Morgunblaðið - 19.10.2008, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Rigningardagar og ískaldar nætur,
það er samt alveg hægt að vera sætur.
Opið 13–18 í dag
Komdu í heimsókn
hreyfst úr stað við þau átök, sem maðurinn
lýsti að hefðu átt sér stað.
Tæknideildarmennirnir sáu að lakið á
rúmi herbergisfélagans var þakið blóð-
blettum, allt frá höfðagafli að fótgafli.
Blettirnir voru þétt saman og náðu allt inn
á mitt lakið. Engar eyður voru, eins og
hlytu að hafa komið ef tveir menn hefðu
staðið á milli hins slasaða og rúms her-
bergisfélagans, því þá hefði blóðið lent á
þeim, en ekki rúminu.
Hringlaga far
Lögreglumennina var farið að gruna að
frásögn mannsins væri ekki sannleikanum
samkvæm. Ekkert benti til að þarna hefðu
tveir menn ráðist að honum. Sárin á háls-
inum voru öll á þeim stað, að hann hefði
getað veitt sér þau sjálfur, með naglbítn-
um.
Meiðsli á höfði mannsins, sem hann sagði
að hefðu komið þegar hann var sleginn
með járnstöng í höfuðið, voru öðruvísi en
ætla mátti. Og svo tóku menn eftir að á
enni hans var hringlaga far. Það passaði
nákvæmlega við boltann sem hélt kjafti
naglbítsins saman. Það var því ljóst að
naglbítnum hafði verið slegið af afli í enni
mannsins, en ekki járnstöng.
Þá bar maðurinn engin merki þess að
honum hefði verið haldið niðri með valdi,
þ.e. engir marblettir á handleggjum eða
fótum. Og ekkert mar sást undir efri vör
hans, en slíkt mar myndast gjarnan þegar
haldið er fast fyrir munn fólks, eins og
maðurinn sagði árásarmennina hafa gert.
Allt bar þetta að sama brunni. Árás-
armennirnir tveir voru uppspuni. Maðurinn
hafði sjálfur veitt sér áverkana með nagl-
bítnum í örvinglan. Vinnufélagar hans
sögðu hann hafa glímt við þunglyndi og
heimþrá.
Maðurinn var farinn af landi brott þegar
niðurstöðurnar lágu fyrir. Málið var þá lát-
ið niður falla.
rsv@mbl.is
T
æknideild lögreglunnar barst
beiðni frá lögreglunni á Seyð-
isfirði um aðstoð við vettvangs-
rannsókn á ætlaðri líkamsárás á
starfsmann Impregilo í að-
albúðum Kárahnjúkastíflu. Þar var 43 ára
Kínverji með áverka á hálsi og höfði og
hélt því fram að tveir menn hefðu ráðist á
sig, þar sem hann lá í rúmi sínu í búðum
verkamanna.
Aðkoman var ljót. Maðurinn var meðvit-
undarlaus og koddi hans alblóðugur. Þegar
hann var kominn til meðvitundar sagði
hann sögu sína: Hann vaknaði um nóttina
við umgang í herberginu og sá tvo menn
róta í fataskápnum. Hann spurði þá hvað
þeir væru að gera en þeir spurðu á móti, á
kínversku, hvort hann ætti peninga. Hann
neitaði og þeir réðust á hann. Annar barði
hann með járnstöng í höfuð, en hinn kleip
hann með naglbít í hálsinn. Hann missti
meðvitund.
Engin fótspor
Herbergisfélagi mannsins kom að her-
bergi þeirra læstu kl. 8 um morguninn, sá
manninn liggja alblóðugan í rúmi sínu og
kallaði á hjálp.
Lögreglan hóf þegar rannsókn. Hvernig
höfðu árásarmennirnir komist inn í læst
herbergið? Lykill hins slasaða lá óhreyfður
uppi á hillu. Rifa reyndist vera á glugga,
en engin ummerki um að menn hefðu farið
þar inn eða út. Engin dragför eftir fatnað í
ryklagi gluggafagsins og karmsins, engin
fótspor fyrir utan og engin fingraför.
Herbergið var um sjö fermetrar og í því
stóð fataskápur og rúmin tvö. Aðeins voru
40-50 cm á milli rúmanna.
Engin merki voru um að áhöld hefðu
verið notuð til að ljúka upp læstum dyr-
unum og engin fingraför fundust. Engin
blóðug fótspor voru á gólfinu, eða blóðslóð.
Við hlið blóðugs koddans lá langur nagl-
bítur. Blóðslettur voru á veggnum við rúm-
ið og á ýmsum munum, sem höfðu ekkert
Farið Hringlaga far á enni mannsins var
greinilega eftir boltann sem hélt naglbítnum
saman. Hann hafði slegið sig sjálfur.
Blóðið Ef einhver hefði staðið yfir manninum
í rúminu hefðu blóðslettur ekki dreifst um allt
rúm herbergisfélagans.
Hvaða árásarmenn?