Morgunblaðið - 19.10.2008, Blaðsíða 32
32 Myndalbúmið
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Barnapía Átján ára og stolt barnapía Bryn-
dísar Jakobsdóttur söngkonu. Hún var jafn-
yndisleg þá og nú.
Í góðum gír Með sítt að aftan um
jólaleytið heima í Safamýrinni.
Brúðkaupsdagurinn Svona vorum við Kristján
tryllingslega hress á brúðkaupsdaginn 8. júní 2001,
enda í þann veginn að skera brúðkaupstertuna.
Með pabba Ég og Guðjón Ingi, bróðir, svolítið luraleg, ásamt teinréttum
föður okkar, Guðjóni Sigurbjörnssyni, í kirkjugarðinum á Stokkseyri.
Þjóðhátíð 2003 Með Gaua í Gíslholti á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum árið sem ég fékk að halda
þjóðhátíðarræðuna.
V-dagurinn Baksviðs með Þorgerði Katrínu á V-deginum í
Borgarleikhúsinu fyrir nokkrum árum, þar sem margar konur
töluðu um ónefnuna á sér.
Frumsýning Ég ásamt Nönnu Kristínu Magnúsdóttur,
leikkonu, Ingunni Ásdísardóttur, leikstjóra, og Jórunni
Sigurðardóttur, leikhússtjóra Kaffileikhússins, þar sem
leikrit mitt, Bannað að blóta í brúðarkjól, var sett upp.
G erður Kristný, rithöfundur,hefur skrifað á annan tugbóka fyrir börn og full-orðna; skáldsögur, fræði-
bækur, ljóðabækur, smásögur, ævisögu
og leikverk. Hún hlaut Bókaverðlaun
barnanna fyrir Mörtu smörtu og Bók-
menntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir
Bátur með segli og allt. Fyrir bók sína
Myndin af pabba – Saga Thelmu hlaut
Gerður Blaðamannaverðlaun Íslands
2005.
Hennar nýjasta verk draugasagan
Garðurinn, sem kom út í vikunni, er
hugsuð fyrir 10 ára börn og eldri.
Gerður er gift Kristjáni B. Jónassyni
formanni Félags íslenskra bókaútgef-
enda. Þau eiga synina, Skírni, bráðum
fjögurra ára, og Hjalta 9 mánaða.
Lítill prestur Í þessari múnderingu mætti Skírnir, sonur minn,
í brúðkaup systur minnar fyrr á árinu.
Skírn Með vinkonum mínum, Hönnu Rúnu Vigfúsdóttur og
Mörtu Maríu Jónasdóttur í skírn Hjalta í janúar 2008.
ÆSKAN
FJÖLSKYLDAN
STARFIÐ
Brúðhjónin
„Séra“ Skírnir
Synir mínir Skírnir lítur bróður sinn Hjalta fyrst augum.
Gerður
Kristný
VINIRNIR
Krullóttur krakki
Í góðum f́élagsskap