Skinfaxi - 01.04.1939, Qupperneq 80
80
SKINFAXI
kvæðið öðru snjallara, leikandi „Iýrik“, vel dregnar myndir,
snjallar líkingar, fjölbreytni í orðavali og hressandi tilbreyt-
ing í rinii. Hér skal aðeins tili'ært eitt erindi (úr kvæðinu
Boltaleikur), til að sýna hvernig skáldið túlkar ljúfsáran trega
liðinnar æsku:
Eg hef setið og gætt þín og gleymt mér,
leikur þinn
er svo léttur og hlýr.
Hann, sem var eitt sinn mitt yndi,
er orðinn framandi og nýr.
Hann kveikti á sólinni og kallaði á vorið
og komist eg inn fyrir takmörk hans,
þá á máske lítið erindi þangað
fávis alvara
fnllorðins manns.
Hér eftir verður óhjákvæmilega tekið fyllsta lillit til bónd-
ans á Kirkjubóli í Hvítársíðu, á skáldþingi íslendinga.
Nýjar félagsfréttir.
Um það leyti, sem þétta hefti Skinfaxa kemur út, fer ung-
ur sendimaður U.M.F.Í., Þórarinn Magnússon frá Hrútsholti
í Hnappadalssýslu, formaður Umf. Árroða í Eyjahreppi, ut-
an lil verklegs húnaðarnáms í Svíþjóð. Mun hann fyrst dvelja
þár fimm mánuði í bþði sænska 'búnaiðarsambandsins, á
kennslu- og fyririnyndarbúi þess á Suðurmannalandi. Eftir
það mun hann kynna sér „Jordbrukareungdomens Förbund“,
fyrirkomulag jiess og starfshætti, og vinnubrögð æskulýðs-
ráðunauta liess. Er fyrirhugað, að Þórarinn vinni að því, er
heim kemur, að skipuleggja búnaðarstarfsemi U.M.F.Í. og
vinni fyrir það sem æskulýðsráðunautur um landbúnað.
20. marz var eudurstofnað Ungmennasamband Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu. Hafði það ekki starfað undanfarið, enda
voru sambandsfélög ekki nema þrjú. Átta félög eru nú í sam-
bandinu. Það hefir gengið i U.M.F.Í., en fjögur félaganna
hafa ekki verið i því fyrr. Hefir sambandsfélögum U.M.F.I.
fjölgað um tiu i marzmánuði (sex í Eyjafirði, fjögur á Snæ-
fellsnesi), og eru þau nú 75.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN II/F.