Morgunblaðið - 19.10.2008, Side 45

Morgunblaðið - 19.10.2008, Side 45
Minningar 45 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008 Elsku pabbi minn, ég vil kveðja þig með þessum ljóðlín- um Gustavs Frödings: Og maðurinn reikar um heiminn hér, og hulið er öllum, hvaðan hann ber, og hulið er öllum, hvert hann fer, og hulið er öllum, hvað lífið er. (Þýð. Magnús Ásgeirsson) Klara. HINSTA KVEÐJA ✝ Óskar ÞórirGuðmundsson fæddist 8. júlí 1920. Hann andaðist á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 25. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson sjó- maður, f. 7. nóv- ember 1885, d. 14. október 1921, og Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 12. jan- úar 1887, d. 2. des- ember 1975. Systkini Óskars voru: Elín, f. 16. júlí 1912, d. 12. júní 2003, Steinunn, f. 9. júlí 1915, d. 28. apríl 1936; Guðrún, f. 23. desember 1916, d. 2. maí 2008; Þórunn, f. 7. júlí 1918, d. 8. sept- ember 2005; og Guðmundur, f. 29. apríl 1922, d. 21. apríl 2006. Syst- ur sammæðra: Sigrún Lár- usdóttir, f. 9. september 1910, d. 2. febrúar 1977, og Þórdís Jóna Sigurðardóttir, f. 15. október 1926. Óskar kvæntist 24. nóvember 1942 Jónu Guðbjörgu Guðmunds- dóttur, f. 13.12. 1920, d. 21.7. 2002. Þau skildu. Sonur þeirra er Sölvi Óskarsson, f. 15.8. 1942, maki Oddný J. Eyjólfsdóttir, f. 8.12. 1946, sonur þeirra er Óskar, f. 19.2. 1979, unnusta Katrín Sif Stefánsdóttir, f. 2.10. 1979. Önnur eiginkona Óskars var Lissi Gud- mundsson, f. 11.3. 1930, d. 1993. Þau skildu. Sonur þeirra er Ragn- 11.9. 1928, d. 1999. Þau skildu. Dóttir þeirra er Ragnheiður, f. 14.2. 1957, maki, Hallgrímur Thorsteinsson, f. 14.9. 1955. Börn þeirra: a) Ásta Ólafsdóttir, f. 16.5. 1979, maki Jónas Rafn Bjarkason. Börn hennar Erla Rós Bjarkadóttir, f. 2.8. 2000, og Kristófer Bergmann Jónasson, f. 13.2. 2007. b) Hildigunnur H. Thorsteinsson, f. 16.2. 1980. c) Victor Pétur Ólafsson, f. 27.4. 1983. Dóttir hans Björk Dögun, f. 10.7. 2005. d) Vera Elísabet Thorsteinsson, f. 12.12. 1994. Óskar kvæntist 7.2. 1959 Sigríði Benjamínsdóttur, f. 10.2. 1934, d. 16.1. 2001. Börn þeirra eru 1) Þröstur, f. 28.6. 1958, d. 15.1. 1995. 2) Guðmundur Logi, f. 5.2. 1960. Börn hans og Hrafnhildar Geirsdóttur, f. 10.6. 1959 eru: a) Eva María, f. 11.8. 1979, maki Steinþór Jakobsson. Börn þeirra Rebekka Rut, f. 10.10. 2005 og óskírð, f. 3.9. 2008. b) Davíð, f. 6.5. 1984. Börn Guðmundar og eiginkonu hans, Rögnu Dagmar- ar Sölvadóttur, f. 16.4. 1964, d. 6.2. 2007, eru c) Tinna Dögg, f. 14.9. 1987, unnusti Bjarki Þór Runólfsson sonur þeirra óskírð- ur, f. 25.8. 2008. d) Rakel Ósk, f. 15.14. 1994, e) Andrea Rut . 31.3. 2000. 3) Klara f 1.7. 1961. Búsett í Svíþjóð. Maki Sixten Lindstrøm, f. 5.2. 1950. 4) Skorri, f. 7.8. 1966. Börn hans og Bjarghildar Sólveigar Kára- dóttur, f. 14.12. 1971, eru Svala, f. 27.4. 1995, og Dröfn, f. 31.1. 2000. 5) Björn, f. 6.12. 1968. Bú- settur í Noregi. Sambýliskona Marte Benedicte Green, f. 11.7. 1973. Sonur þeirra Thröstur Brage Björnsson, f. 9.5. 2007. Útför Óskars Þóris fór fram frá Fossvogskirkju 6. október. ar Óskar Stefán Gudmundsson, f. 17.4. 1948. Búsett- ur í Danmörku. Börn hans og Bodil Gudmundsson, f. 8.8. 1948, eru: a) Marianne Gud- mundsson, f. 29.1. 1970, dóttir hennar Rebecca, f. 12.12. 1994, b) Stefan Gudmundsson, f. 1.3. 1971, Börn hans Rikke Gud- mundsson, f. 16.3. 