Skinfaxi - 01.04.1939, Qupperneq 73
SKTNFAXI
73
myndum, og ennfremur að fá í safnið myndir af merkismönn-
um og sérkennilegum mönnum úr héraðinu. Hverri mynd
fyigir skrifuð skýring, til leiðbeiningar fyrir þá, sem sýna þær.
Myndir þessar geta einstaklingar, skólar, ungmennafélög og
önnur félög, fengið aö láni, til sýningar, gegn 10 aura gjaldi
fyrir hverja mynd, enda greiði lántakandi flutningskostnað
og beri fulla ábyrgð á myndaplötunum, frá því að safnið
afbendir þær og þar til þær koma til þess aftur. Skólar og
ungmdnnafélög innan vébanda U.M.S.B. fá myndir þessar
gegn 5 aura gjaldi á mynd, þó með því skilyrði, að þær séu
ekki sýndar á opinberum samkomum né aðgangur seldur að
sýningunni.
Þeir, sem kynnu að óska eftir að fá myndir þessar lánað-
ar, snúi sér til stjórnar U.M.S.B.
Ferð um Borgarfjörð.
Sambandsritari U.M.F.Í., Daníel Ágústínusson, ferðaðist með-
al Umf. í Borgarfirðinum 2.—11. jan. síðastl. Flutti bann er-
indi um starfsemi Umf. o. fl. í 7 Umf. Alls eru í U.M.S.B.
10 starfandi félög. Höfuð málefni margra er bygging heima-
vistarskóla. Er gert ráð fyrir skólum, sem nái yfir 2—3 sveitir.
Ennþá er enginn heimavistar-barnaskóli í Borgarfirðinum.
Má það teljast einkennilegt í jafn glæsilegu og annars vel
byggðu héraði.
Þá heimsótti sambandsritari skólana að Hvanneyri og Reyk-
holti. Þar dvelja nú um 150 æskumenn. Má gera miklar vonir
til þess fólks,um baráttu fyrir málefnúm Umf. Er ekkert eðli-
legra en að alþýðuskólarnir séu miðstöð ungmennafélags-
starfseminnar í hverju héraði. Og rætast þá einmitt glæsileg-
ar vonir, sem margir brautryðjendur alþýðuskólanna tengdu
við þá,
Starfsemi Ungmennasambands Borgarfjarðar er mjög vax-
andi. Má m. a. nefna bið merka Skuggamyndasafn af lands-
lagi, menningar- og atvinnulífi Borgarfjarðar. Er það þegar
orðið mikið að vöxtum og stöðugt aukið. Er þetta athyglis-
vert menningarstarf, sem önnur héraðssambönd ætlu að taka
til atbugunar. Flestir myndu vilja kaupa slikt safn dýru verði.
þó eigi væri nema frá síðastl. öld. Þá byggst sambandið að
gefa út árbók, sem standi að vissu leyti í sambandi við skugga-
myndasafnið, geymi sögulegt ágrip af héruðum, menningar
og atvinnulífi, einstökum mönnum og félögum, sem myndir
eru til af, þó einkum sögu sambandsins; þá greinar um mál-
efni Umf. almennt. — í vetur hefir sambandið haft skíða-