Skinfaxi - 01.04.1939, Page 72
72
SKINFAXI
skóla og samkomuhúsa. En einmitt þar er mikið verkefni
fyrir Umf. víðsvegar um landið.
Er þá skýrslu minni lokið i þetta sinn.
Með kærri ungmennafélagskveðju. íslandi allt!
Daníel Ágústínusson.
Félagsmál.
Ileiðursfélagar.
U.M.F. Von á Rauðasandi hefir kjörið þessa menn heiðurs-
félaga sína:
Eyjólfur Sveinsson, kennari að Lambavatni. Hann stofnaði
ungmennafél. Von 1910, þá nýkominn úr skóla i Noregi. Hann
var þá þegar kjörinn formaður, og var það að jafnaði síðan.
Er Von var endurreist 1937, gerðist hann félagi hennar, en
baðst undan stjórnarstörfum fyrir aldurs sakir, þá 51 árs.
Er Von byggði samkomuhús sitt, í mestu dýrtíð stríðsáranna,
lánaði hann félaginu allmikla peningaupphæð, vaxtalaust, án
nokkurrar tryggingar né skilyrða um greiðslu, öðrúvísi en
eftir hentugleikum. Eyjólfur Sveinsson er áhugasamur félags^
maður, og hefir fyrr og síðar unnið að félagsmálefnum ann-
arra ungmennafélaga í hreppnum.
Guðbjartur Egilsson, Lambavatni. Hann varð félagi U.M.F.
Vonar 1913, þá ungur að aldri. Gjörðist hann þá þegar liinn
nýtasti félagsmaður. Hann var því kosinn féhirðir félagsins
nokkrum árum síðar, og gegndi þvi starfi, þar til Von bætti
störfum i fámenninu árið 1930—31. Enda þótt hann, heimilis-
ástæðna vegna, gæti ekki tekið þátt í viðreisnarstarfinu 1937,
lier hann hag félagsins fyrir hrjósti, og er góður stuðnings-
maður þess, ekki sízt er það hefir þurft á smíði að halda,
hvort heldur á tré eða málm.
U.M.F. Von þakkar þeim fyrir unnið starf.
I. fvarsson.
Skuggamyndir.
Tvö undanfarin ár hefir Ungmennasamband Borgarfjarðar
(U.M.S. B.) unnið að því að koma sér upp skuggamynda-
safni. Eru nú alls um 150 skuggamyndaplötur fullgerðar, og
eru það flest myndir af landslagi og atvinnuháttum úr Borgar-
fjarðarhéraði, Ákveðið er að halda áfram að safna slíkum