Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1933, Síða 58

Skinfaxi - 01.04.1933, Síða 58
58 SKINFAXI sjó og landi. Þó voru það sjófcrðirnar, venjulega, seni voru hættulegastar. Fjörðurinn lá breiður og opinn l'ramundan bænum. Og liafið vakti æfintýraþrána lijá okkur félögunum. Við notuðum liverja stund sem við gátum til þess að róa eða sigla út á fjörðinn. Og stund- irnar urðu nokkuð margar — og fleiri en karli föður minum þótti gotí cða hagkvæmt fyrir vinnubrögðin á heimilinu. Um Halldór var öðru máli að gegna. Hann var oftast sjálfráður um störf sín. En einn vildi hann ekki vera, og þá var sjálfsagt að taka mig með hvernig sem á stóð. Og þegar faðir minn lct i ljósi óánægju sína yfir þess- um ferðum, hafði Halldór ótrúlega gott lag á þvi að fá hann í gott skap og fá leyfi hans, að eg mætti fara. En oft hristi liann höfuðið, þegar eg l'leygði verkinu frá mér og við Iialldór lilupum niður i naustið neðan við túnið og' Iirintum litla bátnum okkar á flot. Eg segi okkar, en auðvitað átti Halldör bátinn og allt sem í honum var. Svo var lagt frá landi og stefnt út á liafið, fagurt og Iieillandi. Árin liðu og við vorum komnir yfir tvitugl. Eoreldrar Halldórs höfðu viljað, að liann gengi skólaveginn. En við það var ekki komandi. Halldór sagðist ekkert vilja vera nema bóndi. Og hann réði eins og oftast áður. En veturinn áður en þetta atvik gerðist, sem eg ætlaði að segja frá, hafði honum verið komið til náms hjá prest- inum sem átti heima í kaupstaðnum, og stóð kaupslað- urinn beint á móti Hvammi hinummegin fjarðarins. Var svo sem stundarsigling yfir í kaupstaðinn. Þann vetur trúlofaðist Ilalldór Brynhildi dóttur Þórðar kaup- manns. Eg man það vel, hvað liann var kátur og lífsglaður, ])egar hann sagði mér frá trúlofuninni. Það var um páskana, og haiin sagði að þau ætluðu að draga upp hringána á sumardaginn fyrsta heima lijá foreldrum

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.