Skinfaxi - 01.04.1939, Qupperneq 61
SKINFAXI
61
efnum, með ótal nýjum átökum við að klæða landið og
vernda náttúru þess og fegurð.
Farfuglafélögin vilja beina leiðum hvers ungs manns
og ungrar komi til sjávar og sveita út í náttúruna, til
nánustu kynna við þau öfl, sem fyrst og fremst liafa
niólað þjóðina frá því liún festi hér hyggð.
Stefnuskrá félaganna er sem hér segir:
„B. í. F. er óliáð samtök æskumanna, sem leggja
vilja land undir fót eða ferðast á reiðhjólum, og er
með öllu hlullaust um stjórnmál.
Markmið er:
a) Að beitast fvrir því að æskulýður landsins taki upp
ódýr og óbrotin ferðalög, fótgangandi eða hjólandi;
I>) að efla kynning, félagsþroska, starfsþrótt og lífs-
gleði æskulýðsins með útivist og heilbrigðu samlífi
við náttúru landsins;
c) að auka þekking æskunnar á landinu, opna augu
bennar fyrir fegurð' þess og ótæmandi möguleikum “
Eins og sjá má af stefnuskránni, er ætlunin að ferð-
ast á svo einfaldan hátt, sem liægt er.
Fyrir þessum ferðum verður greitt á margan hátt.
Fræðslumálastjórnin hefir þegar lofað afnotum af
skólahúsum um alll land lil þess að gisla i. Einnig
mun verða leitað sanminga við Ferðafélag fslands um
afnot al' sæluhúsum þess uppi á fjöllum, og alveg sér-
staklega snúum við okkur lil ykkar, ungmennafélagar,
um stuðning hvað viðvíkur húsnæði og um það að gera
ferðalög æskumanna i sveitum almennari en verið
hefir. Með ]ieim húsakosti, sem þannig fæst, verður
byggt upp net af gististöðum um allt landið, sem fara
má á milli á degi. Þangað verða látnar dýnur, teppi og
eldunaráböld, svo að fólk þarf aðeins að bafa með sér
nesti.
Ungmennafélög um land alll hafa að visu beitt sér
fyrir ferðalögum um landið, en utan þess sem einstök