Morgunblaðið - 19.10.2008, Side 1
1 9. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
286. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem erSUNNUDAGUR
KEYRA
DROSSÍUR
UM SJÓ
OG LAND
Sprengjuhöllin, Ríó
tríóið og gamla píanóið
STUTT
Í BROSIÐ
HJÁ ÞEIM
BÁÐUM
TENGSL: FEÐGARNIR
HELGI P. OG SNORRI
[ ]SONIA RYKIEL Konan sem prjónaði siginn í tískuheiminn fyrir fjórum áratugum
Dorrit Moussaieff
Morgunblaðið/Kristinn
Lánsöm þjóð Dorrit Moussaieff segir Íslendinga vera lánsama. „Það sem sker úr um hversu fólk hefur það gott er ekki hvað það á, heldur hvað það er,
hvað það veit og hvað það gerir – hvernig manneskjur það er. Og við munum koma út úr þessari kreppu sterkari og betri en áður.“ »14
EFNAHAGSMÁL»6 BANDARÍKIN»8 UMHVERFISMÁL»4
Er umhverfisvernd málaflokkur sem við höfum ekki efni á
nema þegar vel árar?
Fjármálakreppan er talin geta valdið því að umhverfis-
mál lendi neðst á forgangslista ríkisstjórna næstu árin.
Bent er á að í þeim aðstæðum þar sem lifibrauði fólks er
beinlínis ógnað sé það vissulega ágengara við náttúruna.
Umhverfismálin ættu hins vegar ekki að víkja að mati
Rögnvaldar Sæmundssonar, forstöðumanns rann-
sóknamiðstöðvar HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum.
„Það er hvorki efnahagslega né siðferðislega skynsamlegt
að henda þeim gildum sem snúa að umhverfisvernd, lýðræði, jafnrétti eða aukinni
menntun fyrir róða þó að herði að,“ segir hann.
Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild HR, segir að þegar harðni á daln-
um skipti réttindi á borð við mannréttindi og félagsmálarétt aftur máli.
Allt er vænt sem vel er
grænt – alla vega í góðærinu
Persónulegar árásir Johns McCains á
Barack Obama virðast engu skila
honum nema hríðminnkandi fylgi.
Obama hefur haft minnst sjö pró-
sentustiga forskot á McCain und-
anfarnar tvær vikur og sumir
stuðningsmanna hans eru þegar
farnir að fagna.
Sagan sýnir að varasamt er að
afskrifa forsetaframbjóðendur
þótt aðeins séu rúmar tvær vikur
til kosninga. Og McCain er þekkt-
ur fyrir að gefast aldrei upp. Úr-
slitin eru fjarri því að vera ráðin.
Hann er umdeildur, Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn sem sumir
segja að geti orðið bjarg-
hringur Íslands. Fyrir
nokkrum árum voru
uppi háværar raddir um
að IMF væri orðinn óþarf-
ur en hann er mjög í
sviðsljósinu núna
vegna fjármálakrepp-
unnar, þegar lán
hafa óvænt reynst
vera með gjald-
daga.
Bjarghringur
eða bölvun
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
STJÓRNVÖLD, fyrrverandi
stjórnendur viðskiptabankanna og
eftirlitsstofnanir eru á einu máli
um að neikvæð afstaða erlendra
seðlabanka til lánveitingar til Ís-
lands hafi orðið íslensku bönkun-
um að falli. Augljóst hafi verið að
erlendu seðlabankarnir höfðu
samráð sín á milli um þessa af-
stöðu.
„Árás breska fjármálaeftirlitsins
á Kaupþing í London gerði svo út-
slagið og þá var ljóst að þetta var
búið,“ segir heimildamaður úr
bankageiranum.
Þetta kemur fram í fréttaskýr-
ingu í Morgunblaðinu í dag. Þar
kemur einnig fram að gífurleg verð-
mæti úr eignasöfnum bankanna er-
lendis séu þegar farin í súginn.
Bankarnir hafi neyðst til þess að
selja áður dýrmætar eignir á
brunaútsölu og beinlínis gefa aðrar,
m.a. í Bretlandi, á Írlandi, í Finn-
landi og Svíþjóð. Þeir fjármunir
sem séu tapaðir skipti hundruðum
milljarða króna.
900 milljarða í plús
Glitnir, Landsbankinn og Kaup-
þing áttu eignir upp á tæplega
14.500 milljarða króna hinn 30. júní
sl. og skuldir þeirra námu þá um
13.600 milljörðum króna. Eignir
þeirra þá voru þannig tæpum 900
milljörðum króna umfram skuldir.
Ekki liggur ljóst fyrir hversu
mikils virði eignir bankanna þriggja
eru nú, en sú hætta er vissulega
talin fyrir hendi að verðmæti eigna-
safna bankanna haldi áfram að
dragast saman.
Eignir bankanna | 12
Þeir felldu
íslensku
bankana
Gífurleg verðmæti
þegar glatast og enn
er hætta á rýrnun
Verg landsframleiðsla
Íslands 2007
1.300 milljarðar kr.
Of snemmt að
afskrifa hann