Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1939, Síða 44

Skinfaxi - 01.04.1939, Síða 44
44 SKINFAXI tæk að reynslu og óhörðnuð, komin úr fabrevtilegu umhverfi íslenzkra dala, fjarða eða útskaga. Lifið lá framundan okkur eins og óráðin gáta, þó að sumum okkar liafi ef til vill sýnzt liilla undir lönd æfintýranna úli í ósæi framtíðarinnar, og aðrir liefðu hugann fullan af fyrirætlunum. Við glímdum við ráðgátur iífsins af öllum mætti ótamins huga, eins og gengur, og allt þetta gerði hugi okkar gljúpa og móttækilega, þrátt fyrir aldur, sem í fjölbreytilegra umhverfi vafalaust hefði verið búinn að gera okkur fastari í sniðum og harðari lil mótunar; og enda þótt í þessum hópi væru fáeinir, sem misjöfn reynsla hafði sett merki sín á. Á þessa leið var efniviðurinn, sem Blöndal fékk þetta haust, og eitthvað svipað þessu nnm hann jafnan hafa verið. Blöndal skildi aðstöðu okkar og hann skorti hvorki vilja né hæfileika til að verða okkur að liði. Við kynntumst honum fljótt. Áður en varði litum við á hann sem persónulegan vin okkar, sem við treystum fvllilega. Hann var mikill mannþekkjari og vissi bráð- Iega meira um okkar innri mann, en okkur sjálfuin var Ijóst. Flestum fellur illa, ef aðrir menn skyggnast inn í hug þeirra, þótt í smáu sé. Gagnvart Böndal horfði ])etta öðruvísi við. Við vissum, að hann skorti hvorki viðsýni til að skilja okkur, umburðarlyndi með ]>vi, sem áfátt kynni að vera, né viljann til að leiðbeina, ef þess þurfti með. Meðal þeirra hundraða, sem kynntust Blöndal, annáðhvort sem nemendur hans eða á annan hátt, eru vist æði margir, sem eiga honum eittlivað að þakka sérstaklega, fram yfir það, sem nemendur eru olltaf skuldbundnir góðum kennara. Blöndal var ekki kennari aðeins i kennslustundunum. Hann umgekkst nemendur sína þannig, að öll hin hvers- dagslegu kynni, sem við liöfðum af honum, voru ])roskavænleg. Þau hjón áttu mikið bókasafn, — það stærsta, sem eg enn hefi séð í einstaklinga eigu. Við nemendur höfðum aðgang að því. Þau livöttu okkur

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.