Skinfaxi - 01.04.1935, Síða 29
SKINFAXI
29
leyti inn i þá viðleitni, sem verður að gera sveitunum
til bjargar.
Flestir munu nú liafa kynnzt og heyrt tillögur Aðal-
steins Eiríkssonar, sem hann hirti í Skinfaxa fyrir
skömmu, og' nefndi „Fræðslumál sveitanna“. Er þar
ekki einungis dregin upp skýr mynd af því ástandi, sem
verið hefir og er enn í barnafræðslu og uppeldismálum
sveitanna, heldur eru þar og fram hornar tillögur, sem
miða að þvi, að koma þeim málum í lieilhrigðara og
íastara horf, samkvæmt nýjustu rannsóknum og niður-
stöðum uppeldisvísindanna. Þarf eg ekki að lýsa þessum
tillögum A. E. nánar, — þær eru öllum kunnar, sem
lesið hafa Skinfaxa, og eílaust mörgum fleirum, enda
þegar tekin lil starfa starfs- og skólalieimili eftir fvrir-
mynd hr. A. E. Hér er um svo þarft og mikilsvert mál
að ræða, að þess verður að krefjast, að ungmennafélag-
ar taki það til meðferðar og fylgi eftir framkvæmdum,
svo sem fé og kraftar levfa.
Þvílík uppeldis- og harnafræðsla er tryggur grund-
völlur undir framtíðarlíf og' störf sveitafólksins, merki-
legasta tilraun til að bæta afstöðu kennaranna og láta
skólana verða miðstöð alls athafna- og félagslífs liérað-
anna. 1 skulda- og framleiðslumálum sveitanna eru nú
þegar konmar bráðabirgða-úrlausnir, sem draga sjálf-
sagl úr mestu vandræðunum, en um það skal ekki neitt
dæmt hér, enda eigi fullreyndar.
Einnig er að fæðast löggjöf um skipulagningu hyggð-
anna, samvinnu og samyrkjuhyggðir í sveitum. Þar á
að verða liægt að nota í samvinnu öll helztu nýtízku
verkfæri og vélavinnubrögð, í þjónustu einyrkjanna.
Ekki er hægt að dæma neitt um gildi þessara skipulags-
tilrauna, enda undir þvi komið, hvernig framkvæind og
viðtökur verða. Þá má og telja íslenzka kornyrkju sem
einhverja allra glæsilegustu úrlausn í sambandi við
efnalega sjálfshjörg íslenzkra hænda. Tilraunir eru nú
komnar svo langt á veg með kornyrkjuna, að óþarfi