Skinfaxi - 01.04.1939, Síða 68
68
SIÍINFAXI
Mang og nokkur kostna'ður fyrir þá einstaklinga, sem lengsi
þurfa að sækja þetta mót. En vart má ætla skemmri tíma en
viku til þessarar ferðar. Nú á tímum er um margs konar far-
kost að ræða, og geri ég ráð fyrir, að hver velji sér þann,
er hezt hentar,
Kynnisfarir hafa veiúð farnar milli landsfjórðunga, og
hefir einkum eldra fólkið verið þar á ferðinni. Yngri kyn-
slóðin hefir lítið látið á sér bera um slík félagshundin hóp-
ferðalög. A þó sízt við að liregða æskunni um það nú á tím-
um, að hún sitji kyrr á sama stað. Eg tel vafalaust, að ár-
angur þessa móts geli orðið þýðingarmikill fyrir ungmenna-
felagsstarfsemina i landinu, enda er það og takmarkið.
Ungmennafélög viðs vegar að af landinu efna til skemmti-
móts á einum fegursta stað landsins. Um leið gefst þeim
kostur á, er um langan veg er að sækja, að kynnast land-
inu, og að því einu er gagn og gaman. Félögin þurfa þegar
að ræða þetta mál. Hvert héraðssamband verður að kjósa
sér forystumenn til undirbúnings, hæði um þátttöku og ferða-
lag, Iþróttamenn þurfa að þjálfa sig til þátttöku og ung-
roennafélagar yfirleitt að gera sér grein fyrir þátttöku fyrr
en seinna. Fólk getur að nokkru búið sig undir tilkostnað-
inn, með þvi að spara sér þegar einhver miður þörf útgjöld
og safnað þannig lil þess tima í eins konar ferðasjóð.
Annars er sjálfsagt, að hver búi sem mest að sínu, hafi
tjald og jafnvel nesti að heiman, og spari sem mest beinu
útgjöldin. j i!; f | hllli i
Eg veit, að við erum flest fátæk að fé. En ef við berum
eld áhugans í brjósti, nennum að lifa í landi voru og vinn-
um saman sem sannir ungmennafélagar, ]iá erum við ekki
fátæk.
í stuttu máli: Takið þetta mál þegar lil íhugunar, stingið
því ekki svefnþorn, hrindið því i framkvæmd.
Siðar munu félögin fá nánari tilkynningu um væntanlegt
fyrirkomulag mótsins o. s. frv.
Fagnaðarfréttir.
Ungmennasamband Eyjafjarðar hefir gengið í U.M.F.Í. Þar
eru sjö félög með fullum ö()0 mönnum, og von á þremur fé-
lögum i viðbót. Formaður sambandsins cr nú Jóhannes Óli
Sæmundsson, kennari. — Hjartanlega velkomnir aftur i hóp-
inn, gömlu félagar!