Skinfaxi - 01.04.1935, Blaðsíða 75
SKINFAXI
75
Félagsmál.
Frá Skeiðamönnum.
í fyrra komu Skeiðamenn í Árnessýslu upp heimavista-
skóla, með ágætu iþrótta- og samkomuhúsi, þar sem heitir
að Braufarholti. Er það einhver veglegasta slík bygging á
landi hér. Færandi er það í frásögur, að sveitarbúar lögðu
af mörkum alla vinnu við bygginguna, nema verk yfirsmiðs.
Ií. M. F. Skeiðamanna átti mikinn þátt, beinan og óbeinan,
í framkvæmd þessari, enda eru gamlir forystumenn félags-
ins nú helztu valdamenn sveitarinnar.
Siðastl. liaust var komið upp góðuin fimleikaáhöldum handa
skólanum. Unnu ungmennafélagar sjálfir mikið að tilhúningi
þeirra. Siðan hélt ungmennafélagið þriggja mánaða unglinga-
námskeið, þar sem aðallega voru kenndar íþróttir, en auk
þess íslenzka, reikningur og heilsufræði. Nemendur voru 18,
en kennarar Jón Bjarnason iþróttakennari að Hlemmiskeiði
og Klemenz Þorleifsson skólastjóri i Brautarholti. — Nú er
félagið að undirbúa sundlaugarbyggingu í grennd við skólann.
U. M. F. Ármann
í Landbroti minntist 25 ára afmælis síns hátiðlega í janú-
ar í vetur. Félagið hefir undanfarið heitið Framsókn, en tók
að nýju upphaflegt heiti sitf á afmælinu. Ilafði í. S. t. rek-
ið fél. frá Ármannsnafninu, vegna samnefnds glímufélags i
Reykjavík, en nú eru Landbrotsmenn ráðriir i að hafa slik-
ar ltenjar að engu. — Félagið hefir komið á hjá sér yngri
deild með 15 börnum, og fer hún vel af stað.
U. M. S. Eyjafjarðar
hefir sagt sig úr sambandi U. M. F. í. Eigi veit Skinfaxi
skýringu þeirrar rúðabreytni. U. M. F. Þorsteinn Svörfuður
lieldur þó tryggð við U. M. F. í.
Bókin Útiíþróttir,
sem getið var í síðasta hefti, kom út í vetur eins og til
stóð. Útgáfa hennar er þarfasta verk, sem lengi hefir unnið
verið til eflingar íþróttaiðkunar meðal landsmanna, og á
íþróttafélag Reykjvíkur miklar þakkir fyrir vikið. Eigi sízt
er bókin ómetanleg lijálp og leiðbeining fyrir unga áhuga-
menn í strjálbýli, þá sem ekki eiga kost stöðugrar leiðbein-
ingar við íþróttaæfingar sínar. Skýringar bókarinnar eru svo
glöggar, hæði í orðum og hinum mörgu myndum, að full-