Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1950, Síða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1950, Síða 26
Bj örgunarlaun Saga eftir C. J. Cuteliffe-Hyne Það var molluhiti og kyrrt í veðri þetta kvöld, en talsverð undiralda úr norðaustri eftir margra daga blæjalogn. Sjórinn logaði eins og rosaljós, og heitur, svartur himininn glampaði eins og maurildi. Þegar skipið stakk stefninu niður í öldudal, hamaðist skrúfan í vatnsborðinu og þeytti upp eldhjóli aftan við skutpallinn. 1 káetu sinni lá skipstjórinn ofan á rúmföt- unum, í skyrtu og baðmullarbuxum og með húf- una á höfðinu. Bússurnar hans og olífötin lágu tilbúin í hrúgu á gólfinu. Hann svaf af mikilli ástundun og bjó sig undir það, sem koma skyldi. Á stjórnpallinum stóðu annar stýrimaður og norskur háseti og héldu gufuskipinu Paraguay á stefnunni. Þeir voru báðir á varðbergi, og á stundarfjórðungs fresti þrammaði hásetinn nið- ur stiga-nn og leit íbygginn á loftvogina í káetu- ganginum. Og í hvert skipti, sem hann lcom aft- ur upp, bölvaði stýrimaðurinn lágum rómi, en af mikilli tilfinningu. Einn maður enn af skipshöfninni var sjáan- legur ofanþilja. Ha-nn gekk þegjandi fram og aftur á framlyftingunni, renndi augunum til og frá út í nóttina, alltaf sama hringfjórðung- inn, og á hálftíma fresti, eftir að bjallan hringdi, tilkynnti ha-nn dimmum rómi, að allt væri í góðu gengi. Auk þess heyrðist stöðugt marr, eins og í nýjum skóm, svo að menn hefðu getað haldið, að fleiri væru á ferli. En þetta hljóð kom frá skipinu sjálfu. Það var komið til ára sinna, og öldurnar voru brattar, og við hverja dýfu ískruöu hnoðnaglamir og börmuðu sér. Bjallan hringdi, klukkan var hálf-tólf, og ann- ar stýrimaður hugsaði með sér, að eftir þrjá- tíu og fimm mínútur skyldi hann vera farinn að hrjóta í koju sinni, hvað sem öllum hvirfil- vindum liði. Senn var ábyrgð hans og skyldum lokið, og þá yrði hann frjálsari maður. Hann var að ganga fram og aftur um brúna eins og venjulega, upp eða niður í móti, eftir því sem skipið veltist á öldunum, þegar hann snarstanz- aði frama-n við kompásskýlið og sneri sér snögg- lega á hæli. Eins og flestir sjómenn hafði hann þann undarlega eiginleika, að hann virtist sjá með hnakkanum, og nú fannst honum sem ljós hefði stigið upp úr sjónum langt úti í myrkr- inu. Ljósið í kompásskýlinu blindaði hann, og hann gekk út á enda stjórnpallsins, teygði höf- uðið út yfir stormhlífina og horfði þangað út í myrkrið. Eldingarnar glömpuðu á himninum, og maurildin glóðu á sjónum, en annað var ekki að sjá. Þá sneri hann sér við og kallaði: „Varðmaður, sástu nokkuð á vindborða fyrir svo sem mínútu síðan?“ „Nei, ég hef ekkert séð“, svaraði varðmað- urinn á framyftingunni með syfjulegri rödd. „Jæja“, tautaði annar stýrimaður við sjálfan sig. „Það hefur líklega verið stjörnuhrap". Samt hélt hann áfram að stara út yfir stormhlífina, og eftir nokkra stund blístraði ha-nn hátt og sagði: „Hvert í logandi! Hvað var þetta?“ Eldingarnar höfðu rénað í bili, og í myrkrinu fyrir framan hann steig bogamynduð eldrák hægt í loft upp, unz hún va-rð að bjartri sól, sér átta- þúsund í björgunarlaun lögum sam- sem sundraðist í ótal örsmáar stjörnur. Annar stýrimaður beið ekki boðanna. Hann stakk flautu milli tannanna og blés, þangað til háseti kom skjögrandi út úr horninu, þar sem hann hafði legið og mókað. Stýrimaðurinn gaf lionum skipanir sína-r, og eftir hálfa mínútu voru þær framkvæmdar. Paraguay svaraði með eldflugu, sem þaut hvæsandi upp í loftið. Eins og aðeins hefði verið beðið eftir þessu, steig önnur eldfluga úti í myrkrinu, og síðan sú þriðja, og enn fleiri. Auk þess fékk stýrima-ð- urinn aðrar upplýsingar, sem tóku af allan vafa um, hvað að væri. Paraguay va-r með briggskips- reiða, og stýrimaðurinn hafði fengið hásetanum næturkíki og sent hann upp á bramseglsrána til þess að vita, hvort nokkuð meira sæist þaðan. Kallið kom tafarlaust: „Þrjú rauð ljós, hvert upp af öðru, á stjórnborða“. Og skömmu síðar: „Nú sést það í eldingunum. Þetta er stórt gufu- skip, og veltist stjórnlaust í ölduganginum, svo sem fimm mílur í burtu. Það er svartmálað, og ég gæti trúað, að það væri hér um bil sex þús- 2B4 V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.