Skinfaxi - 01.04.1939, Síða 30
SKINFAXI
30
allmikilli lagfæringu, liinn heppilegasti íþrótavöllur.
Munu félagar fastráðnir að liggja ekki á liði sínu naístu
árin við að fegra og bæta umhverfið. Margir þeirra
lögðu fram viku til liálfsmánaðar gjafavinnu við bygg-
ingu Sólvangs, og líkur benda til, að fórnarlund þeirra
sé ekki þorrin - og þrjóti ekki á næstu árum.
Sólvangur var vígður með almennri skemmtisam-
komu sunnud. í 14. viku sumars. Jóhann Bjarnason
flutti vígsluræðu og gaf húsinu nafn. Ragnar Jóliannes-
son stud. mag. flutti og ræðu. Tvöfaldur kvartett úr
Rvík söng við mikla hrifningu áheyrenda og Bjarni
Björnsson gamanleikari rak endahnútinn á samkom-
una — að undanteknum auðvitað dansinum. Talsvert
á 4. hundrað manns var á samkomunni og virtist
skemmta sér ágætlega — en ölvun sást þó ekki á nokkr-
um manni. — Eg vil skjóta því hér inn, að sama dag
var héraðsmót U. M. S. D. að Laugum og sásl þar held-
ur enginn ölvaður. Eg segi ekki þar með, að Dalamenn
fáist aldrei til að „skvetta í sig“ á samkomum. En
þenna dag sýndu þeir, livers þeir virða óskir ung-
mennafélaga. —
Þannig er þá heimili Ungmennafél. „Ólafs pá“ að
lokum reist. Það er bjart yfir nafni þess, en bjartara
þó um þær vonir, sem félagarnir tengja við nýja heim-
ilið. Vettvangur liins sanna ungmennafélaga verður
kanske bezt túlkaður með þessu bjarta orði: Sólvang-
ur. Þannig hygg eg a. m. k. að félagar mínir í „Ólafi
])á“ horfi til sinna margháttuðu verkefna. sem fram-
tíðin býður þeim —- að Sólvangi.
Eg get ekki skilið svo við „Ólaf pá“, að minnast ekki
á annan samkomudag félagsins á síðasla sumri. Þeim
degi var gefið nafnið Laxdælingadagur, Félagið hafði
þá hoð inni og bauð öllum Laxdælingum, ungum og
öldnum, að koma að Sólvangi og drekka með félags-
mönnum kaffisopa að góðum og gömlum sveitasið.
Borð voru þar skrevtt lifandi blómum og. íslenzkum