Morgunblaðið - 19.10.2008, Blaðsíða 45
Minningar 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Elsku pabbi minn, ég vil
kveðja þig með þessum ljóðlín-
um Gustavs Frödings:
Og maðurinn reikar um heiminn
hér,
og hulið er öllum, hvaðan hann ber,
og hulið er öllum, hvert hann fer,
og hulið er öllum, hvað lífið er.
(Þýð. Magnús Ásgeirsson)
Klara.
HINSTA KVEÐJA
✝ Óskar ÞórirGuðmundsson
fæddist 8. júlí 1920.
Hann andaðist á
Droplaugarstöðum
fimmtudaginn 25.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðmundur
Guðmundsson sjó-
maður, f. 7. nóv-
ember 1885, d. 14.
október 1921, og
Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja, f. 12. jan-
úar 1887, d. 2. des-
ember 1975. Systkini Óskars
voru: Elín, f. 16. júlí 1912, d. 12.
júní 2003, Steinunn, f. 9. júlí 1915,
d. 28. apríl 1936; Guðrún, f. 23.
desember 1916, d. 2. maí 2008;
Þórunn, f. 7. júlí 1918, d. 8. sept-
ember 2005; og Guðmundur, f. 29.
apríl 1922, d. 21. apríl 2006. Syst-
ur sammæðra: Sigrún Lár-
usdóttir, f. 9. september 1910, d.
2. febrúar 1977, og Þórdís Jóna
Sigurðardóttir, f. 15. október
1926.
Óskar kvæntist 24. nóvember
1942 Jónu Guðbjörgu Guðmunds-
dóttur, f. 13.12. 1920, d. 21.7.
2002. Þau skildu. Sonur þeirra er
Sölvi Óskarsson, f. 15.8. 1942,
maki Oddný J. Eyjólfsdóttir, f.
8.12. 1946, sonur þeirra er Óskar,
f. 19.2. 1979, unnusta Katrín Sif
Stefánsdóttir, f. 2.10. 1979. Önnur
eiginkona Óskars var Lissi Gud-
mundsson, f. 11.3. 1930, d. 1993.
Þau skildu. Sonur þeirra er Ragn-
11.9. 1928, d. 1999. Þau skildu.
Dóttir þeirra er Ragnheiður, f.
14.2. 1957, maki, Hallgrímur
Thorsteinsson, f. 14.9. 1955.
Börn þeirra: a) Ásta Ólafsdóttir,
f. 16.5. 1979, maki Jónas Rafn
Bjarkason. Börn hennar Erla
Rós Bjarkadóttir, f. 2.8. 2000, og
Kristófer Bergmann Jónasson, f.
13.2. 2007. b) Hildigunnur H.
Thorsteinsson, f. 16.2. 1980. c)
Victor Pétur Ólafsson, f. 27.4.
1983. Dóttir hans Björk Dögun,
f. 10.7. 2005. d) Vera Elísabet
Thorsteinsson, f. 12.12. 1994.
Óskar kvæntist 7.2. 1959 Sigríði
Benjamínsdóttur, f. 10.2. 1934,
d. 16.1. 2001. Börn þeirra eru 1)
Þröstur, f. 28.6. 1958, d. 15.1.
1995. 2) Guðmundur Logi, f. 5.2.
1960. Börn hans og Hrafnhildar
Geirsdóttur, f. 10.6. 1959 eru: a)
Eva María, f. 11.8. 1979, maki
Steinþór Jakobsson. Börn þeirra
Rebekka Rut, f. 10.10. 2005 og
óskírð, f. 3.9. 2008. b) Davíð, f.
6.5. 1984. Börn Guðmundar og
eiginkonu hans, Rögnu Dagmar-
ar Sölvadóttur, f. 16.4. 1964, d.
6.2. 2007, eru c) Tinna Dögg, f.
14.9. 1987, unnusti Bjarki Þór
Runólfsson sonur þeirra óskírð-
ur, f. 25.8. 2008. d) Rakel Ósk, f.
15.14. 1994, e) Andrea Rut .
31.3. 2000. 3) Klara f 1.7. 1961.
Búsett í Svíþjóð. Maki Sixten
Lindstrøm, f. 5.2. 1950. 4)
Skorri, f. 7.8. 1966. Börn hans
og Bjarghildar Sólveigar Kára-
dóttur, f. 14.12. 1971, eru Svala,
f. 27.4. 1995, og Dröfn, f. 31.1.
2000. 5) Björn, f. 6.12. 1968. Bú-
settur í Noregi. Sambýliskona
Marte Benedicte Green, f. 11.7.