1994 og Lucas Gudmundsson, f. 8.10. 2002, c) Renata Gudmunds- son, f. 27.1. 1972. Sonur hennar Oliver, f. 17.12. 1995. d) Jea- nette Gudmundsson, f. 4.3. 1974. Sonur hennar Frederik, f. 7.2. 2007. e) Ragnar Gudmundsson, f. 26.2. 1974. Börn hans Pernille Camilla Gudmundsson, f. 24.4. 1994, Katrine Camilla Gud- mundsson, f. 13.4. 1995, Nikolaj Ragnar Gudmundsson, f. 17.11. 1997, og Yasmin Camilla Gud- mundsson, f. 5.11. 2003. f) Gud- mundur Gudmundsson, f. 28.12. 1976. Dóttir hans Isabella Gud- mundsson, f. 20.5. 2007. g) Christina Gudmundsson, f. 12.4. 1977. h) Atli Gudmundsson, f. 28.7. 1980 Börn hans Nicole Gudmundsson, f. 17.9. 2000, At- tila Gudmundsson, f. 26.7. 2003, og Filluca Gudmundsson, f. 16.9. 2008. Þriðja eiginkona Óskars var Erla Vídalín Helgadóttir, f. Mig langar að minnast Óskars Guðmundssonar sem var kurteis og mikill séntilmaður. Hann vann ungur hjá afa mínum Guðlaugi A. Magnús- syni við smíðar á silfurborðbúnaði, þar kynntist hann föður mínum og vini sínum Reyni Guðlaugssyni sem þá var ungur. Óskar fór út í söngnám og það var ekki fyrr en löngu seinna að Óskar fékk aðstöðu hjá föður mín- um í Gull- og silfursmiðjunni Ernu og ég kynntist honum þá sem barn. Hann smíðaði aðallega hluti úr ný- silfri, ausur, skartgripi, horn og fleira. Hann hafði mjög skemmtilegan stíl í hönnun sinni. Hann hjálpaði okkur í borðbúnaðinum fyrir jólin og smíðaði þá aðallega jólaskeiðar og svo síðar jólasveinaskeiðar. Á kaffistofunni var oft mikið rætt og margar skemmtilegar sögur sagð- ar, ég man að ég hugsaði oft að Óskar þyrfti að skrifa bók því sögurnar voru svo ótrúlegar og ævintýralegar, enda góður að segja frá. Slíperíið var og er örugglega ekki uppáhaldsstaðurinn á verkstæðinu þótt það sé gott að láta hugann reika á meðan verið er að slípa hluti. En til að halda sér hrein- um er best að pakka sér inn eins og Óskar var vanur að gera til að losna við óhreinindin og man ég einn kaldan vetrarmorgun rétt fyrir jól að Óskar var að slípa í slíperísmúnderingunnni en hafði gleymt að taka loðfeldshúf- una af sér. Eins og honum einum var lagið þakkaði hann mér kurteislega fyrir að láta sig vita. Það var erfitt að koma á fallega heimilið hans Óskars jólin 2001 og til- kynna honum að vinur hans og faðir minn hefði fallið frá, því fyrr á sama ári missti Óskar eiginkonu sína, hana Sigríði Benjamínsdóttur. Sísí, eins og hún var kölluð, var stoð hans og stytta og yndisleg kona. Ég veit að þetta tók mjög á Óskar og sagði hann mér að nú væri hann „síðasti móhíkaninn“ eins og hann orðaði það og heimsókn- ir Óskars á verkstæðið voru ekki margar eftir það. Við systkin mín ræddum fyrir stuttu að það væri gam- an að bjóða Óskari upp á verkstæðið til að spjalla, en áður en úr varð kvaddi hann. Ég vil þakka þér Óskar fyrir allar skemmtilegu sögurnar, fallega söng- inn og samverustundirnar á verk- stæðinu okkar og óhætt er að segja að verkstæðið hafi alla tíð verið lánsamt að hafa frábæra starfsmenn. Óskar, það var eitt sem þú kenndir mér – það er að hafa svolítið gaman af lífinu. Guðs ljós varðveiti þig. Ég votta að- standendum þínum innilega samúð. Ragnhildur Sif Reynisdóttir. Smátt og smátt hverfur gamalt handverk og þekking með hagleiks- mönnum sem kveðja. Óskar Þórir Guðmundsson starfaði um áratuga- skeið hjá Gull- og silfursmiðjunni Ernu. Þegar framleiðsla á silfurborð- búnaði