Skinfaxi - 01.04.1939, Side 66
SKINFAXI
66
En skoðun sína á þessum málum byggir hann á þeirri stað-
ieynd, að skynsamleg iþróttaiðkun sé sú undirstaða, sem and-
ieg og líkamleg heilbrigði þjóðarinnar byggist á Og munu
atiir geta fallizt á, að almenn íþróttaiðkun sé þjóðinni holl-
ari, heldur en að fáir útvaldir eyðileggi sjálfa sig með for-
sjárlausu kappi við að „slá“ sín eigin og annarra met.
Einn af uppáhaldssöngvum íslenzkra æskumanna, nú um
langan aldur, er söngurinn um táp og fjör og fríska menn.
í þessum ljóðlínum skáldsins speglast þrá þjóðarinnar, á
ollum öldum, eftir þróllmiklum og síbatnandi sonum og dætr-
um. Og það er vist, að á engu ríður meir, fyrir framtíð okk-
ar fámennu þjóðar, en að það takist, að ala svo upp hina
vaxandi kynslóð hvers tíma, að hún verði tápmikil og frísk
lii líkama og sálar, og þolgóð í hverri raun, sem að steðjar.
En öruggasta leiðin að þvi marki er almenn og alhliða
iþróttaiðkun unga fólksins. Og þess vegna verður þeim
mönnum aldrei fullþakkað, sem — eins og Sigurður Greips-
son — verja til þess fé sinu og fyrirhöfn, að vekja áhuga og
skilning almennings á hinu sanna gildi íþróttanna.
íþróttaskólinn í Haukadal hefir nú starfað í 12 ár. Öll þau
ár hefur Sigurður staðið einn áveðurs við þessa stofnun sina,
svo að segja óstuddur af öllu, nema kolhörku sinnar eigin
skapgerðar og viljafestu,- og hlýhug og góðvilja getulílilla
ungmennafélaga.
En þrátt fyrir ótal örðugleika er Sigurður enn beinn í baki
og glaður og reifur, hvar sem hann ber að garði. Haukadals-
skólinn þarf ekki meðmæli, vegna þess að hann hefir nú þeg-
ar mælt með sér sjálfur, að á hverjum vetri er þar nú yfir-
fullt af nemöndum, sem sækja sér þrótt og manndóm á hiö
fornfræga höfuðból Haukdæla, undir forystu eins hins ágæí-
asla ungmennafélaga, sem um gelur.
Og á slikum stað er ungum mönnum gotl að dvelja, þar
sem saman fer ágæt handleiðsla skólastjórans og sögulegar
minningar staðarins eggja til dáða.
Því að eins og skáldið segir:
„Það er eins og mold sú sé manni þó skyld,
sem mæðrum og' feðrum er vígð.“
Og vel væri það farið, ef ungmennafélagar og aðrir vildu
ininnast þess, að Haukadalsskólinn og starfsemin þar stend-
ur feli framar mörgu l>ví, sem rekið er fyrir meiri og minni
slyrki af opinberu fé.
Þeir, sem þekkja Sigurð Greipsson og skólann hans, munu