Skinfaxi - 01.04.1939, Qupperneq 40
40
SKINFAXI
II.
Helztu æfiatriði Blöndals voru i fáum orðum sem
liér segir:
Hann var fæddur í Leirárgörðum í Leirársveit 10.
ágúst 1883, en ólst að mestu upp i Stafholtsey í Mýra-
sýslu. Skólanáni stundaði hann fyrst á Hvanneyri, síð-
an í Askov á Jótlandi, við „Búnaðarháskólann“ í Kaup-
mannahöfn og víðar. Hann var því á sínum tíma einn
af menntuðustu húfræðingum þjóðarinnar, enda varð
hann kennari við búnaðarskólann á Eiðum að loknu
námi. Byrjaði liann starf sitl þar haustið 1908 og héll
þvi til 1918, en þá var búnaðarskólinn á Eiðum lagður
niður. Sama ár kvæntist hann eftirlifandi konu sinni,
frú Sigrúnu Pálsdóttur frá Hallormsstað. Um sama
leyti fór hann til Danmerkur og kynnti sér skólamál.
Heimsótti hann l)á marga af þekktustu lýðháskólunum
þar, kynnti sér starfsemi þeirra og vinnubrögð. Haust-
ið 1919 tók Eiðaskóli aftur til starfa. Hafði honum þé
verið I)reyll í alþýðuskóla. Varð Blöndal kennari við
hann, og einnig frú Sigrún kona hans. Vorið 1924 léln
þau af störfum á Eiðum, fluttu að Mjóvanesi á Völlmn
og stofnuðu þar sjálfstæðan unglingaskóla, sem starf-
aði nokkur ár. Siða breyttu þau lionum í liúsmæðra-
skóla og 1930 fluttu þau hann að Hallormsstað. Hefir
hann starfað þar síðan undir stjórn fréi Sigrúnar, með
styrk frá ríkinu.
Auk kennslunnar starfaði Blöndal mikið að allskonar
opinberum málum. Lengi var hann fulltrúi fyrir „Bún-
aðarsamband Austurlands“ á búnaðarþingi, i stjórn
þess og um skeið ráðunautur þess. Ilann var trúnaðar-
mað'ur Búnaðarfélags Islands frá ])ví, að það starf
varð til, í fasteignamatsnefnd og yfirskattanefnd Suð-
ur-Múlasýslu, i stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, Iirej)])-
stjóri og fleira.
III.
Aðalstarf Blöndals var kennslan, Hann rækti það