Skinfaxi - 01.04.1939, Side 75
SKTNFAXI
/0
Mislynd vetrarveðrin stríð
verði’ oss hvöt til sátta,
geri’ oss samlynd, góð og blíð.
Gleymum helzt að þrátta.
Framundan ef sýnist svart,
sælusnautt og gagurt,
gerum lífið ljúft og bjart,
ljóssækið og fagurt.
Seinna, þegar sól og vor
sumarkomu boða,
aukast þá vor útispor
— engar vomur stoða.
Þá er margt, sem æpir að
oss — þó hér ei telji.
Hver og einn á hverjum stað
hagkvæm störfin velji.
Viðlag: Stígum á stokk
og strengjum fögur heit.
Vinnum allt til velferðar
vorri þjóð og sveit.
Bækur.
Jónas Jónsson: Komandi á r. IV. bindi. Merkir
samtíðarmenn. Útgefandi: Samband ungra Fram-
sóknarmanna. Reykjavík 1938.
Ég þori ekki að fullyrða, þó að mér þyki það sennilegt,
að Jónas Jónsson hafi skrifað mest allra islenzkra rithöf-
unda. En hitt er vist, að enginn þeirra hefir haft jafnmikil
og víðtæk áhrif og hann með skrifum sínuin. Og ]jað, sem
hann hefir bezt skrifað, stendur i fremstu röð íslenzkra bók-
mennta á sinu sviði, um orðkyngi, hugarflug og framsetn-
ingu. Gildir þar einu, hvort við á rökfimi og hvassleiki í
ádeilum og sennum, eða skáldleg fegurð i skrifum um menn
og staði, bókmenntir og listir. Flestar blaðagreinar gleym-
ast óðar en þær eru lesnar. En 11)—20 ára gamlar blaðagrein-