Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1950, Side 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1950, Side 30
stjórnarmanna heimta, að aldrei sé skýrt frá því, þegar hurð skellur svo nærri hælum. Sjó- slysin sjálf, sem ekki er hægt að leyna, gera venjulega farþega nógu skelkaða fyrir því. Hann sagði það, sem segja þurfti, með þeirri mælsku, sem hann átti til, og fór síðan aftur yfir í flakið sitt og tók vaktirnar á móti öðrum stýrimanni alla leið yfir Karabíska hafið. Það tók Paraguay átta daga siglingu, áður en beygt var fyrir höfðann hjá Port Royal, og allan þann tíma vall reykurinn beint upp úr vélarskýlinu og aftur þilfarið. En þegar Kingston blasti við með hvítum strætunum undir fagurgrænum trjánum, og bæði skipin vörpuðu akkerum í höfninni, klæddi Owen Morgan sig í sparifötin og fór aftur um borð í Tampico. Þar voru honum haldnar ræður og færð gjöf. Fyrst var honum rétt langt þakkarávarp með mörgum undirskriftum, sem honum þótti álíka mikið til koma og flestum öðrum mönnum. En síðan var honum fært „annað áþreifanlegra tákn virðingar okkar og þakklætis“, sem sé sjö hundruð sterlingspund, og það þótti honum miklu meira um vert. Það liðu tvö ár, áður en hann gómaði tólf þúsund pundin, sem dæmd voru í hans hlut af björgunarlaununum fyrir Tampico. En hann notfærði sér þau vel, og nú klæðist frú Morgan svörtum silkiklæðum og ber dýra úrfesti þvert yfir brjóstið, ungfrú Morgan er að læra kjóla- saum, og herra Morgan hinn yngri er Meþó- distaprestur og augasteinn föður síns. Þar eð ég er trúnaðarvinur Morgans skip- stjóra, er mér kunnugt um, að hann er reiðu- búinn til að leggja líf sitt aftur í hættu, ef honum gæfist álíka tækifæri. Þeir tjösluðu Para- guay saman, máluðu það og settu á það reyk- háf, en þrátt fyrir öll þessi útgjöld vildi bi'ezki skipaskoðnarmaðurinn ekki viðurkenna það sjó- fært. Hann drakk hið ágæta kampavín eigand- ans, fleiri flöskur af því, en samt hristi hann höfuðið. Hann var afar einþykkur maður. Þess vegna er nú Paraguay skrásett í Noregi, og ískrar og barmar sér meira en nokkru sinni fyrr, þegar vont er í sjóinn. Morgan skipstjóri er nærgætinn við hrörleg skip — en ég er hræddur um, að hann drukkni áður en langt um líður. En ef til vill eru það aðeins makleg málagjöld fyrir gamlan, geðillan karl, sem bjargaði fullu skipi af farþegum aðeins vegna peninganna. Hefði hann verið gæddur svolítið göfugri hugsunarhætti, þá hefði hann hugsað meira um sína eigin áhöfn og látið dráttar- taugina slitna — óviljandi. Á síldveiöum með herpinót. 2BB VÍKINPUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.