Skinfaxi - 01.04.1939, Side 17
SKINFÁXI
17
HéraSsmót aS Þjórsártúni.
U.M.F. halda árlega fjölsótt íþróttamót víða um lan.d.
þær gera, og losmiðu þær þá við marga þá kvilla, er
kyrrsetur orsaka.
Konan og íþróttirnar. — Lengi var það hér á landi,
sem konurnar fóru á mis við íþróttirnar. Var talinn
einkarétt karlmannanna að iðka þær. Sú skoðun
iiefir liorfið, sem betur fer, með vaxandi þekkingu á
íþröttum og lieilsufræði. Allar þær greinir íþrótta, sem
nefndar eru liér að framan, eiga jafnt við konur sem
karla, nema glíman.
Hreysti konunnar er undirstaða að tápi og þreki þjóð-
anna. Líkamlega hraust móðir elur hrausta sonu og
dætur, en veikluð kona fæðir veikbyggð börn. Þetta
er reynsla allra þjóða.
Æskan og íþróttirnar. — „Þegar gagnið sameinast
gleðinni, þá er lífið hátíð“. Það er af mörgum hent á
það, að líf hvers æskumanns mótist mjög af því, hvern-
ig liann ver tómstundum sínum. -— Þeir, sem yndi
hafa af íþróttum, sameina i tómstundum gagn og gleði,
2