Skinfaxi - 01.04.1939, Qupperneq 23
SKINFAXI
23
virki, sem geymast um aldaraðir á spjöldum sögunnar.
Og að síðustu vil eg minna aftur á orð Westlings.
— „Þegar gagnið sameinast gleðinni, þá er lífið ]]átíð“.
— Framar öllu á þessi setning við íþróttirnar. — Þær
fameina fegurð og nytsemi, og efla gagn og gleði livers
æskumanns, sem er svo heppinn, að kynnast þeim á
réttum tíma, — meðan lifsfjörið ólgar og þarf útrás.
Halldór Kristjánsson:
Hugsjónir sameina.
Því er stundum slegið fram, að við, sem höfum alizt
upp í bindindi og aldrei fundið áhrif áfengis á okkur
sjálfum, séum ekki dómbær um áfengisnautn. Þeir,
sem slíkt segja, telja okkur ónóg, að sjá efnileg börn
verða auðnuleysingja og glæpamenn, félaga okkar sýna
öðrum manni líanatilræði, en kvenmann á bezta aldri
-biðja ókunnuga menn að gefa sér „strammara“, fátækan
heimilisföður koma allslausan úr góðri atvinnu, liraust-
an æskumann ganga um betlandi og góðan lækni viti
sínu fjær og öskrandi, svo að sjúklingar hans liafi ekki
svefnfrið. Hér er aðeins nefnt nokkuð af því böli, sem
eg hefi orðið vitni að sjálfur. Og einföld talnadæmi
gela flestir reiknað. Þetta finnst mér nóg til þess að
byggja skoðun á, og svo bætast kenningar visindanna
við þetta.
Okkur er hka stundum brixlað með því, að við séum
ofstækisfull og notum stór orð. Það er alveg rétt, að
við notum stór orð. Eg tel það mér til kosta, að mér
liitnar í hamsi og verður þungt í skapi þegar eg leiði
hugann að þeirri voðalegu heimsku, sem áfengisnautn-
in er. Eg tel það einkenni góðra drengja að taka ákveðna