Skinfaxi - 01.04.1939, Síða 58
58
SKINFAXI
livíldarstunda. Það var því sem liún vaknaði af
draumi, er ungu stúdentarnir kölluðu á iiana fagnandi
röddum, þeim einum, er hún kannaðist við innan úr
æfintýraheimum sínum, að þeir hefðu fundið æfintýra-
heiminn sjálfan!
Æ feiri og fleiri æskumenn lögðu leið sína út af al-
mannaleiðunum í frístundum sínum og úr þessu varð
þjóðarhreyfing, sem brátt barst víða um lönd. Göngu-
maðurinn, sem ekki þræddi rudda vegu eða kunna
stigu, heldur lagði leið sina þangað eitl, sem honum
þóknaðist í það skiptið hann fékk nafnið Wander-
vogel - Farfugl - og þar sem er liinn fyrsti hópur þess-
ara ungu bartsýnu manna, sem leituðu út í hina kyn-
legu skugga skóganna að æfintýraheimnum, sem þeir
í sögunum liöfðu lifað í og vildu finna, þar á far-
fuglahreyfingin upptök sín.
Landið þitt og mitt — land íslendingsins er líka
beimkynni undarlegra æfintýra, lieillándi töfrahalla,
seiðfagurra og lokkandi drauma.
Gegnum aldiruar bafa ]>au fylgt þjóðinni í meðlæti
og mótlæti.
Á þeim árum þegar harðrétti, eldgos og óáran vörp-
uðu skugga á líf hennar, tóku íbúar æfintýralandsins á
sig myndir kynlegustu óvætta. Öræfin og óbyggðirnar,
allt að útlínum byggðanna eru fyrst og fremst heim-
kynni þeirra, full af ógnum og eyðileggingu. Þar heyja
stríð eldur og ís, óhemjuleg jökulvötn, og landið, sem
berst fyrir tilveru sinni, þar sem jafnvel einstök strá
beyja vonleysislega baráttu við mögn dauðans úti á
endalausum auðnunum.
En þess í milli er landið „fagurl og frítt og fannhvítir
jöklanna tindar, himininn heiður og blár og hafið skin-
andi bjart.“
Þessari sjón hefir öræfaferðalangurinn ótal sinnum
staðið gegn i þögulli aðdáun. Enginn okkar, sem hefir