Skinfaxi - 01.04.1939, Page 1
Skinfaxi I. 1939.
Jónas A. Helgason
Til íslands 1. des. 1Q38.
i.
Kringum íslands fögru fjöll og strendur
fylkir Ægir valdar ríki sitt.
Stórlátt, járneflt haf á báðar hendur!
Hér er landið mitt!
Ilingað garpar fluttu forðurn daga
fleinum tamir. Hófu landnámsstarf.
Nöfnin þeirra geyma gleymska og Saga.
I>eir gáfu oss þetta blessað land í arf.
Vér erum niðjar norsku víkinganna,
sem námu byggð um fríða Garðarsey,
og yfirgáfu hcldur heimaranna,
hjarðir, góss og fcðra grund, en ei
lifstrú, frelsi og sannfæringu seldu,
— þótt særði djúpt að höggva á ættarbönd, —
en sjálfstæðisins hreinum skildi héldu
og hug sinn duldu, er hvarf þeirn móðurströnd.
II.
Fjalla ey
í Atlants hafi
séð hefur margt
síðan byggðist:
Frumbýlinga
fögnuð og harm,
erfiðleika
og unna sigra.
Norrænt þjóðbrot
að nýju gróa
íraustum rótum
og tryggðir binda
sér í faðmi
og fóstru eignast.
— Brumknöppum skjóta
skuldar laust. —