Skinfaxi - 01.04.1939, Qupperneq 29
SIvINFAXI
29
í full 20 ár og fvlgt því upp og niður í „öldugangin-
um“. Og mér getur ekki dulizt, að handtökin verða
fastari og lialdbelri, eftir því sem starfsárum fjölgar,
og er það að miklu leyti byggt á reynslu liðinna ára.
Annars er merkileg lífseigja þessa félags. Það hefir
lengst af verið sannkall-
aður „Gyðingurinn gang-
andi“ — aldrei átt neitt
samkomuhús og heimilis-
fangið löngum á lirifs-
ingabjörgum. En á sið-
asta ári rætlist draumur-
inn — heimilið var stofn-
sett, samkomuhúsið bvggt.
Enda ekki seinna vænna,
því að fjölskyldan var
orðin stór - um sjötiu
manns. Aðalforgöngu-
maður húshyggingarinn
ar og formaður bygg-
inganefndar var Jólnmn
Bjarnason, verzlunarm. í Búðardal, — liinn sami, er
var forseti U. M. S. D„ þegar hin glæsilega sundlaug
var byggð að Laugum. Hann átli þá stærri þátt i, að
hún var byggð með þeim skörungsbrag, sem raun ber
vitni, en nokkur annar u.m.félagi í Dölum.
Sólvangur svo heitir samkomuhúsið — stendur
rétt ofan við kauplúnslóð Búðardals. Mestur hluti þess
er bjartur og rúmgóður salur, sem rúmar a. m. k. 200
manns í sæti. í öðrum enda er leiksvið, og klefar fyrir
leikendur beggja vegna sviðsins, en undir því er eldhús
o. fl. Húsið er úr steinsteypu, þiljað innan og málað,
og er af öllum talið rúmbezta og fegursta samkomuhús
í héraðinu.
Sunnan við húsið er hallandi brekkuborð, lilvalið
fvrir trjá- og blómagarð, en svðri liluti lóðarinnarer með
Jóhann Bjarnason.