Skinfaxi - 01.04.1939, Síða 46
46
SKINFAXI
koni þangað. Oft minntist liann á fegurð og tign aust-
firzkra fjalla, og það var vel fallið, að hann, sem allra
manna bezt kunni að meta fegurð náttúrunnar, skyldi
lifa síðustu ár æfi sinnar á einuni fegursta staðnum,
sem til er á þessu landi. Hitt finnast manni dapurlegri
atvik, að hann, þessi unnandi gróðurs og lífs, skyldi
anda út síðustu leifum lifsorku sinnar í helgreipum
frosts og snjóa, einmana og fjarri ástvinum.
hórólfur Sigurðsson:
Benedikt Jónsson frá Auðnum.
Aldursforseti samvinnustefnunnar hér á landi, Bene-
dikt Jónsson frá Auðnum lézt 1. febrúar þ. á. að heim-
ili sínu í Húsavík, rúmlega 93 ára að aldri. Hann var
fæddur að Þverá í Laxárdal 28. janúar 1846, sonur
hinna þjóðkunnu Þverárhjóna, Jóns Jóakimssonar og
Herdísar Benediktsdóttur. Benedikt ólst upp í foreldra-
húsum og kvæntisl rösklega tvítugur að aldri, Guðnýju
Halldórsdóttur frá Grenjaðarstað. Höfðu þau verið
heitbundin frá því um fermingaraldur. Reistu þau bú
á Auðnum, næsla bæ við Þverá, og bjuggu þar, þangað
lil þau fluttu til Húsavíkur 1904. Þau hjón voru mjög
samhent alla æfi, og tók Guðný fullan þátt i áhugamál-
um bónda síns.
Þegar mér barst andlátsfregn Benedikts á Auðnum,
fannst mér eins og slökkt hefði verið á leiftrandi vila,
sem í þrjá aldarfjórðunga hefir varpað birtu og yl yfir
mnhverfið. Geislavendir vitans náðu eigi aðeins vfir
Þingeyjarliérað, lieldur landið allt að lokum.
Benedikt á Auðnum var einn af elzlu og áhrifamestu
frumberjum samvinnustefnunnar á íslandi. Hann hafði