Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 70

Skinfaxi - 01.04.1933, Page 70
70 SKINFAXI nauðsynjar sínar, án þess að liafa nokkuð fyrir. Heið- arlegir menn liafa andstyggð á slíku. Og tæplega verður mikið gert í 'pví „Sovét“-ríki, þar sem þegnarnir taka alltaf á móti, en veita ekkert. Auð- vitað er það ekki hugsjón neins sanns „Sovét“-sinna. En verst er, ef þeim vildi sú siysni til, að villa á sér lieimildir i byltingarróðrinum! Það gætu nokkrir orðið hungurmorða i þvi ríki, þar sem þegnarnir þættust ekki liafa neinar s k y 1 d u r að leysa — jafnvel þó að það væri „Sovét“-riki, mundi gerast þar sama sagan. Virðing fyrir lögunum og rækt við þjóðfélagsskyld- urnar eru fyrstu skilyrði þess, að þjóðfélagið sundrist ekki — livert svo sem skipulagið er! — Byltingastefnurnar hafa á stefnuskrá sinni, að flytja byggðina saman. Allir þeir peningar, öll þau liandtök, sem gerð liafa verið að ræktun og byggingu í íslenzkum sveitum, á að verða að engu. Ríkið liefir nóga peninga til að reisa ný hús og rækta ný tún! Það fær þá úr pyngju auðmannanna meðal þjóðar, sem hefir rúmar 100.000 ibúa og skuldar ef til vill 80—100 miljónir króna! Það er og ekki dæmalaust, að mál- svarar byltingar segi: „Fjármunir! Þeir eru næg'ir i óræktar móunum.“ Þeir sjá alstaðar máhnloga, sem verða eign alþjóðar, þegar bylting er um garð geng- in. En ætli að geti þá ekki farið líkt fyrir þeim og auðnuleysingjunum, sem árangurslaust girntust gull haugbúanna i þjóðsögunum? Gull verður aldrei numið úr islenzkri mold með tómum orðum! En livað mundi vinnast við samfærslu hyggðarinn- ar? — Þjóðin yrði í beinna samhandi við umheiminn, ríkisvaldið ætti hægra með að hafa hendur í hári lienn- ar og veita straumnum inn í líf hennar, hún mundi tapa þvi síðasta af fornri sveitamenningu, þjóðlegri menningu, tungu sinni og öllum þjóðareinkennum.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.