Skinfaxi - 01.04.1939, Síða 64
SKINFAXI
64
hefir fengið meðal þeirrar æsku, sem lil liefir náðst.
Fyrsta deildin var stofnuð með yfirgnæfandi meiri-
hluta nemenda úr Menntaskólanum i Reykjavík, eða
150 félögum. Síðan liafa verið stofnaðar deildir í öðr-
um skólum bæjarins, við ámóta þátttöku, deild utan
skólanna, og loks samband farfuglafélaganna.
Fyrir nokkuru fórum við nokkur austur að Laugar-
vatni og Haukadal til þess að kynna hreyfinguna þar,
og munum við seint gleyma þeim hlýju móttökum,
sem við fengum þar. Vil eg liérmeð fyrir hönd mína
og félaga minna færa skóJastjórunum Bjarna Bjarna-
syni og Sigurði Greipssvni, ásaml nemöndum beggja
skólanna, alúðar þakkir.
Ungmennafélagar um land allt! Til ykkar snúum
við nú máli okkar og heitum á ykkur til öflugs stuðn-
ings og þátttöku í því, að gera Farfuglahreyfinguna
að eign hvers einasta æskumanns í landinu.
Landið okkar með hinni björtu sól og tæra lofti er
ótæmandi heilsubrunnar. Háu fjöllin og binir fann-
hvítu jöklanna tindar lyfta okkur í mikilleik sínum
uppyfir útsvnið úr glugga liversdagsleikans, og gera
okkur viðsýn og bjartsýn.
Samhjálp í að klífa hin bröttu fjöll gerir okkur fé-
lagslynd og fær um að leysa sameiginlega þau verk-
efni, sem við í trausti á landið okkar og óbilandi trú á
framtíð þess öll lilökkum lil að taka á.
Leiðrétting.
Meinlegar prentvillur slæddust í greinina Landvörn i sið-
asta Skinfaxa. Lesendur eru beSnir að leiðrétta eftirfarandi:
Gunnlaugur Kristmundsson er fæddur 2(i. júní 1880 (ekki
2. júní). Girl sandgræðslusvæði eru um 30.000 ha. (ekki 40
—50 þús.).