Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1973, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1973, Qupperneq 12
KVENLEGUR kæruleysishlátur s j óræning-.j aforingj ans var oft það síðasta, sem hinir dauða- dæmdu ógæfusömu sjómenn heyrðu, meðan þeir gengu eftir plankanum út frá skipinu og beint í sjóinn, sem var morandi af hákörlum. Kvenlegur kæruleysishlátur ? Jú, vissulega var þetta rétt, því að nokkrir af hinum hraustustu og grimmustu þrjótum, sem sigldu undir stjórn Jolly Roger, voru konur. í raun voru margir hinna verstu sjóræningjaforingja einmitt af „veikara kyninu“. Eða kanijske er þetta raunveru- lega grimmara kynið? Hugsið ykkur t. d. Önnu Bonny og Maríu Read, tvær systur sverðsins, sem voru allt annað en blíðlyndar. Anna var óskilgetin dóttir írsks lögfræðings. Um stund bjó hún með móður sinni. Faðir önnu hafði meiri mætur á henni heldur en hjónabandsbarni sínu og vildi hafa hana nálægt sér. Hann dul- bjó hana því unga að árum sem dreng og tók hana heim til sín, þar sem hann sagði konu sinni, að þetta væri drengur, sem ætlaði að læra lögfræði hjá sér. Af til- viljun misheppnaðist bragðið, en skildi eftir hjá önnu sérstaka virðingu fyrir karlmannshlut- verki og eyðilagði reyndar allan kvenlegan persónuleika hennar ævilangt. Á táningsárunum var Anna fjörmikil stelpa. Nágranni henn- ar minnist þess, að einu sinni fylltist hún áköfu hatri á þjón- ustustúlku og stakk hana með eldhúshnífi á mörgum stöðum. Við annað tækifæri ætlaði ungur maður að gerast nærgöngull við hana, en hún beit hann svo heift- arlega, að hann lá lengi rúmfast- ur eftir. Við rýrnandi álit og sundur- lyndi eiginkonu yfirgaf faðir önnu eiginkonu sína og gerðist innflytjandi í Suður-Carolina ár- ið 1700 ásamt dóttur sinni önnu. Þar varð hann brátt auðugur og velmetinn plantekrueigandi. Nú vildi hann, að Anna giftist virðulegum borgara, en þar hafði hún annan smekk. Mestum tíma sínum eyddi hún á sjávarströnd- inni við Charleston, og dag nokk- urn stakk hún af með sjómanni, sem hét Bonny. Þau fóru til staðar, sem hét New Providence Island, en þar var sjóræningjaaðsetursstaður á Bahamaeyjum. Þetta var agalaus og uppvöðslustaður, sem Anna hreifst mjög af. Jafn ánægður var ekki eiginmaður hennar, Bonny. Hann settist að sem heið- arlegur aðstoðarmaður landstjór- ans. En nú skaut upp sjóræningja, sem kallaður var John Rackham, öðru nafni Calio Jack. Hann var snotur þrjótur, einmitt maður að skapi önnu. Og hún átti þá eigin- leika til að bera, sem sjóræningi gat bezta hugsað sér hjá konu. Hún var ekki aðeins dásamlega fögur, heldur hafði líka hjarta hart sem stein. Jack ákvað að taka hana með sér. Hann var nýbúinn að stela skipi, sem nú lá afsíðis á vík einni, þar sem áhöfn hans, ófyrirleitnir misindismenn, vann að því að út- búa skipið til ránsferða. En það var gagnstætt öllum viðteknum venjum að hafa konur um borð í slíkum fleytum. Anna mundi fyrra hlutverk sitt sem lögfræði- nemi. Hún fann því skjótt lausn á vandamálinu, dulbjó sig sem karlmann og hélt á haf út með þrjótunum. Þegar segl voru uppi og Jolly Roger kominn í lyftingu urðu sjóræningjarnir skyndilega varir við herskútu, sem lokaði leiðinni út úr víkinni. Jack beitti skynsemi sinni og lét yfirgefa flota smárra skipa, sem hann hafði hertekið og nú lágu öðru megin í höfninni. Á meðan að athygli herskipsins beindist að þessu vék það til hlið- ar, en þá notaði Jack tækifærið og slapp út úr höfninni. Anna fylgdist með af athygli. Hættur, geðshræringar og æv- intýri — það var nokkuð, sem henni líkaði. Hún hafði fundið 212 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.