Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1950, Síða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1950, Síða 37
70 ára: Benóný Stefánsson stýrimaður Benóný er fæddur 28. nóvember 1880 að Hólum í Dýrafirði. Foreldrar hans voru þau Sigríður Benónýsdóttir og Stefán Guðmunds- son, bóndi að Hólum. Benóný missti föður sinn hálfs árs gamall. Fórst hann í hákarlalegu. — Tveggja ára gamall fluttist hann með móður sinni að Meðaldal í Dýrafirði. Þar ólst hann upp til fullorðinsára. 1 Meðaldal var Benóný í vinnumennsku hjá hinum þekkta skipstjóra Kristjáni Andréssyni og byrjaði sjómennsku með honum um fjórtán ára að aldri, fyrst á opnum skipum, síðan á þilskipum. Árið 1904 fór Benóný á Stýrimannaskólann og útskrifaðist þaðan árið 1905. Frá þeim tíma var Benóný á þilskipum fyrir Vestfjörðum. Árið 1915 giftist hann Guðmundu Guðmunds- dóttur frá Arnárnúpi í Dýrafirði. Þau eign- uðust fjórar dætur og af þeim lifa þessar: Sig- ríður, Stefanía og Friðrika, allar giftar og bú- Faðir Carvajal, eineygur og kvalinn af höf- uðverk, en að öðru leyti heill heilsu, að því er hann sjálfur segir, hélt aftur til Perú og var þar settur til að gegna virðingarstöðu innan kirkjunnar. Hann átti góðan þátt í að fá kjör Indíána bætt. Orellana fór til Spánar fullur ai' fallegum ráðagerðum um landvinninga og landnám meðfram Amazónfljóti. Hann var ákafamaður, djarfur og örlátur, og eyddi öllu því fé, sem hann átti og gat útvegað, til þess að búa til stóran leiðangur. Konungurinn og em- settar í Reykjavík, en Guðbjörg léet hér í Reykjavík fyrir rúmum þrem árum. Þá má geta þess, að fjórum börnum hefur Benóný gengið í föður stað, en þau átti kona hans í fyrra hjónabandi. Þau eru þessi: Ólafur, Guð- mundur, Una og Kristján. Á tímabilinu 1915— 1980 stundaði Benóný fiskveiðar á skútum og síðan á togurum, en 1930 fluttist hann með f.lölskyldu sína til Reykjavíkur og réðst hann þá á vitaskipið Hermóð. í dag er Benóný stýri- maður á Hermóði vita, hinu nýja, glæsilega og góða skipi. Á hinni löngu og starfsömu ævi Benónýs hafa orðið stórfelldar framfarir á sviði for- mennsku og fiskveiða. Nú er viðhorfið breytt frá því siðan um aldamót. En hverjum á þjóðin fremur að þakka þau lífsskilyrði, sem hún býr við í dag, en hinum öldnu sjógörpum, sem aldrei létu hugfallast, þótt oft væri fleytan lítil og ófullkomin og baráttan við hafið hörð. I hópi farmanna og fiskimanna hafa alltaf verið afburða dugnaðarmenn. Aðrir gátu ekki þrifist þar. í þeirri stétt hefur Benóný starfað ótrauð- ur rúma hálfa öld. ' Ég, sem þessar línur rita, hef aldrei siglt með Benóný, en mörg undanfarin ár hef ég haft kynni af honum í starfi mínu, þegar hann hefur staðið vörð um borð í skipi sínu. Alltaf hefur hann verið boðinn og búinn að færa skipið, ef þess hefur gerzt þörf. Hið Ijúfmannlega viðmót, stilling og festa virðist mér vera honum með- fædd. Samvizkusemi í starfi er honum í blóð borin. Við slíka menn er gott að hafa samstarf. Þeir gefa þá fyrirmynd, sem yngri menn ættu að temja sér. Benóný Stefánsson er aldursforseti Stýri- mannafélags íslands og elzti starfandi stýri- maður það ég bezt veit. Við félagar í Stýrimannafélaginu óskum þessum aldna heiðursmanni til hamingju með sjötíu ára afmælisdaginn, þökkum honum gott samstarf og óskum honum alls þess bezta. Megi komandi ár verða honum gleði- og hamingjurík. Með félagskveðju. Theódór Gíslason. bættismenn hans settu skilyrði, sem máttu heita óaðgengileg, og létu lítið fé af hendi rakna. Orellana lét í haf í maí 1545 og ætlaði til árinn- ar, en skip hans lentu í hrakningum, svo að ekki komust nema tvö af þremur alla leið í árósinn. 1 Orellana lagði upp í ána á lítilli skútu. Sautján af mönnum hans létu lífið fyrir Indí- ánum. Orellana andaðist, hryggur af missinum og slitinn af vonbrigðum og sjúkleika, og var grafinn á eyju, þar sem niðþungur straumur fljótsins mætir öldum sjávarfallanna. V í K I N G U R 295

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.