Skinfaxi - 01.04.1933, Blaðsíða 48
48
SKINFAXI
sjálfstæðiseldi, sem þá geysaði um landið, færði áhrif-
in brátt í starfandi veruleika. Ungmennafélögin voru
stofnuð hvert af öðru, skipulögð og samin fvrir þau
stefnuskrá i samræmi við þann anda, er þau móluðust
af. Sú stefnuskrá sýnir, að það var fryst og fremst ætt-
jarðarást og þjóðrækni, sem knúði starfið áfram. Björt-
ustu þættir sögunnar brugðu skýrum ljóma á störf
ungmennafélaganna fyrstu árin. Með lotningu var liorft
til gullaldarinnar fornu og leilazt við að haga störfum
eftir forníslenzkri fyrirmynd. Flcst fyrstu félögin báru
nöfn helztu fornhetjanna. Íþróttalífið var eflt með hlið-
sjón af söguöldinni. Og orðið drengskapur, þetta forna
tákn göfugmennskunnar, varð í hávegum liaft. Um
allt var kappkostað að hafa félagsskapinn sem þjóðleg-
astan í sjón og reynd. Þetta var mjög cðlilegt. Félögin
voru vaxin upp úr þeim jarðvegi, sem myndazt liafði
í liálfa aðra öld, en höfuðfrjóefnið í þeim jarðvegi var
þjóðernistilfinning þeirra manna, er liófu endurreisnar-
timabil þjóðarinnar, og þeirra, sem háru endurreisnina
uppi á hinum ýmsu tímum endurreisnartimabilsins.
Þau mynduðust á þeim tíma er sjálfstæðisbarátta þjóð-
arinnar var í mestum blóma. Og loks voru þau sniðin
eftir fyrirmynd þess félagsskapar, sem um langt skeið
hafði verið þjóðlegur aflgjafi hjá náskyldri þjóð, er
lifað hafði í líku ástandi og íslenzka þjóðin lifði nú.
Það er óefað rélt, sem einn gamall ungmennafélagi
hefir sagt, að vafasamt sé Iivort nokkurntíma hafi verið
yndislegra að vera ungur íslendingur lieldur en á fyrstu
árum ungmennafélaganna. Því hvað er yndislegra, en
að vera óspilltur æskumaður, eigandi hjartfólgin
áhugamál, hafa orku til að vinna fyrir ]íau, njótandi
áhrifa og stuðnings fjölmargra samherja? Og hvaða
áhugamál eru dýrmætari en heilbrigð þroskaviðleitni
og starfsþrá í þágu fósturjarðarinnar, sem knúin er
fram af eldheitri ættjarðarást?
Nú er liðinn meira cn aldarfjórðungur síðan fyrstu