Morgunblaðið - 19.10.2008, Page 22
22 Tíska
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Franski fatahönnuðurinn Sonia Rykiel fagnaði 40 ára afmæli tísku-
húss síns á nýafstaðinni tískuviku í París. Hún hélt upp á afmælið
með tískusýningu og matarboði með 500 af helstu stjörnum dægur-
og tískuheimsins. Sýningin hófst klukkan ellefu um kvöldið eftir að
gestir höfðu gætt sér á margréttuðum hátíðakvöldverði. Biðin var
vel þess virði og olli sýningin á vor- og sumarlín-
unni 2009 ekki vonbrigðum. Hún
sýndi margar af þeim flíkum sem
tískuhúsið er þekkt fyrir eins og
svartar buxnadragtir, glitrandi alpa-
húfur og síðast en ekki síst mikið af
prjónafatnaði en hönnuðurinn hefur verið
kallaður „drottning prjónaflíkanna“.
Parísardaman Sonia Rykiel opnaði fyrstu
búðina á Rue de Grenelle á hinum frjálsa
vesturbakka í maí á uppreisnarárinu
1968. Áður hafði hún hannað prjónaföt
fyrir búðina Lauru frá 1962. Hún varð
fræg fyrir síðar prjónapeysur sínar og
afslappaðan stíl sem er nú þekktur um
allan heim. Einkennismerki hennar
eru svartur litur, rendur, blúndur, se-
malíusteinar og peysur með áletr-
unum. ingarun@mbl.is
Sonia
Sameiningar sveitarfélaga -
hvað hefur áunnist,
hvert stefnir?
Ráðstefna haldin á Sauðárkróki 23. okt. nk.
Ráðstefnustjóri: Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Dagskrá:
Kl. 13:00 Tónlistaratriði í boði Tónlistarskóla Skagafjarðar
Kl. 13:15 Setning og ávarp:
Kristján L. Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála
Kl. 13:20 Sveitarfélagið Skagafjörður – saman í 10 ár
Áskell Heiðar Ásgeirsson, sviðsstjóri Markaðs- og þróunarsviðs
Kl. 13:40 Er sameining nauðvörn eða sóknarleikur?
Gunnar Bragi Sveinsson, formaður stjórnar SSNV
Kl. 14:00 Sameining á þenslutímum:
Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð
Kl. 14:20 Sameining sveitarfélaga. Fortíð, nútíð og framtíð:
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri
Kl. 14:40 Kaffi
Kl. 15:00 Stefna stjórnvalda í sameiningarmálum og aðkoma
Jöfnunarsjóðs svf.:
Kristján L. Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála
Kl. 15:20 Sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga í sameiningarmálum
Halldór Halldórsson, formaður stjórnar sambandsins
Kl. 15:40 Pallborðsumræður: Stjórnandi
Þorvaldur Jóhannesson framkv.stj. SSA
Þátttakendur:
Karl Björnsson, framkvæmda stjóri Sambands ísl. sveitarfélaga
Gunnar Svavarsson, alþingis maður og sveitarstjórnarm. í Hafnarfirði
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar
Páll Brynjarsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar
Kl. 16:40 Samantekt og ráðstefnuslit:
Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Kl. 16:50 Léttar veitingar
Í tilefni af því að í ár eru liðin 10 ár frá því að 11 sveitarfélög í Skagafirði sameinuðust í eitt, Sveitarfélagið Skagafjörð, mun sveitarfélagið
í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga gangast fyrir ráðstefnu þann 23. október n.k. Ráðstefnan verður haldin í sal Frímúrara,
að Borgarmýri 1 á Sauðárkróki og hefst kl. 13:00. Að ráðstefnunni lokinni verða léttar veitingar í boði sveitarfélagsins. Ráðstefnan er
öllum opin, án endurgjalds. Skráning í síma 455 6000 eða í tölvupósti skagafjordur@skagafjordur.is.
Vesturröst
Laugaveg 178
S: 551 6770
www.vesturrost.is
Verð frá 29.500
Digital eða með lykli
BYSSUSKÁPA-
TILBOÐ
Smekklegt Hár
fyrirsætanna var
greitt í anda So-
niu sjálfrar.
Kabarett
Pípuhattur
kemur í stað
alpahúfunnar.
Fréttir á SMS