Skinfaxi - 01.11.1946, Side 33
SKINFAXI
85
4.—6. júlí síðastl., en þar var og liáð 25. afmælishátíð
ungmennafélagsins þar. Boðsbréf hafði verið sent til
Ungmennafélagasambanda i Danmörku, Sviþjóð,
Binnlandi, Færeyjum og á Islandi, og þeim boðið að
senda fulltrúa á mótið og vikivakaflokka, þar sem
þeir voru til. — Færeyingar gátu enga fulltrúa sent,
vegna samgönguleysis. Engir Finnar gátu mætt, vegna
þess að þeir fengu ekki gjaldeyri, sem nægði þeim
til og frá norsk-sænsku landamærunum, en Norges
Ungdomslag hafði hoðizt til að kosta för og dvöl
Finnanna að öllu leyti eftir að þeir kæmu á norska
grund.
Fulltrúar fyrir Ungmennasamband Islands voru
Skúli Norðdahl stúdent, K.höfn, og undirritaður. Þá
voru og þessir íslendingar viðstaddir við hátíðahöld-
in: Ástríður Sigurmundsdóttir (kona undirritaðs),
Sigríður Kærnested, og Helgi Hjörvar, skrifstofustjóri
rikisútvarpsins.
Hátíðahöldin hófust 4. júlí í Þrándheimi, en lauk
á Stiklastöðum 7. júli. Auk fulltrúa Dana og Svía
mættu af þeirra hálfu ca. 30 manna vikivakaflokkar
frá hvorri þjóð. Um 1400 norsk ungmenni höfðu til-
kynnt komu sina, og munu þau flest hafa mætt. Setti
þessi fríði æskumannahópur sannarlega sinn svip á
Þrándheimsbæ dagana, sem hátíðahöldin stóðu. Jók
það mjög áhrifin, að flest voru ungmennin klædd þjóð-
búningum, sem eru litsterkir og fagrir, einkum hún-
ingar kvennanna.
Hátíðahöldin liófust með því, að formaður U.M.F.
Þrándheimsbæjar, lector Ove Bakke, bauð gesti vel-
komna. Þá tók næstur til máls Knut Eik-Nes, prófast-
ur, en hann er formaður Noi’ges Ungdomslag. Setti
hann mótið. Minntist hann fyrst þeirra Norðmanna,
er létu lífið í haráttunni fyrir frelsi Noregs í síðasta
heimsstríði. Fánaberar, er stóðu i hálfhring hak við
i'æðumann, létu fánana drúpa meðan minningarorð-
7