Skinfaxi - 01.04.1935, Blaðsíða 25
SKINFAXI
25
ungmennafélagi eða engu. — G. B. er ein af þeim, sem
mótað liafa ungmennafélagsskapinn eins og hann var
hér beztur, og hefir sjálf mótazt af honum. Hún er full-
mótuð kona á æskilegasta hátt.
V.
G. B. liefír alltaf liaft mikinn áhuga á hagnýtri barna-
fræðslu og uppeldismálum yfirleitt. Hefir hún aflað
sér mikíllar þekkingar á því sviði, bæði heima og er-
lendis. Og flest árin, síðan hún var 17 ára, hefir hún
kennt á vetrum, l)æði börnum og unglingum.
Störf hennar innan ungmennafélaganna hafa einnig
að verulegu leyti beinzt i sömu átt. Því að hún hefir
alltaf haft tröllatrú á uppeldisgildi ungmennafélags-
skaparins fyrir æskulýðinn. Og segja má, að sú trir
hafi orðið henni að nokkurri staðreynd, — eins og
fleirum. ,
Á síðari árum hefir G. B. einkum kynnt sér frískóla-
mál og þar sérstaklega Montessori-kennsluaðferðina.
Mun hún vera eini fslendingur, sem lokið hefir námi i
þeim fræðum. En þvi lauk hún á IV2 ári, í stað tveggja
sem venjulegt er, með mjög lofsamlegum vitnisburðr.
-— Þegar G. B. kom heim að því námi loknu, tók hún
einnig ágætt jrróf, undirbúningslaust, við Kennaraskól-
ann í Reykjavik, — til að öðlast kennararéttindi samkv.
islenzkum lögum.
-----Um það levti, er Austurbæjarbarnaskólinn i
R.vik tók til starfa, var hér uppi nokkur hrevfing um að
koma þar á fól Montessori-kennslu að einhverju leytir
og mun G. B. hafa haft von um að fá þar framtíðar-
stöðu, enda sjálfkjörin til þess. — ÍJr því gat þó ekki
orðið og mun Guðrúnu hafa orðið það nokkur von-
brigði. Ekki vegna atvinnuhliðar stöðunnar, lieldur
hins, að þar hefði hún fengið æskilega aðstöðu til þess
að geta notið hæfileika sinna og sérþekkingar.
En nýjungar í skólamálum virðast á stundum eiga