1973. Sonur þeirra Thröstur
Brage Björnsson, f. 9.5. 2007.
Útför Óskars Þóris fór fram
frá Fossvogskirkju 6. október.
ar Óskar Stefán
Gudmundsson, f.
17.4. 1948. Búsett-
ur í Danmörku.
Börn hans og Bodil
Gudmundsson, f.
8.8. 1948, eru: a)
Marianne Gud-
mundsson, f. 29.1.
1970, dóttir hennar
Rebecca, f. 12.12.
1994, b) Stefan
Gudmundsson, f.
1.3. 1971, Börn
hans Rikke Gud-
mundsson, f. 16.3.
1994 og Lucas Gudmundsson, f.
8.10. 2002, c) Renata Gudmunds-
son, f. 27.1. 1972. Sonur hennar
Oliver, f. 17.12. 1995. d) Jea-
nette Gudmundsson, f. 4.3. 1974.
Sonur hennar Frederik, f. 7.2.
2007. e) Ragnar Gudmundsson,
f. 26.2. 1974. Börn hans Pernille
Camilla Gudmundsson, f. 24.4.
1994, Katrine Camilla Gud-
mundsson, f. 13.4. 1995, Nikolaj
Ragnar Gudmundsson, f. 17.11.
1997, og Yasmin Camilla Gud-
mundsson, f. 5.11. 2003. f) Gud-
mundur Gudmundsson, f. 28.12.
1976. Dóttir hans Isabella Gud-
mundsson, f. 20.5. 2007. g)
Christina Gudmundsson, f. 12.4.
1977. h) Atli Gudmundsson, f.
28.7. 1980 Börn hans Nicole
Gudmundsson, f. 17.9. 2000, At-
tila Gudmundsson, f. 26.7. 2003,
og Filluca Gudmundsson, f. 16.9.
2008. Þriðja eiginkona Óskars
var Erla Vídalín Helgadóttir, f.
Mig langar að minnast Óskars
Guðmundssonar sem var kurteis og
mikill séntilmaður. Hann vann ungur
hjá afa mínum Guðlaugi A. Magnús-
syni við smíðar á silfurborðbúnaði,
þar kynntist hann föður mínum og
vini sínum Reyni Guðlaugssyni sem
þá var ungur. Óskar fór út í söngnám
og það var ekki fyrr en löngu seinna
að Óskar fékk aðstöðu hjá föður mín-
um í Gull- og silfursmiðjunni Ernu og
ég kynntist honum þá sem barn.
Hann smíðaði aðallega hluti úr ný-
silfri, ausur, skartgripi, horn og fleira.
Hann hafði mjög skemmtilegan stíl í
hönnun sinni. Hann hjálpaði okkur í
borðbúnaðinum fyrir jólin og smíðaði
þá aðallega jólaskeiðar og svo síðar
jólasveinaskeiðar.
Á kaffistofunni var oft mikið rætt
og margar skemmtilegar sögur sagð-
ar, ég man að ég hugsaði oft að Óskar
þyrfti að skrifa bók því sögurnar voru
svo ótrúlegar og ævintýralegar, enda
góður að segja frá. Slíperíið var og er
örugglega ekki uppáhaldsstaðurinn á
verkstæðinu þótt það sé gott að láta
hugann reika á meðan verið er að
slípa hluti. En til að halda sér hrein-
um er best að pakka sér inn eins og
Óskar var vanur að gera til að losna
við óhreinindin og man ég einn kaldan
vetrarmorgun rétt fyrir jól að Óskar
var að slípa í slíperísmúnderingunnni
en hafði gleymt að taka loðfeldshúf-
una af sér. Eins og honum einum var
lagið þakkaði hann mér kurteislega
fyrir að láta sig vita.
Það var erfitt að koma á fallega
heimilið hans Óskars jólin 2001 og til-
kynna honum að vinur hans og faðir
minn hefði fallið frá, því fyrr á sama
ári missti Óskar eiginkonu sína, hana
Sigríði Benjamínsdóttur. Sísí, eins og
hún var kölluð, var stoð hans og stytta
og yndisleg kona. Ég veit að þetta tók
mjög á Óskar og sagði hann mér að
nú væri hann „síðasti móhíkaninn“
eins og hann orðaði það og heimsókn-
ir Óskars á verkstæðið voru ekki
margar eftir það. Við systkin mín
ræddum fyrir stuttu að það væri gam-
an að bjóða Óskari upp á verkstæðið
til að spjalla, en áður en úr varð
kvaddi hann.
