Skinfaxi - 01.04.1939, Blaðsíða 2
2
SKINFAXI
Sér hún og man hún:
sína verða
frjálsa flóttamenn
fylkisborna.
Blómaöld rísa
búandstarfa,
drengi dáða
og dugþróttar.
I.and sér hún byggt
að lögum og friði.
Hraustar hetjur
héruð fylla.
Lýðríki stofna
lofðungsniðja,
Alþingi setja
að Úlfljóts ráði.
Sér hún og gullöld
glóanda rísa
lista og mennta,
er lýsir enn.
Andlegt atgerfi
og auðnu þjóðar,
haldast í hendur
við hreysti og drengskap.
Sér hún enn:
fyrir sundurlyndi
börn sín fornu
frelsi týna.
Bræður og frændur
banaspjótum
varpast á
— var það þyngst. —
Sér hún daprar
og dimmar aldir:
áþján, eymd
og ófrelsi.
Erlend yfirráð,
— einvalds kúgun, —
harðstjórn, siðleysi
og hjátrú blinda.
Sér hún og man hún
— seint það fyrnist —
ógnir elds
og ísavetra.
Fátækt, volæði
og vesaldóm,
hungur, hallæri
helslóð troða.
Sér hún og man:
— sælt er þess að minnast,
vorsól að nýju
verma þjóðlíf.
Eignast liún þá
afbragðs sonu,
er Island vilja
endurreisa.
Eignast hún þá
að ástmegi
foringjann fríða
frá Hrafnseyri.
Barðist hann ótrautt
— og aldrei vék —
fyrir Fjallkonu
frelsi og rétti.
Sér hún nú um tinda
sigurroða.
Norrænt merki
fyrir nýjum degi.
Bærist þá heitt
hjarta móður,
er Fróni veit fengið
frelsi nýtt.