Skinfaxi - 01.04.1939, Blaðsíða 62
SKINFAXI
62
lélög liat'a gert, hefir ekkert sérstakt verið gert til þess
að efla þessar ferðir, gera þær almennar og vinsælar.
Farfuglarnir haga ferðum sínum þannig, að liópur
manna leggur upp í ferð og fer til einhvers gististaðar
i grenndinni.
Hvert sem ferðmni kann að vera heitið, er farið ró-
lega yfir landið, það skoðað, gengið á fjöll, er á leið-
inni eru, og að lokum, er að kvöldi er komið í gististað,
þar sem e. t. v. hópurinn liefir mælt sér mót við annan
hóp úr nærliggjandi héraði eða sýslu, þá er slegið upj)
kvöldvöku, sungið, sagðar sögur og æfintýr, þar til
gengið er lil náða.
Kosturinn við það, að allir þeir æskumenn og konur
sem ferðasl vilja um landið, hafi með sér sameiginleg-
an félagsskap, er auðsær. Á þann hátt má úthúa svo
marga gislistaði, að alstaðar geti menn hafzt við, án
þess að þurfa að flýta sér burt af þeim stöðvum, sem
þeir kynnu að vilja dvelja lengur á.
Hópar úr hinum ýmsu héröðum geta hitzt á tiltekn-
um stöðum, ferðazt saman, ferðalangarnir i þeim
kynnzt hverir öðrum, um leið og þeir kynna sér land
sitt.
Alveg sérstaklega tel eg þetta mikilsvert Iivað snertir
kynningu æskunnar við sjó og í sveit.
Það er engu líkara en áhrifin frá tímanum, sem eg
minntist á liér að framan, hafi skipt þar þjóðinni í
tvo næstum fjandsamlega flokka. .
Það liggur í augum uj>pi, að ekkert getur verið meiri
misskilningur. —Velferð sveitanna getur á engan hátt
byggzt á því, að afkoman við sjóinn sé slæm. Þvert á
móti.
Þessar ferðir ættu þvi að geta orðið einskonar stór-
kostlegur skóli fyrir æsku landsins — skóli, þar sem
hún við þá náttúru, sem fóstrað hefir hana og sem hún
her svip af, læri að þekkja sjálfa sig og land sitt.
Mörgu ódýru gististaðirnir og einföklu ferðalög-