Ég vil þakka þér Óskar fyrir allar
skemmtilegu sögurnar, fallega söng-
inn og samverustundirnar á verk-
stæðinu okkar og óhætt er að segja að
verkstæðið hafi alla tíð verið lánsamt
að hafa frábæra starfsmenn. Óskar,
það var eitt sem þú kenndir mér – það
er að hafa svolítið gaman af lífinu.
Guðs ljós varðveiti þig. Ég votta að-
standendum þínum innilega samúð.
Ragnhildur Sif Reynisdóttir.
Smátt og smátt hverfur gamalt
handverk og þekking með hagleiks-
mönnum sem kveðja. Óskar Þórir
Guðmundsson starfaði um áratuga-
skeið hjá Gull- og silfursmiðjunni
Ernu. Þegar framleiðsla á silfurborð-
búnaði hófst 1936 var gamalt hand-
verk nýtt við smíðar. Óskar lýsti því
oft fyrir okkur sem nú störfum við
silfursmíði. Mikla leikni þurfti til að
ná afköstum og gæðum. Í þá daga
voru skartgripir fjöldaframleiddir
með sandsteypu og var Óskar fenginn
til að sjá um hana þar sem hann náði
góðum tökum á henni og miklum af-
köstum.
Síðustu árin sem hann starfaði við
silfursmíði var það starf hans að
smíða jólasveinaskeiðar sem 12 ára
börn teiknuðu. Það veitti honum gleði
og okkur öllum sem fylgdumst með.
Börnin sem komu í heimsókn til að sjá
hugmyndir sínar verða að veruleika
fengu greinargóða lýsingu á því sem
fram fór hjá Óskari.
Óskar var hámenntaður tónlistar-
maður og mikill heimsborgari. Ótelj-
andi sögur sagði hann okkur frá
horfnum heimi frá því er Ísland
tengdist meir menningu Evrópu en í
dag. Hann hafði sjálfur verið við-
staddur ýmsa viðburði og stangaðist
frásögn hans stundum á við seinni
tíma söguskýringar.
Við viljum þakka honum og fjöl-
skyldu hans langa órofa vináttu og
biðjum þess að þeim veitist huggun
og styrkur.
F.h. starfsfólks Gull- og silfur-
smiðjunnar Ernu,
Ásgeir Reynisson.
Óskar Þórir
Guðmundsson
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auð-
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
RAGNHILDAR SIGURÐARDÓTTUR,
Eskihlíð 13,
Reykjavík.
Sigurður Jóhannsson,
Halldór Ágúst Jóhannsson,
Grímheiður Freyja Jóhannsdóttir, Arnar Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SVANHVÍTAR FRIÐRIKSDÓTTUR,
Fannborg 8,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sunnuhlíðar fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Friðrik Sveinn Kristinsson,
Flóki Kristinsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR F. JÓNSSONAR
bílamálarameistara
frá Hvammi í Dýrafirði,
Háaleitisbraut 123,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki öldrunardeildar
Landspítalans í Fossvogi fyrir góða umhyggju og hlýhug.
Jón Guðmundsson, Renate Gudmundsson,
Gunnar B. Guðmundsson,
Guðmundur Chr. Jónsson,
Juliane Gudmundsson.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og
afa,
HELGA JÓNSSONAR
flugstjóra og flugrekanda,
Bauganesi 44,
Reykjavík.
Útför hans fór fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
16. september kl. 13.00.
Jytte Marcher,
Ester Helgadóttir,
Astrid Helgadóttir, Adolfo Castrillo,
Jón Helgason, Hulda G. Valsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur vináttu og stuðning við fráfall og útför
HERMÓÐS SIGURÐSSONAR
setjara,
sem lést 27. september.
Inga Huld Hermóðsdóttir, Jóhannes Kristinn Kristinsson,
Hafsteinn Ívar og Heiða Björk,
Daði Þór Hermóðsson,
Hávarr Hermóðsson,
Bergljót Hermóðsdóttir,
Elín Sigurðardóttir,
Haraldur Sigurðsson, Ragnhildur Ólafsdóttir,
Valgarður Sigurðsson, Elísabet Kristjánsdóttir,
Þórhallur Sigurðsson, Sigríður Thorarensen,
Kristján Sigurðsson, Ingunn Guðbjartsdóttir,
Guðjón Sigurðsson, Inga Jóna Kristinsdóttir,
Sigríður J. Sigurðardóttir,
Guðbjörg Á. Sigurðardóttir, Ellert Eiríksson,
Ágúst Sigurðsson, Unnur Óskarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar ástkæra
ÓLÍNA G. SIGURÐARDÓTTIR,
Álfhólsvegi 82,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn
4. október.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta
hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Daníel Reynir Dagsson,
Kristinn Dagsson,
Guðlaug Snorradóttir.