlitin kunnugleg
í umræðu dagsins, en í það síðara
önnur og minna þekkt. Heim-
ilislausir, stöðumálavörður, verk-
fræðingur, farandverkakona; ein-
staklingar með hver sína sýn á
samfélagið.
Myndatakan er stundum á skjön
við viðfangsefnið eins og til að undir-
strika þá staðreynd að hún er aldrei
hlutlaus, fáránleg diskóljós, útlínur
sýndar eins og viðkomandi vilji ekki
þekkjast og glansfilmu er troðið ofan
á höfuð eins viðmælandans. Flest við-
tölin eru þó frekar hlutlaus í tökum,
en listamennirnir leiða þá fólk áfram
með spurningum sem rugla viljandi
saman persónulegum og almennum
málefnum og skapa þannig óvænt
sjónarhorn.
Þessi leikur með myndatöku og
innihald viðtalanna ásamt sjónrænum
þætti myndanna sem kallast á við
hefðbundin málverk gæðir sýninguna
lífi. Viðtölin eru áhugaverð á sam-
mannlegum grundvelli, það er nú
bara þannig að líf allra er spennandi
viðfangsefni. Eins vinnur sýningin
einkar vel með rýmið.
Hér er stuðlað að því að setja ein-
staklinginn, hvern og einn, í sviðs-
ljósið, með þann boðskap að leið-
arljósi að öll séum við merkileg og
höfum sitthvað fram að færa. Ég er
ekki frá því að auk þess að skapa
áhugaverða sjónræna upplifun komi
sýningin einnig slíkum skilaboðum
áleiðis til áhorfenda, sem í framhald-
inu verða virkari í samfélaginu.
Opið stefnumót
Morgunblaðið/Kristinn
Verk í vinnslu „Hér er stuðlað að því að setja einstaklinginn, hvern og einn, í sviðsljósið, með þann boðskap að leið-
arljósi að öll séum við merkileg . . .“, segir meðal annars í dómi um sýninguna Allir gera það sem þeir geta.
Ragna Sigurðardóttir
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús
Til 2. nóvember. Opið alla daga frá kl. 10-
17 og til kl. 22 á fim. Aðgangur ókeypis.
Allir gera það sem þeir geta,
Libia Castro og Ólafur Ólafsson
bbbbn
AÐSTANDENDUR tilraunaverk-
efnisins Þjóðleiks komu saman á
þaki Þjóðleikhússins á dögunum og
bentu í austur. En Þjóðleikur er
verkefni sem mun eiga sér stað á
Austurlandi í vetur og
miðar meðal annars að því að
efla leiklistarstarf ungs fólks og
hvetja til nýsköpunar í íslenskri
leikritun.
Þrjú glæný 45 mínútna leikrit
voru skrifuð sérstaklega fyrir
Þjóðleik af leikskáldunum Bjarna
Jónssyni, Sigtryggi Magnasyni og
Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bach-
mann.
Þjóðleikhúsið mun veita listræn-
um stjórnendum Þjóðleiks-hópanna
aðstoð í formi faglegrar ráðgjafar
og námskeiða bæði í Reykjavík og
á Austurlandi. Þar verða teknir
fyrir þættir eins og leikmynda-
hönnun, ýmiss konar sviðstækni,
leikstjórn og skipulag æfingaferlis.
Þjóðleikhúsið er aðili að Vaxt-
arsamningi Austurlands og hefur
samvinnu við menningarmiðstöð
Fljótsdalshéraðs og fleiri aðila á
Austurlandi um skipulag og fram-
kvæmd þessa nýstárlega verkefnis.
Þjóðleik mun síðan ljúka með
allsherjar leiklistarhátíð ungs fólks
í vor. ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Austur á bóginn Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri og aðstandendur Þjóðleiks stefna austur.
Þjóðleikur
fyrir
ungt fólk