hófst 1936 var gamalt hand- verk nýtt við smíðar. Óskar lýsti því oft fyrir okkur sem nú störfum við silfursmíði. Mikla leikni þurfti til að ná afköstum og gæðum. Í þá daga voru skartgripir fjöldaframleiddir með sandsteypu og var Óskar fenginn til að sjá um hana þar sem hann náði góðum tökum á henni og miklum af- köstum. Síðustu árin sem hann starfaði við silfursmíði var það starf hans að smíða jólasveinaskeiðar sem 12 ára börn teiknuðu. Það veitti honum gleði og okkur öllum sem fylgdumst með. Börnin sem komu í heimsókn til að sjá hugmyndir sínar verða að veruleika fengu greinargóða lýsingu á því sem fram fór hjá Óskari. Óskar var hámenntaður tónlistar- maður og mikill heimsborgari. Ótelj- andi sögur sagði hann okkur frá horfnum heimi frá því er Ísland tengdist meir menningu Evrópu en í dag. Hann hafði sjálfur verið við- staddur ýmsa viðburði og stangaðist frásögn hans stundum á við seinni tíma söguskýringar. Við viljum þakka honum og fjöl- skyldu hans langa órofa vináttu og biðjum þess að þeim veitist huggun og styrkur. F.h. starfsfólks Gull- og silfur- smiðjunnar Ernu, Ásgeir Reynisson. Óskar Þórir Guðmundsson ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auð- sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHILDAR SIGURÐARDÓTTUR, Eskihlíð 13, Reykjavík. Sigurður Jóhannsson, Halldór Ágúst Jóhannsson, Grímheiður Freyja Jóhannsdóttir, Arnar Friðriksson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVANHVÍTAR FRIÐRIKSDÓTTUR, Fannborg 8, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir frábæra umönnun og hlýju. Friðrik Sveinn Kristinsson, Flóki Kristinsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR F. JÓNSSONAR bílamálarameistara frá Hvammi í Dýrafirði, Háaleitisbraut 123, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki öldrunardeildar Landspítalans í Fossvogi fyrir góða umhyggju og hlýhug. Jón Guðmundsson, Renate Gudmundsson, Gunnar B. Guðmundsson, Guðmundur Chr. Jónsson, Juliane Gudmundsson. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, HELGA JÓNSSONAR flugstjóra og flugrekanda, Bauganesi 44, Reykjavík. Útför hans fór fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. september kl. 13.00. Jytte Marcher, Ester Helgadóttir, Astrid Helgadóttir, Adolfo Castrillo, Jón Helgason, Hulda G. Valsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur vináttu og stuðning við fráfall og útför HERMÓÐS SIGURÐSSONAR setjara, sem lést 27. september. Inga Huld Hermóðsdóttir, Jóhannes Kristinn Kristinsson, Hafsteinn Ívar og Heiða Björk, Daði Þór Hermóðsson, Hávarr Hermóðsson, Bergljót Hermóðsdóttir, Elín Sigurðardóttir, Haraldur Sigurðsson, Ragnhildur Ólafsdóttir, Valgarður Sigurðsson, Elísabet Kristjánsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Sigríður Thorarensen, Kristján Sigurðsson, Ingunn Guðbjartsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Inga Jóna Kristinsdóttir, Sigríður J. Sigurðardóttir, Guðbjörg Á. Sigurðardóttir, Ellert Eiríksson, Ágúst Sigurðsson, Unnur Óskarsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Okkar ástkæra ÓLÍNA G. SIGURÐARDÓTTIR, Álfhólsvegi 82, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn 4. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Daníel Reynir Dagsson, Kristinn Dagsson, Guðlaug Snorradóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.